Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.12.1990, Qupperneq 39

Læknablaðið - 15.12.1990, Qupperneq 39
LÆKNABLAÐIÐ 511 Tafla IV. Mat aöstandenda á fjárhagsvandamálum 'sem orsakast af veikindum sjúklinganna. Geödeildir Aörar deildir Alls Mikil................... 7 8 15 Nokkkur................ 14 7 21 Engin ................. 15 25 40 Samtals 36 40 76 Fjórir aöstandenda sjúklinga á geödeildum tóku ekki þátt í könnuninni. Tafla V. Áfallnar skuldir er fjölskyldan hefur oröiö aö greiöa. Geödeildir Aörar deildir Alls Skuldir greiddar ... 6 1 7 Engin greiðsla .. 30 39 69 Samtals 36 40 76 Fjórir aöstandendur sjúklinga á geödeildum tóku ekki þátt í könnuninni. Tafla VI. Svör aöstandenda varöandi greiöslur sjúklinga til heimilishalds. Geödeildir Aörar deildir Alls Greiösla.................. 16 25 41 Engin greiösla......... 20 15 35 Samtals 36 40 76 Fjórir aöstandendur sjúklinga á geödeildum tóku ekki þátt í könnuninni. tímabundið til þess að geta annast sjúklingana en níu (22.5%) aðstandendur sjúklinga á öðrum deildum. Munur á aðstandendum er ekki marktækur. Tafla V sýnir að sex (20%) aðstandendur sjúklinga á geðdeildum og einn aðstandandi sjúklings á öðrum deildum höfðu orðið að greiða áfallnar skuldir sem sjúklingar stofnuðu til vegna veikinda sinna. Við spumingu um kostnað af skuldum sem sjúklingur stofnaði til fyrir veikindi sín, (tilurð þeirra því óháð veikindum sjúklings), kom í ljós að í tveimur tilfellum höfðu aðstandendur sjúklinga á geðdeildum orðið að bera kostnað af slíkum skuldum, en enginn meðal aðstandenda annarra sjúklinga. Við spumingunni um hvort einhver meðlimur í fjölskyldunni hafi tekið lán til að greiða kostnað sem tengist veikindum sjúklings kom í ljós að fimm aðstandendur sjúklinga á geðdeildum höfðu tekið lán og þrír aðstandendur sjúklinga á öðmm deildum. Tafla VI sýnir að fleiri sjúklingar á öðmm deildum en geðdeildum tóku þátt í heimiliskostnaði. UMRÆÐA Sjúklingar sem og aðstandendur tóku þessum hluta könnunarinnar vel og svömðu eftir bestu getu. Þeir töldu mikilvægt og jákvætt að veita upplýsingar um áhrif veikinda á fjárhag. Mat á áhrifum veikinda á vinnu verður ætíð einstaklingsbundið og jafnvel stundum háð viðbrögðum vinnuveitenda. Tveir þriðju hlutar sjúklinga á öllum deildum töldu veikindin þó hafa skert starfsgetu umtalsvert. Flestir þeirra lýstu áhyggjum yfir því hvort þeir yrðu vinnufærir, fengju starf eða héldu starfi sínu. Nokkrir höfðu verið óvinnufærir alllengi og fáir sjúklingar, sérstaklega á geðdeildum, voru í fastri vinnu. Mun algengara var að sjúklingar á geðdeildum hefðu fjárhagsáhyggjur sem þeir yfirleitt töldu orsakast af veikindum. Ahyggjumar komu meðal annars fram í óvissu um afkomu eða um fjárhagslega getu til þess að bjarga sér og fjölskyldu sinni, þegar hún var fyrir hendi. Lögboðnar tryggingar samkvæmt áunnum réttindum stóðu engan veginn undir fjárþörf þeirra og dugðu því ekki til að draga úr áhyggjum. Rétt er að ítreka, að hér var um að ræða raunhæfar áhyggjur. Svo virðist sem þeir hafi áður barist í bökkum og getan til að mæta fjárhagsskerðingu vegna veikinda því verið mjög takmörkuð. Bætur þeirra sjúklinga er lágu á geðdeildum komu nær einvörðungu frá sjúkrasamlögunum eða Tryggingastofnun ríkisins, en sjúklingar á öðrum deildum nutu oftar bóta úr öðmm sjóðum, svo sem lífeyrissjóðum. Fjárhagur sjúklinga á öðmm deildum var almennt mun betri fyrir veikindin. Einnig kom í ljós að sjúklingar á geðdeildum vom aðstandendum almennt fjárhagslega dýrari, ekki síst í daglegum þörfum. Algengara var að aðstandendur sjúklinga á geðdeildum (39%) þyrftu að hætta við vinnu til þess að annast sjúklingana. Þó þurftu tæplega 23% aðstandenda sjúklinga á öðmm deildum að hætta vinnu. Einnig kom í ljós í viðræðum við sjúklinga og aðstandendur

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.