Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1990, Síða 11

Læknablaðið - 15.12.1990, Síða 11
R, E TÖFLUR; B 04 A A 25 Hver tafla inniheldur: Pravastatinum INN, natriumsalt, 20 mg. Eiginleikar: Lyfið blokkar HMG-CoA redúktasa og dregur þannig úr myndun kólesteróls. Lyfið lækkar LDL-kólesteról og þríglýseríða í blóði. Þriðjungur lyfsins frásogast. U.þ.b. helmingur er próteinbundinn í blóði. Helmingunartími í plasma er 2 klst. Lyfið útskilst í galli og þvagi. Ábendingar: Veruleg hækkun kólesteróls í blóði, þegar sérstakt matar- æði hefur ekki borið tilætlaðan árangur. Frábendingar: Skert lifrarstarfsemi. Ofnæmi fyrir lyfinu. Meðganga og brjóstagjöf. Lyfið ætti ekki að gefa konum á barneignaraldri nema þær noti örugga getnaðarvörn. Athugið: Vanda þarf sérstaklega notkun lyfsins og val á sjúklingum vegna hugsanlegra aukaverkana. Mælt er með því, að lifrarenzým séu mæld fyrir meðferð og á 4—6 vikna fresti fyrstu 12 mánuði meðferðar, en síðan reglulega (sjá um frábendingar og aukaverkanir lyfsins). Einnig er mælt með því, að sjúklingar fari í augnskoðun fyrir meðferð og síðan með reglulegu millibili meðan á meðferð stendur (sjá um auka- verkanir lyfsins). Aukin tíðni æxla (illkynja og góðkynja) í lifur hefur sést við gjöf mjög hárra skammta hjá rottum, en ekki hjá músum. Aukaverkanir: Hækkun lifrarenzýma í blóði. Hækkun CK-vöðva- enzýms í blóði. Höfuðverkur. Útþot. Óþægindi frá meltingarfærum. Skyld lyf geta valdið dreri á auga. Milliverkanir: Ekki þekktar. Skammtastærðir handafullorðnum: Venjulegir skammtar eru 10—40 mg einu sinni á dag síðdegis. Algengasti skammturinn er 20 mg á dag. Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum. Pakkningar: 28 stk. LIP SQUIBB Fljótvirk leið til lækkunar á óæskilegu kólesteróli. E.R. Squibb and Sons Ltd, Hounslow, England.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.