Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.10.1992, Qupperneq 17

Læknablaðið - 15.10.1992, Qupperneq 17
LÆKNABLAÐIÐ 325 þörfnuðust hærri skammta en 2000 eininga fengu tvær dælingar undir húð. Markmið meðferðarinnar var að blóðrauðinn hækkaði um meira en 15 gr/1. Þegar takmarkinu var náð var rh-EPO skammturinn helmingaður. Ef styrkur ferritíns í sermi var lægri en 250 Hg/\ voru sjúklingamir jafnframt meðhöndlaðir með jámtöflum (100 mg/dag) til að hindra jámskort, sem er fylgikvilli aukinnar uppbyggingar rauðra blóðkoma (22). Eftirlit: Sjúkdómseinkenni (morgunstirðleiki og liðverkir í hvfld og við hreyfingu) voru könnuð vikulega með samtölum við sjúklingana og skráð á 10 sentimetra sjónskala (visual analogue scale). Hlutlægt virknismat fyrir og eftir meðferð með rh-EPO var metið með kvarða Ritchie (23) og hreyfigeta samkvæmt Steinborcker (24). Sama mat var endurtekið er sjúklingamir höfðu verið án rh- EPO meðferðar í sex vikur. Blóðþrýstingur var metinn fyrir hverja rh-EPO gjöf. Allir sjúklingamir gengust undir nákvæma blóðmeinafræðilega rannsókn (tafla II). Jám, transferrín og ferritín var mælt í sermi og próf fyrir blóðkomarofi (hemolysis) vom gerð. Einnig var beinmergur rannsakaður. Sjúklingar með einkenni um blóðkomarof eða með jámsnauðan beinmerg vom útilokaðir frá rannsókninni. Vikulega vom blóðrauði og blóðkomaskil (hematocrit) mæld, netfmmur, hvít blóðkom og blóðflögur voru talin. Einnig voru kreatínín, kalíum, sökk, CRP og haptóglóbín mæld í sermi. Sömu mælingar voru gerðar aðra hvora viku í sex vikur eftir að sjúklingamir hættu á rh-EPO meðferðinni. Rauðkomavaki í sermi var mældur vikulega meðan á meðferð stóð og síöan aðra hvora viku í sex vikur, eftir að meðferð lauk. Notuð var geislaónæmismæling (radioimmunoassay, RIA) eins og áður hefur verið lýst (25). Lægsta mælanlega gildi er 0,5 eining/1, og meðalgildi er 6,7 einingar/1 (3,3- 13,5 alþjóðlegar einingarfl). Tölumar em meðalgildi og spönnun frá viðmiðunarhópi. NIÐURSTÖÐUR Meðalgildið fyrir blóðrauða var 93,1 ± 8,4 g/1 fyrir meðferð, en náði 116,3 ± 10,1 g/1 eftir fimm vikna meðferð með rh-EPO (p<0,001). Meðalgildið fyrir blóðrauðaskil Reticulocytes % Hemoglobin g/l Erythropoietin Weeks Figure 1. Hemoglobin, hematocrit and reticulocyte counts in eleven patients with inflammatory arthritides during and after treatment with recombinant human erythropoietin (rh-EPO). The data are presented as means±SD. The p values were calculated by one factorial ANOVA. The treatment period with rh-EPO is indicated. jókst á sama tíma frá 29,4 ± 2,8% til 35,9 ±2,1% (p<0,001) og fjöldi netfrumna jókst marktækt (p<0,05) (mynd 1). Níu sjúklingar náðu meðferðarmarkmiðinu með aukningu í Hb>15 g/1. Þó var rh- EPO skammturinn aðeins minnkaður hjá fjórum sjúklingum. Hinir fimm sjúklingamir náðu meðferðarmarkmiðinu á síðustu dögum meðferðarinnar og vannst því ekki tími til skammtaaðlögunar samkvæmt meðferðaráætlun. Þessi skammtaminnkun endurspeglaðist í vægri fækkun netfrumna og lækkun blóðrauða (mynd 1). Sjúklingamir tveir með skerta nýmastarfsemi vegna bólgumýlildis svöruðu báðir meðferðinni, þrátt fyrir mjög mikla virkni í grunnsjúkdómnum;

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.