Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.10.1992, Qupperneq 18

Læknablaðið - 15.10.1992, Qupperneq 18
326 LÆKNABLAÐIÐ blóðrauðinn jókst frá 98 til 130 g/1 og frá 75 til 117 g/1 (mynd 2). Mynd 3 sýnir svörun í blóðrauða hjá sjúklingunum níu sem höfðu eðlilega nýmastarfsemi. Sjö af þessum sjúklingum svöruðu rh-EPO meðferðinni með meira en 15 gr/1 aukningu í blóðrauða, meðan tveir sjúklingar höfðu óbreytt blóðrauðagildi fyrir og eftir meðferð. Þó fjölgaði netfrumum (8%) hjá öðrum þessara sjúklinga næst síðustu meðferðarvikuna. Sjúklingamir tveir, sem svöruðu ekki meðferðinni, höfðu báðir mjög virka iktsýki með hátt sökk (62 og 94 mm/klst), mjög hátt CRP (111 og 170 mg/1) og háan Ritchie kvarða (20 og 14 stig). Sex vikum eftir að rh-EPO meðferðinni var hætt voru sjúklingamir enn með marktæka hækkun á bæði blóðrauða og blóðrauðaskilum miðað við fyrir meðferð (p<0,001 og p<0,01), þó sást marktæk lækkun á fjölda netfrumna og blóðrauðaskilum, meðan engin marktæk lækkun varð á blóðrauða (mynd 1). Einungis hjá einum sjúklingi féll blóðrauðinn niður í sama gildi og fyrir meðferð (mynd 3). Engin marktæk breyting varð á meðalfrumurými (MCV), meðalfrumurauða (MCH), meðalfmmurauðastyrk (MCHC), þéttni jáms, ferritíns eða transferritíns í sermi fyrir og eftir meðferð. Meðalgildi blóðrauðavaka í sermi fyrir meðferð var 19,5 ± 11,6 alþjóðaeiningar/1 (6,1-43). Fjórir sjúklingar höfðu blóðrauðavaka innan eðlilegra marka, tveir höfðu væga hækkun og fimm sjúklingar höfðu hærra gildi en 20 einingar/1. Annar sjúklinganna, sem ekki svaraði meðferð, hafði næst hæsta blóðrauðavakagildið (37,9 einingar/1) og hinn hafði 17,3 einingar/1. Ekkert samband fannst milli blóðrauðavakagildanna fyrir meðferð og árangurs af rh-EPO meðferðinni. Engra aukaverkana varð vart af rh-EPO meðferðinni. Einn sjúklingur kvartaði um aukna verki í öxlum, en þarfnaðist ekki verkjalyfja. Þrír sjúklingar voru í meðferð vegna háþrýstings er meðferðin með rh-EPO hófst. Enginn þeirra þarfnaðist breyttrar blóðþrýstingsmeðferðar og ekki varð heldur vart blóðþrýstingshækkunar hjá hinum níu sjúklingunum sem höfðu eðlilegan blóðþrýsting. Sex sjúklinganna lærðu að sprauta sig sjálfir með hjálp hjúkrunarfræðings. Virkni sjúkdómsins mæld með sökki, CRP, haptóglóbín, Ritchie eða Steinbrocker kvörðum breyttist ekki marktækt meðan á meðferðinni stóð. Huglæg einkenni svo sem morgunstirðleiki, hreyfi- eða hvíldarverkir breyttust ekki heldur meðan á meðferðinni stóð. Hins vegar varð marktæk lækkun á sökki fyrir og eftir rh-EPO meðferðina (p<0,01). Þessi lækkun á sökki hafði hins vegar ekkert samband við aðra bólguþætti (CRP og haptóglóbín) eða við blóðrauða og blóðrauðaskil. Hvíldarþörf sjúklinganna minnkaði marktækt meðan á rh-EPO meðferð stóð eða að meðaltali um 42 mínútur. Einnig álitu sjúklingarnir að almennt ástand þeirra batnaði við rh-EPO meðferðina (p<0,01). Atta sjúklingar höfðu ferritínþéttni í sermi lægri en 250 /ig/1 og voru því gefnar jámtöflur samkvæmt meðferðaráætlun. Tveir þessara sjúklinga svöruðu ekki rh-EPO meðferð. UMRÆÐA Langvinnir bólgusjúkdómar hafa oft vægan blóðskort sem fylgikvilla. Erfitt er að meta hvaða þýðingu blóðleysið hefur fyrir gigtarsjúklinga. Bæði getur gigtarsjúkdómurinn valdið þreytu og hindrað líkamlega áreynslu og þannig verða hjarta og lungu ekki fyrir álagi. Hins vegar er það reynsla margra lækna að bætt blóðrauðagildi bæti ástand sjúklinga almennt, jafnvel þegar virkni grunnsjúkdómsins er óbreytt. Það er því áhugavert að athuga virkni blóðrauðavaka til betrunar blóðrauða hjá sjúklingum sem hafa blóðskort vegna langvinnra gigtarsjúkdóma. I þessari rannsókn höfum við sýnt fram á að meðferð með rh-EPO hefur aukið blóðrauðagildið um 15 gr/1 hjá níu af ellefu gigtarsjúklingum. Meðferð með blóðrauðavaka (rh-EPO) hefur verið árangursrík við meðferð á blóðskorti vegna nýmabilunar og nýlega hafa birst greinar um jákvætt svar við rh-EPO meðferð á blóðleysi vegna iktsýki. Means et al (17) birtu niðurstöður frá tveimur sjúklingum sem svöruðu rh-EPO meðferð. Annar sjúklinganna hafði jámskort áður en rh-EPO meðferðin byrjaði og hinn sjúklingurinn fékk jámskort eftir átta vikna meðferð, þrátt

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.