Læknablaðið - 15.05.1993, Side 5
LÆKNABLAÐIÐ 1993; 79: 175-84
175
Birna Þórðardóttir
PYNTINGAR BRJÓTA NIÐUR
SJÁLFSVIRÐINGU OG PERSÓNULEIKA
Rætt viö Inge Genefke og Jens Andersen
Kafbáturinn
Páfagaukspinninn
Falanga
Mótorhjólið
Picana
Einhverjum gæti flogið í hug að orðin
hér að ofan væru stikkorð ferðaskrifstofu
fyrir sumarleyfisparadís, lýsandi fyrir
ferðamöguleika og unaðssemdir í mat og
drykk. En svo er ekki, heldur eru þetta
nöfn á alræmdum pyntingaaðferðum,
pyntingum sem svívirða, niðurlægja, meiða
og drepa.
Við sitjum inni á bjartri skrifstofu í fallegu
og vinalegu húsi mitt í Kaupmannahöfn.
Fyrrverandi prófessorsbústaður. Annað
tveggja húsa sem RCT - Rehabilitationscenter
for torturofre - Endurhæfingarstöð fyrir
fórnarlömb pyntinga - hefur aðsetur í.
Pappír flóir unt allt. Bæklingar, skýrslur,
reikningsuppgjör, beiðnir um stuðning,
rannsóknarniðurstöður, hrottalegri lýsingar
en hér verður greint frá.
Viðmælendur okkar Inge Kemp Genefke
læknir, primus motor samtakanna, og Jens
Andersen skipulagsstjóri, fyrrum fjármálastjóri
Danska læknafélagsins og læknablaðsins
Ugeskrift for læger.
Inge skýrir fyrst frá tilurð RCT. Hvernig það
starf hófst sem hefur gefið ótrúlega mörgum
lífsvon eftir þá afmáun eigin sjálfs sem
pyntingar hafa í för með sér.
En gefum Inge orðið:
Segja má að undirbúningsvinna hafi byrjað
1973 og 1974. Upphafið má rekja til
Danmerkurdeildar Amnesty Intemational,
en hópur lækna hafði starfað þar innan.
Þessi hópur tók sig saman, fyrst með það
fyrir augum að sanna læknisfræðilega að
pyntingum hefði verið beitt. Það kom fyrir
að fórnarlömb pyntinga sem leituðu réttar síns
Inge Genejke og Jens Andersen á skrifstofu Inge í
Endurhœfingarstöðinni fyrir fórnarlömb pyntinga.
Ljósm.: -bþ-
fyrir dómstólum fengu að heyra að þau væru
sjálf ábyrg fyrir eigin skaða. Þau hefðu sjálf
brennt sig á sígarettum, brotið sig eða skaðað
á annan hátt. A þessum tíma var ég starfandi
innan læknahóps Amnesty.
Árið 1982 var RCT stofnað og 1984 tók
stöðin formlega til starfa. Með notkun
tölvuskráðra upplýsinga reyndum við að
komast að því hvort aðrir læknar hefðu
rannsakað pyntingar skipulega, en svo
var ekki. Okkar hópur var fyrstur til þess
að rannsaka fórnarlömb pyntinga út frá
læknisfræðilegum forsendum. Við höfðum
því enga reynslu til að styðjast við. Á þessum
tíma komu fyrstu flóttamennirnir frá Chile
til Danmerkur, margir hverjir mjög illa