Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.05.1993, Qupperneq 7

Læknablaðið - 15.05.1993, Qupperneq 7
LÆKNABLAÐIÐ 177 eru ríkisstjórnir sem æskja pyntinga og þetta viðgengst í ríflega 70 löndum í heiminum í dag. Þetta voru fyrstu þrjú atriðin sem komu okkur á óvart. HJÁLP ER MÖGULEG Fjórða atriðið sem við komumst að raun um og það sem hægt er að gleðjast yfir er að við getum í raun hjálpað. Það er mögulegt að endurhæfa þessa einstaklinga. Við tölum ekki um meðferð vegna þess að við lítum ekki á fórnarlömb pyntinga sem sjúklinga heldur ræðum við um skjólstæðinga og við vitum núna að við getum hjálpað. Með það í huga höfum við byggt starf okkar upp á einföldum grundvallarreglum. Mikilvægast af öllu og hornsteinn allrar aðstoðar er að hjálpa sálrænt, þar beitum við samtalsaðferð. Skjólstæðingar okkar verða að ræða um það sem þeir hafa orðið fyrir. En um leið veitum við einnig líkamlega hjálp. Itarleg læknisskoðun fer fram og við veitum sjúkraþjálfun. Þar sem skórinn kreppir virkilega eftir pyntingar er ekki í maganum, nýrunum eða lifrinni, þótt þess séu auðvitað líka dæmi, en þar sem fólk er virkilega skaddað, fyrir utan sálrænan skaða, er í stoðkerfi líkamans. Þetta á við um nálega alla skjólstæðinga okkar. Fólk hefur verið hengt upp, það hefur verið barið og þá með vöðvana spennta. Þess vegna notum við mjög mikið sjúkraþjálfun. Það er grunnatriði að sinna líkama og sál í einu. Auk þessa veitum Pyntingar leiða oft til breyttrar skynjunar fómarlambsins á eigin líkama. Þvífinnst líkaminn Ijótur og afmyndaður. við einnig félagslega aðstoð, ekki síst ef um fjölskyldur er að ræða. HVAÐ VARAST BER í MEÐFERÐ I öllum tilvikum verðum við að varast kringumstæður sem minna skjólstæðinga okkar á pyntingar. Það getur til dæmis verið Sjálfsálit konu er lítið eftir kynferðislega niðurlœgingu. Skömmin er yfirþyrmandi.

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.