Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1993, Blaðsíða 11

Læknablaðið - 15.05.1993, Blaðsíða 11
LÆKNABLAÐIÐ 181 að þar sem Bandaríkin eru nú eina stórveldi heimsins, þá geti þau séð af fjármagni til þessa. Það er ekki um stórar fjárfúlgur að ræða á mælikvarða Bandaríkjanna. En fáist peningar er mögulegt að veita fórnarlömbum pyntinga aftur þá sjálfsvirðingu og reisn sem þau voru rænd, þannig að þau verði fær um að gera það sem vilji þeirra stendur til. Þannig skapast jafnvægisástand og lýðræðisþróun hefst. Þetta hefur danska ríkisstjórnin skilið mjög vel. Danmörk gefur mest allra ríkja til endurhæfingar fómarlamba pyntinga. Við höfum átt mjög gott samstarf við utanríkisráðuneytið. Þegar við ferðumst í löndum, þar sem ef til vill er ekki mjög þægilegt að sinna þeim verkefnum sem við vinnum að, þá hafa dönsku sendiráðin staðið á bak við okkur, stutt okkur og aðstoðað á alla lund. En þeir segja líka, og það með réttu: Af hverju ætti Danmörk að borga þetta allt saman? Þótt ísland gerði ekki annað þá gæti það samt gefið peninga til þessa starfs. Læknar eru bærilega launaðir og íslenskir læknar mættu gjarnan hafa samband við RCT. Við tökum einnig á móti framlögum einstaklinga, sem eru vel að merkja frádráttarbær til skatts. Aðalvandamálið í dag er peningaskortur. Við höfum eytt miklum tíma og orku í að búa til kennslu- og upplýsingaefni. Við höfum útbúið leiðbeiningar fyrir hjúkrunarfræðinga, sjúkraþjálfara, félagsráðgjafa og fleiri heilbrigðishópa. MENNTUN HEILBRIGÐISSTÉTTA Við höldum námskeið í Kaupmannahafnarháskóla, til dæmis fyrir hjúkrunarfræðinga, en við viljuin fá að kenna öllu heilbrigðisstarfsfólki þannig að það viti að pyntingar eru til. Vitneskjan er líka hindrun í vegi frekari pyntinga og við verðum að reyna að koma í veg fyrir pyntingar. Því meira sem við tölum um pyntingar því meir sem við opnum umræðuna, því meir sem fómarlömbin tjá sig þeim mun ákveðnar getum við fordæmt þau 70 lönd sem beita ríkisstjórnarpyntingum. Island hefur einnig samband við þessi lönd. Ég er ekki að ræða um pyntingar sem viðgangast á milli andstæðra hópa eða samtaka, ég er að tala um löndin og stjórnendur þeirra. Þessi lönd eru öll á skrá hjá Amnesty, en við leggjum ekki í vana okkar að telja þau upp, við segjum einungis: Það eru 70 lönd sem beita ríkisstjórnarpyntingum. Stjórnir landanna hafa vitneskju um þær, þess vegna eru þetta ríkisstjómarpyntingar. Ég tek ekki afstöðu til stjórnmálakerfa, en pyntingum er beitt í austri og vestri, suðri og norðri. Hér í Danmörku höfum við haft fólk frá 45 löndum sem hefur verið pyntað og við höfum séð ákveðið munstur sem pyntingaböðlarnir nota og aðferðirnar eru þær sömu. Þeir kenna hver öðrum, enda er markmiðið hið sama - að brjóta niður einstaklingana. Afleiðingar pyntinga hjá fórnarlömbunum em einnig þær sömu, hvort heldur pyntað er í Afríku, Rómönsku-Ameríku eða Asíu. Við vitum hvernig farið er að, við vitum að þeir taka leiðtogana fyrst og pynta þá og við þekkjum afleiðingarnar. Um þetta eigum við að tala. En vegna þessa vitum við líka að endurhæfingin er hin sama, við vitum hvernig við eigum að hjálpa fórnarlömbum pyntinga, hvar sem er í heiminum. En að sjálfsögðu er um menningarlega mismunun að ræða og ólíkar félagslegar aðstæður sem við verðum að taka tillit til í endurhæfingunni. NÁMSKEIÐ í DANMÖRKU Þegar viðtalið við Inge og Jens var tekið stóð yfir fjögurra daga námskeið hjá RCT. Námsefnið er talsvert, sagði Inge, og það er engin skemmtilesning. Það er í rauninni það erfiðasta. Efnið er svo sjúklegt og óhugnanlegt, að þú hefur hvorki löngun til að lesa né heyra. Erfiðast er að hlusta á fólk og sitja hjá fólki sem hefur gengið í gegnum slíkan óhugnað, en það er nauðsynlegt. Þau verða að geta grátið, öskrað, æpt, lagst á gólfið og hvað annað sem veitir svölun þegar þau skýra frá óhugnaðinum. Við höfum ekki fundið upp neinar nýjar aðferðir til hjálpar, heldur beitum við neyðarmeðferð til þess að vinna bug á andlegu áfalli sem hefur ef til vill varað árum saman. En markmiðið er að ræða um það. Ná skelfingunni út úr hugskotinu og færa hana í fortíðina, þannig að hægt sé að lifa áfram þó svo maður gleymi aldrei því sem gerðist. Það getur verið ótrúlega kvalafullt að ýta svona atburðum í burtu. í byrjun endurhæfingar hjá sjúkraþjálfara getur ástandið versnað tímabundið og það þarf að útskýra. Þegar skjólstæðingar okkar byrja að tala og muna þá líður þeim oft verr, en síðan

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.