Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.05.1993, Page 37

Læknablaðið - 15.05.1993, Page 37
LÆKNABLAÐIÐ 207 Dögg Pálsdóttir MEGINREGLUR EVRÓPUBANDALAGSINS UM STARFSRÉTTINDI INNGANGUR Eitt af markmiðum Evrópubandalagsins (EB) er að ryðja úr vegi hindrunum við frjálsri för manna, frjálsum vöruviðskiptum, frjálsum þjónustuviðskiptum og frjálsum fjármagnsflutningum milli aðildarríkjanna. Þetta markmið hefur oft verið nefnt tjórfrelsið eða fjórþætta frelsið. Rómarsáttmálinn (Rs) geymir ýmis fyrirmæli um hvernig ryðja skuli brott þeim hindrunum sem verða á vegi fjórfrelsisins. I 1. málsgr. 54. gr. er mælt fyrir um almenna áætlun um afnám gildandi hamla vegna staðfesturéttar og í 1. málsgr. 63. gr. er rætt um sambærilega áætlun vegna frjálsra þjónustuviðskipta. Hugtakið staðfesturéttur er nýyrði og er þýðing á enska hugtakinu right of establishment og norræna hugtakinu etableringsfrihed. Með hugtakinu er átt við rétt borgara aðildarríkjanna til að geta óhindrað sest að og stofnað til atvinnurekstrar hvar sem er á svæðinu. í samræmi við tilvitnuð ákvæði Rs um afnám hamla á þessum sviðum samþykkti Ráðherraráð EB, sem í á sæti einn ráðherra úr ríkisstjórn hvers aðildarríkis EB, hinn 18. desember 1961 tvær almennar áætlanir um afnám hindrana vegna staðfesturéttar og frjálsra þjónustuviðskipta. SAMEIGINLEGUR VINNUMARKAÐUR EVRÓPUBANDALAGSINS OG GAGNKVÆM VIÐURKENNING PRÓFA OG PRÓFSKÍRTEINA Tilskipunum þeim, sem settar hafa verið á grundvelli fyrrnefndra áætlana má skipta í þrjá flokka eftir innihaldi þeirra og skipta þeir allir máli varðandi reglur EB um starfsréttindi. Þessir flokkar eru: Erindi þetta var flutt á málþingi Lögfræðingafélags íslands 10. október 1992. Höfundur er lögfræðingur og skrifstofustjóri í Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, en ekki deildarstjóri eins og misritaðist í marshefti Læknablaðsins. Er beðist velvirðingar á því. - tilskipanir um afnárn hindrana - tilskipanir um samræmingu og gagnkvæma viðurkenningu - millibilsástandstilskipanir. Aður en vikið er nánar að þessum mismunandi flokkum tilskipana er rétt að rifja upp skilgreininguna á tilskipun. Tilskipun er ein tegund réttarheimilda EB. Tilskipanir kalla á það að aðildarrfldn breyti innan tiltekins tímafrests löggjöf sinni og samræmi hana reglum EB. Aðildarríkjunum er látið eftir að ákveða með hvaða hætti þau uppfylla skilyrði tilskipananna, til dæmis með lagasetningu eða útgáfu reglugerða. Af ýmsum dómum má leiða þá reglu að tilskipun getur haft bein réttaráhrif í aðildarríki enda séu ákvæði hennar skýr. Rekist tilskipun á löggjöf aðildarríkis ganga ákvæði tilskipunarinnar framar. Tilskipanir um afnám hindrana: Fram til ársins 1974 voru allmargar tilskipanir af þessu tagi settar, eða 30 talsins. Með þeim var staðfest skyldan til að ryðja úr vegi hindrunum með nánari vísun til áætlananna. Banni við hindrunum fylgdi gjarnan upptalning á þeim reglum aðildarríkjanna sem einkum og sér í lagi skyldi afnema. Þá mæltu þær fyrir um viðurkenningu ýmissa vottorða annarra aðildarríkja í þeim tilvikum þar sem gistilandið krafðist vottorða. Með dómi á árinu 1974 var ákveðið að ákvæði 52., 59. og 60. gr. Rs giltu um þessi tilvik og urðu þessar tilskipanir þar með ekki fleiri. Tilskipanir um samrœmingu vegna staðfestu og frjálsrar þjónustustarfsemi, þar á meðal um gagnkvœma viðurkenningu: A grundvelli samræmingarstarfs á vettvangi EB hafa verið settar á sjötta tug tilskipana um það efni. Eitt svið þessa starfs snertir gagnkvæma viðurkenningu prófa og prófskírteina. Samkvæmt 1. mgr. 57. gr. Rs setur Ráðherraráð EB tilskipanir um gagnkvæma

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.