Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1993, Síða 39

Læknablaðið - 15.05.1993, Síða 39
LÆKNABLAÐIÐ 209 reynsla fengist á framkvæmd hennar. Þrátt fyrir gildistöku þessarar tilskipunar hefur ályktunin frá 1974 áfram gildi, því samkvæmt 2. gr. nær hún ekki til starfsgreina sem eru viðfangsefni annarrar tilskipunar um fyrirkomulag gagnkvæmar viðurkenningar aðildarríkja á prófskírteinum. Með tilskipuninni er stefnt að því, að eftirleiðis verði ekki settar tilskipanir um einstök störf er njóta löggildingar. I undirbúningi mun santbærileg almenn tilskipun um iðnnám. Nánar um efni almennu tilskipunarinnar um þriggja ára nám á œðra skólastigi: Þessi tilskipun tekur til lögverndaðra starfa, það er þeirra starfa sem þeir einir mega stunda sem lokið hafa tilteknum prófum og starfsþjálfun. Hún tekur til ríkisborgara í aðildarríki sem hyggjast stunda lögverndað starf í gistiríki, annað hvort sem launamaður eða sjálfstætt starfandi. Tilskipunin skilgreinir ekki nánar hvað felst í hugtakinu œðra nám og þurfa því aðildarríkin hvert fyrir sig að ákveða hvaða störf falla undir tilskipunina. Ef iðkun lögvemdaðrar starfsgreinar í aðildarríki er háð því að umsækjandi hafi prófskírteini, getur lögbært yfirvald ekki neitað ríkisborgara aðildarríkis um heimild til að hefja eða stunda starfsemina, hafi hann undir höndum prófskírteini sem krafist er í öðru aðildarríki til að leggja stund á viðkomandi starfsgrein. Sama gildir hafi hann stundað starf í viðkomandi starfsgrein í fullu starfi í tvö ár á undangengnum tíu árum í öðru aðildarríki, sem ekki lögverndar starfsgreinina enda hafi umsækjandi undir höndum vottorð um menntun og hæfi. Þrátt fyrir þetta getur gistiríkið þó krafist þess að umsækjandi leggi fram vitnisburð um starfsreynslu, ef náms-og þjálfunartími í heimaríkinu er að minnsta kosti einu ári skemmri en í gistiríkinu. Aldrei má þó krefjast lengri starfsreynslu en sem nemur fjórum árum. Þá getur gistiríkið krafist að hlutaðeigandi ljúki aðlögunartíma sem ekki vari lengur en þrjú ár eða taki hæfnispróf ef menntun og þjálfun hans er verulega frábrugðin þeim kröfum sem gistiríkið áskilur. 1 þessuin tilvikum má gistiríkið gefa hlutaðeigandi kost á að velja milli aðlögunartíma og hæfnisprófs. Þó getur gistiríkið ákveðið aðlögunartíma eða hæfnispróf ef um er að ræða starfsgrein þar sem nákvæm þekking á landslögum er nauðsynleg og þar sem ráðgjöf eða aðstoð í tengslum við landslög er mikilvægur og stöðugur þáttur starfseminnar. Nánar um efni tilskipana um gagnkvœma viðurkenningu prófa og prófskírteina á heilbrigðissviði: I 2. gr. almennu tilskipunarinnar er skýrt tekið fram að hún haggi í engu gildi eldri tilskipana um gagnkvæma viðurkenningu prófa og prófskírteina. I ljósi þess sem áður sagði um þá skyldu sem 3. mgr. 57. gr. leggur á Ráðherraráð EB um að aflétta hömlum á sviði lækninga, lyfjafræðistarfa og skyldra starfa, ætti ekki að koma á óvart að meðal þeirra tilskipana sem hér er vísað til, eru tilskipanir um sex starfsstéttir á heilbrigðissviði, lækna, tannlækna, hjúkrunarfræðinga, ljósmæðra, lyfjafræðinga og dýralækna. I þessum tilskipunum felst, að gistiríki er skylt að viðurkenna starfsleyfi þessara stétta frá öðru aðildarríki. Gistiríkið leggur því ekki sjálfstætt mat á menntun hlutaðeigandi einstaklings eins og almenna tilskipunin gerir ráð fyrir, heldur metur prófskírteini hans og önnur skjöl. Reynist þau í samræmi við fyrirmæli tilskipana fyrir viðkomandi starfsstétt ber að staðfesta að hann geti starfað innan starfsgreinarinnar í gistiríkinu. A þetta atriði hefur reynt í dómi Evrópudóinstólsins í svokölluðu Auer-máli (271/82). Þar voru málsatvik þau, að maður var ákærður í Frakklandi fyrir að stunda dýralækningar án tilskilinna leyfa. Akærði bar fyrir sig tilskipun, sem kvað á um gagnkvæma viðurkenningu á dýralæknaprófi, milli aðildarríkjanna. EB- dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu, að umrædd tilskipun hefði bein réttaráhrif. Frönsk yfirvöld hefðu verið skyldug til að veita ákærða tilskilin dýralækningaleyfi. Af þessum sökum komst dómstóllinn að þeirri niðurstöðu, að það bryti í bága við umrædda tilskipun að fylgja fram ákæru í málinu. Sérreglur eru um gagnkvæmni varðandi sérfræðiviðurkenningar lækna, sem miðast við að gistiríki er eingöngu skylt að staðfesta sérgrein sem viðurkennd er í því ríki. Reglur aðildarríkjanna um það hvaða sérfræðinám er viðurkennt eru misjafnar. Þannig eru skurðlækningar og barnalækningar viðurkenndar sem sérgreinar innan

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.