Læknablaðið - 15.06.1996, Blaðsíða 13
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
441
Table IV. Crohn’s disease. Reporls of major sites of inflammation. Percentage ofpatients.
Place Small bowel (%) lleocolic (%) Large bowel (%) Number of patients studied
Nyhlin (10), Sweden (48) (32) (20) 199
Lindberg (12), Sweden (26) (57) (17) 246
Kyle (13), Scotland (29.9) (29.2) (40.9) 856
Lee (16), England (38) (23.2) (38.8) 358
Björnsson, lceland (present study) (25.3) (18.7) (54.7) 75
staðsetningu. Þar sést að hér á landi ber hlut-
fallslega meira á ristilbreytingum en minna á
mjógirnisbreytingum. í rannsókn í Blackpool í
norðvestur Englandi, fannst bólga bundin við
ristil aðallega hjá þeim sem eldri voru en 75 ára
(13).
Kynjahlutfall: Svæðisgarnabólga var heldur
algengari hjá konum en körlum árin 1980-1989.
Kynjahlutfallið (karlar/konur) var 0,9 og hafði
lækkað úr 1,3 á tímabilinu 1970-1979 (3).
Hæsta hlutfallið í nálægum löndum kom fram í
Færeyjum 1,6 (6), en við rannsókn á svæði í
Norður-Svíþjóð var það 1,03 (10) og í Túbingen
í Þýskalandi 1,12 (19). í öllum hinum rannsókn-
unum reyndist það lægra eða frá 0,59 (16) til
0,93 (17).
Svœðisdreifing: Island (3) og Færeyjar (6,7)
eru einu löndin sem okkur er kunnugt um, þar
sem kannanir á nýgengi svæðisgarnabólgu hafa
náð til heillar þjóðar. Samkvæmt fyrirliggjandi
rannsókn dreifðist sjúkdómurinn um allt land-
ið með nokkrum mun á nýgengi milli kjör-
dæma, en sá munur var ekki tölfræðilega
marktækur. Rannsóknir í Svíþjóð (10-12),
Englandi (13-15) og Þýskalandi (18,19) benda
til þess að munur á nýgengi sé yfirleitt ekki
mikill milli svæða innan sama lands.
Ættgengi: Hjá sex sjúklingum (8%) fengust
upplýsingar um náinn ættingja, oftast foreldri,
systkini eða barn, með staðfestan þarmabólgu-
sjúkdóm. Þetta er svipað hlutfall og í Noregi
(9), Skotlandi (16) og Danmörku (20). Þar sem
könnun okkar var afturskyggn og byggði ein-
ungis á hefðbundnum upplýsingum í sjúkra-
skrám, má gera ráð fyrir, að ættgengi sjúk-
dómsins hér á landi sé hærra en þessi tala gefur
til kynna.
Lokaorð
Nýgengi svæðisgarnabólgu á íslandi hefur
farið vaxandi síðustu áratugi, en er þó enn
fremur lágt miðað við nágrannalöndin. Það að
aldurstengt nýgengi sé hæst hjá fólki eldra en
60 ára er óvenjulegt og byggist fyrst og fremst á
fjölgun tilfella af ristilbólgu í þessum hópi.
Við álítum, að þessi aukning á nýgengi svæð-
isgarnabólgu sé raunveruleg og ekki til komin
vegna bættrar greiningar eða ítarlegri leitar að
sjúkdómnum. Æskilegt er að áfram verði fylgst
með hegðun hans hér á landi.
Þakkir
Höfundar færa Vísindaráði bestu þakkir
fyrir fjárstuðning, læknunum Gunnari Sigurðs-
syni og Jónasi Hallgrímssyni fyrir yfirlestur og
góðar ábendingar og meltingarsérfræðingum
og fjölmörgum öðrum læknum víðs vegar á
landinu fyrir veittar upplýsingar um sjúkling-
ana og aðgang að sjúkraskrám. Erni Ólafssyni
tölfræðingi er þökkuð tölfræðileg aðstoð.
HEIMILDIR
1. Kirsner JB. Inflammatory BowelDisease.Part I: Nature
and Pathogenesis. DM 1991; 37: 605-66.
2. Kirsner JB. Inflammatory Bowel Disease, Part II: Clin-
ical and Therapeutic Aspects. DM 1991; 37: 671-746.
3. Bjömsson S, Þorgeirsson P, Guðnason Þ. Morbus
Crohn á Islandi 1950-1979. Faraldsfræðileg könnun á 30
ára tímabili. Læknablaðið 1981; 67: 238-44.
4. Björnsson S. Inflammatory bowel disease in Iceland dur-
ing a 30-year period 1950-1979. Scand J Gastroenterol
1989; 24/Suppl. 170: 47-9.
5. Lennard-Jones JE. Ciassification of inflammatory bowel
disease. Scand J Gastroenterol 1989; 24/Suppl.l70: 2-6.
6. Roin F, Roin J. Inflammatory bowel disease in the Fa-
roe Islands 1981-1988. A prospective epidemiological
study; primary report. Scand J Gastroenterol 1989; 24/
Suppl.170: 44-6.
7. Berner L, Kiær T. Ulcerative colitis and Crohn’s disease
on the Faroe Islands 1964-83. A retrospective epidemi-
ological survey. Scand J Gastroenterol 1986; 21:188-92.
8. Munkholm P, Langholz E, Nielsen OH, Kreiner S,
Binder V. Incidence and prevalence of Crohn’s disease
in the county of Copenhagen 1962-87; a sixfold increase
in incidence. Scand J Gastroenterol 1992; 27: 609-14.
9. Haug K, Schmmpf E, Halvorsen JF, Fluge G, Hamre E,
Hamre T, et al. Epidemiology of Crohn’s disease in
Western Norway. Scand J Gastroenterol 1989; 24:
1271-5.
10. Nyhlin H, Danielsson A. Incidence of Crohn’s disease in
a defined population in Northern Sweden 1974-1981.
Scand J Gastroenterol 1986; 21: 1185-92.
11. Ekbom A, Helmick C, Zack M, Adami HO. The Epide-
miology of Inflammatory bowel disease: A large pop-