Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.1996, Blaðsíða 20

Læknablaðið - 15.06.1996, Blaðsíða 20
446 LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 tveggja í fyrri hluta rannsóknarinnar. Fyrir meðferð var meðalslagþrýstingur liggjandi 168 ± 13 mmHg og lagþrýstingur liggjandi 100 ± 5 mmHg. Samsvarandi gildi standandi voru 165 ± 15 og 104 ± 5 mmHg. Eftir fjögurra vikna meðferð kom í ljós að átta sjúklingar þurftu viðbótarskammt (50 mg) af kaptóprfli, auk 12,5 mg af hýdróklórtíasíði, en 17 héldu áfram með 25 mg skammt. í lok fyrri hluta rannsókn- arinnar var blóðþrýstingur liggjandi 148 ± 16 og 88 ± 6 mmHg, en standandi 139 ± 18 og 88 ± 9 mmHg. í síðari hluta rannsóknarinnar var gerður samanburður á blóðþrýstingslækkandi verkun hýdróklórtíasíðs í skömmtunum 6,25 og 12,5 mg ásamt fyrri skammti kaptóprfls. Meðal- blóðþrýstingur á lægri skammtinum var 152 ± 14 og 92 ± 8 mmHg liggjandi, en 144 ± 12 og 91 ± 10 mmHg standandi. Af stærri lyfjaskammt- inum varð meðalþrýstingur 145 ± 15 og 89 ± 9 mmHg liggjandi en 139 ± 17 og 91 ± 11 mmHg standandi. Slagþrýstingur liggjandi var mark- tækt lægri við 12,5 mg en 6,25 mg af hýdróklór- tíasíði (p>0,02). Hins vegar var ekki marktæk- ur munur á lagþrýstingi þótt hann væri að með- altali 2 mmHg lægri á hærri skammtinum af tíasíði. Ef borin voru saman áhrif 6,25 mg af hýdróklórtíasíði og kaptópríls án tíasíðs reynd- ist munurinn á liggjandi slagþrýstingi vera um 5 mmHg og lagþrýstingi 3 mmHg. Þessi munur var í hvorugu tilviki marktækur. Við 12,5 mg skammt af hýdróklórtíasíði var þrýstingsmun- urinn meiri eða um 12 mmHg í slagþrýstingi og 5 mmHg í lagþrýstingi. í báðum tilvikum var þessi munur marktækur (p<0,01 og <0,02). í öllum tilvikum var blóðþrýstingur í liggjandi stöðu marktækt (p<0,01) lægri ef virk meðferð var borin saman við lyfleysu. Ekki reyndist marktækur munur milli hópa hvort sem sjúk- lingar fengu 25 eða 50 mg af kaptópríli. Ekki kom heldur marktækur munur fram á blóð- þrýstingi hvort sem byrjað var á 6,25 eða 12,5 mg skammti af tíasíði. Tafla I sýnir að fall slagþrýstings við að standa upp var að meðal- tali 3 mmHg án lyfja, en jókst í 6-12 mmHg á virkri meðferð. Enginn verulegur munur kom fram á lagþrýstingi. í upphafi meðferðar voru meðalgildi kalíums í sermi 4,0 ± 0,25 mmól/1. í lok fyrri hluta rannsóknar voru kalíumgildi 3,8 ± 0,3 mmól/1, við 6,25 mg skammt af tíasíði voru meðalgildin 4,0 ± 0,3 mmól/1, við 12,5 mg skammt voru þau 3,9 ± 0,2 mm/1 og loks í lok rannsóknar meðan sjúklingar tóku kaptópríl án tíasíðs voru meðalgildin 4,1 ± 0,3 mm/1. Munurinn reyndist einungis marktækur (p<0,01) ef kalíumgildi voru borin saman ann- ars vegar án tíasíðlyfja og hins vegar á 12,5 mg skammtinum. Einn sjúklingur hafði lágt ka- líumgildi (3,4 mmól/1) fyrir lyfjagjöf. Kalíum- gildi hjá honum voru 3,0 og 3,3 mmól/1 við 12,5 mg skammt af tíasíði en 3,2 mmól/1 við 6,25 mg. Aðeins einn sjúklingur annar hafði ka- líumgildi undir 3,5 mmól/1. Kalíurn mældist hjá honum 3,3 og 3,8 mmól/1 á 12,5 mg skammti af tíasíði. Meðalgildi kreatíníns f sermi voru 98 ± 16 mmól/1 í upphafi rannsóknar. Þau voru 93 ± 16 mm/1 á 6,25 mg skammti af tíasíði, 93 ± 15 mmól/1 á 12,5 mg skammti og loks 101 ± 21 mmól/1 meðan rannsóknarhópurinn tók aðeins kaptóprfl án tíasíðs. í engum tilvikum var þessi munur marktækur. Aðeins einn sjúklingur hafði hærra kreatínín í sermi en 120 mmól/1 (134-144 mmól/1). Enginn marktækur munur mældist á kalíum í þvagi. Tafla II sýnir hlut- fallslega tíðni hjáverkana og var hún fundin með því að reikna þann fjölda einstaklinga sem tilkynnti annað hvort engar hjáverkanir, smá óþægindi eða veruleg óþægindi. Einnig sýnir taflan hvers eðlis hjáverkanirnar voru. I engum tilvikum voru slík brögð að hjáverkunum að sjúklingar þyrftu að hætta þátttöku í rannsókn- inni. Umræða Rannsókn okkar staðfestir, að unnt er að lækka blóðþrýsting marktækt með gjöf kaptó- prfls og tíasíðlyfja í litlum skömmtum (5). Líkt og í fyrri rannsókn okkar kom í ljós lækkun á blóðþrýstingi, sem mældur var liggjandi, við tíasíð skammtinn 12,5 mg ásamt kaptóprfli í samanburði við kaptóprfl án tíasíðs. Munurinn á slagþrýstingi nemur 9-12 mmHg, en 6-7 mmHg á lagþrýstingi. Þessi munur er mikil- vægur, því samkvæmt faraldsfræðilegum gögn- um ætti 7,5 mm lækkun lagþrýstings að hafa í för með sér fækkun heilaáfalla um 46% og kransæðaáfalla um 29% (6). Rannsóknir á af- drifum sjúklinga á lyfjameðferð vegna háþrýst- ings staðfestir fyrri tilgátuna, en ágreiningur er um hina síðari (7). Raunar hafa flestar um- fangsmestu rannsóknirnar tekið til þvagræsi- lyfja og 8-blokka, en óvissa ríkir enn um ávinn- ing af töku angíótensín ummyndunarblokka og kalsíumblokka. Því hafa opinberir aðilar í ýms- um löndum lagt áherslu á notkun fyrrnefndu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.