Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.06.1996, Page 27

Læknablaðið - 15.06.1996, Page 27
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 453 Yngsti sjúklingurinn var 19 ára en sá elsti 96 ára. Sjúklingar með hægri ristilkrabbamein voru 106 (60%) en 72 (40%) með vinstri. Nán- ari staðsetning æxlanna er sýnd í töflu I. Kannað var nýgengi hægra og vinstra krabbameins á fyrrgreindu tímabili og athugað hvort um marktækar breytingar væri að ræða milli ára. Farið var yfir einkenni sjúklinga við greiningu og lagt mat á hversu mikil töf varð á greiningu æxlanna. Skráð voru fyrstu blóð- rauðagildi og sökk í þeirri innlögn sem leiddi til greiningar. Allir sjúklingarnir voru stigaðir samkvæmt stigunarkerfi Dukes (sjá töflu II). Af 178 sjúk- lingum gengust 167 undir skurðaðgerð, þar af fóru 127 í læknandi aðgerð (curative) en 39 í Table I. The sile ofcolonic carcinoma in patients diagnosed at Landspítalinn University Hospital 1980-1992. Localization n=175* (%) Coecum 48 (27) Right colon / flexure 28 (16) Transverse colon / flexure 26 (15) Descending colon 18 (10) Sigmoid colon 54 (31) Polyposis coli 1 (1) * Information on site lacking in three cases. Table II. Duke’s classification*(17). Duke’s stage A: Tumor localized to colonic wall B: Tumor growth through wall into adjacent tissue C: Metastasis to regional lymph nodes „D“: Metastasis in omentum, peritoneum or distant metastasis i.e. outside operative field The orginal Duke's classification did not include „Du stage. líknandi (palliative). Ellefu sjúklingar fengu enga sérhæfða meðferð. Þrettán þeirra sem fóru í skurðaðgerð fengu viðbótarmeðferð, þar af sjö lyfjameðferð en sex geislameðferð. Tólf sjúklingar af 167 er fóru í aðgerð létust innan 30 daga frá aðgerðinni (skurðdauði 7,2%). Sé hins vegar eingöngu litið til þeirra sem fóru í læknandi aðgerð var skurðdauði 5%. í töflu III sjást aðgerðir þessara 12 sjúk- linga og lífshorfur. Með líftöflum Kaplan-Meier voru reiknaðar lífshorfur sjúklinganna við greiningu (11). Sjúklingar, sem dóu í aðgerð voru teknir með í útreikninga. Við samanburð á stigun og lífs- horfum var beitt kí-kvaðratsprófi en t-prófi við aðra útreikninga. Með fjölbreytugreiningu Cox ( Cox multivariate analysis) var athugað hvort tilteknar breytur hefðu sjálfstæð mark- tæk áhrif á lífshorfur. Marktekt í útreikningum miðast við p-gildi 0,05. Niðurstöður Hægri og vinstri ristilkrabbamein, sem greindust á Landspítalanum á þriggja ára tíma- bilum frá 1980-1991, eru sýnd á mynd 1. Ekki reyndist vera marktæk aukning milli tímabila hvorki hjá hægri né vinstri æxlum. Hlutfall hægri/vinstri æxla var óbreytt á rannsóknar- tímabilinu (p>0,05). Af 178 sjúklingum greindust 168 vegna ein- kenna en fjórir greindust fyrir tilviljun og upp- lýsingar vantaði hjá sex sjúklingum (tafla IV). Meðal sjúklinga með krabbamein í hægri hluta ristils voru algengust blóðleysiseinkenni og kviðverkir en hjá sjúklingum með vinstri ristil- krabbamein var blóð í hægðum algengast ásamt kviðverkjum. Table III. Patients that died whithin 30 days of operation for colonic carcinoma at Landspítalinn University Hospital1980-1992*. Right/ left Age (years) Sex Year of diagnosis Duke’s stage Operation Survival (days) Right 87 Female 1985 c Right colectomy 9 Right 83 Male 1988 D Transversectomy 23 Right 72 Male 1981 D Left colectomy 7 Right 79 Female 1980 D Right colectomy 5 Right 57 Female 1984 D Right colectomy 15 Left 44 Male 1988 D Left colectomy 26 Left 80 Female 1985 D Sigmoidectomy 11 Left 86 Male 1989 C Hartmanns 14 Left 86 Female 1982 ? Left colectomy 11 Left 85 Male 1989 C Hartmanns 1 Left 85 Female 1989 B Colostomy 7 Left 79 Male 1992 B Sigmoidectomy 7 * Twelve patients of 167 operated on died = 7.2% operative mortality (< 30 days)

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.