Læknablaðið - 15.06.1996, Síða 34
460
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
Notkunarmynstur
getnaðarvarnarpillunnar á íslandi
1965 til 1989
Valdís Fríöa Manfreðsdóttir1’, Laufey Tryggvadóttir2', Hrafn Tulinius3'4’, G. Birna Guömundsdóttir2’
Manfreðsdóttir VF, Tryggvadóttir L, Tulinius H,
Guðmundsdóttir GB
The pattern of use of oral contraceptives in Iceland
1965 to 1989
Læknablaðið 1996; 82: 460-4
Introduction: Around 20% of Icelandic women of
childbearing age use oral contraceptives. Know-
ledge of the health effects of oral contraceptive use
and patterns of use is of importance. Patterns of use
were studied, according to birth cohorts and age for
the years 1965 to 1989.
Material: The source of information was the pop-
ulation based databank of the Cancer Detection
Clinic of the Icelandic Cancer Society, where in-
formation regarding reproductive factors and birth
control exists for over 80% of Icelandic women.
Around 74,000 women gave information in the
study period.
Kesults: Over 90% of women born after 1944 had
used oral contraceptives. However, 20% had stop-
ped after a year or less. One third had used the pill
for more than four years.The age distribution of
women taking oral contraceptives changed during
the study period. Use decreased in the age groups 30
years or older, whereas it increased in younger
women. Of users born in 1960-67, 80% had started
Frá '’Landspítalanum, 2,Tölvinnustofu Krabbameinsfélags
Islands, 3)Krabbameinsskrá Krabbameinsfélags íslands,
4|læknadeild Háskóla Islands. Fyrirspurnir, bréfaskipti:
Laufey Tryggvadóttir, Tölvinnustofu Krabbameinsfélags ís-
lands, Skógarhlíð 8, Pósthólf 5420,125 Reykjavík.
Lykilorð: Getnaðarvarnarpillan, notkunarmynstur.
before the age of 20 and 33% before the age of 17.
Conclusion: This descriptive study shows that oral
contraceptive use is common among Icelandic wom-
en and that use under the age of 20 has rapidly
increased since the early seventies.
Ágrip
Inngangur: Um 20% íslenskra kvenna á
barneignaraldri nota getnaðarvarnarpilluna.
Því er mikilvægt að fylgjast með heilsufars-
áhrifum og notkunarmynstri lyfsins. Hér er
greint frá rannsókn á notkun, eftir fæðingar-
hópum og aldri, á árunum 1965 til 1989.
Efniviður: Notaðar voru upplýsingar úr
gagnasafni Leitarstöðvar Krabbameinsfélags
Islands, sem er sérstætt vegna þess að stór hluti
íslenskra kvenna, eða yfir 80%, hefur gefið
upplýsingar. Um 74.000 konur svöruðu á tíma-
bilinu.
Niðurstöður: Yfir 90% kvenna seni fæddar
voru eftir 1944 höfðu prófað pilluna, en hins
vegar hafði fimmtungur þeirra hætt eftir ár eða
fyrr. Notkun í meira en fjögur ár var skráð hjá
þriðjungi hópsins. Aldursdreifing kvenna sem
tóku pilluna breyttist á rannsóknartímabilinu.
Notkun dróst saman hjá konum eldri en 30 ára,
en jókst hjá yngri konum. Meðal notenda sem
fæddust á árunum 1960-1967 höfðu 80% byrjað
fyrir tvítugt og 33% fyrir 17 ára aldur.
Ályktun: Niðurstöður þessarar lýsandi rann-
sóknar sýna að notkun getnaðarvarnarpillu er
almenn meðal íslenskra kvenna og að notkun
undir tvítugsaldri hefur aukist hratt síðan
snemma á áttunda áratugnum.