Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.1996, Síða 37

Læknablaðið - 15.06.1996, Síða 37
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 461 Inngangur Arið 1955 kynnti læknirinn Gregory Pincus hugmyndir um notkun kynhormóna til getnað- arvarna og 1956 var getnaðarvarnarpillan í fyrsta sinn notuð í tilraunaskyni á konum á eyjunni Puerto Rico. Árið 1960 komst hún á almennan markað í heiminum og sama ár hófst notkun hennar á Islandi (1). Samkvæmt sölu- tölum tóku um 20% íslenskra kvenna, á aldrin- um 15-44 ára, pilluna á árunum 1976-1990, sem var svipuð meðalnotkun og á hinum Norður- löndunum (2). Ekki hafa áður verið birtar ýtarlegar niður- stöður rannsókna á notkun getnaðarvarnar- pillunnar hjá íslenskum konum, eftir aldri og fæðingarhópum, eða á tímalengd notkunar. Hjá Krabbameinsfélagi íslands hefur verið safnað gögnum sem nota má til að kanna notk- unarmynstur getnaðarvarnarpillunnar auk þess að kanna tengsl hennar við líkur á að greinast með ákveðin krabbamein. Pillan er talin hafa verndandi áhrif gegn eggjastokka- og legbolskrabbameini en auka lítillega líkur á lifrarkrabbameini. Hugsanlega eykur hún lík- ur á krabbameini í leghálsi og á brjóstakrabba- meini hjá ungum konum (3). Verið er að rann- saka það síðastnefnda hjá krabbameinsfélag- inu, en nýlegar erlendar rannsóknir benda til þess að pillan geti aukið líkur á brjóstakrabba- meini hjá ungum konum, sem hafa notað hana í fjögur ár eða lengur fyrir tvítugt. Rannsókn- arniðurstöður eru þó langt frá því að vera sam- hljóða varðandi þetta atriði og því þörf á nán- ari athugunum, en konur sem gátu hafið notk- un pillunnar svo ungar eru nýlega komnar á þann aldur að brjóstakrabbamein fari að koma fram (4-6). Hér er greint frá lýsandi rannsókn á notk- unarmynstri getnaðarvarnarpillunnar á Islandi á árunum 1965-1989, sem byggir á gagnasafni Krabbameinsfélagsins. Efniviður og aðferðir Heilsusögubanki Leitarstöðvar Krabba- meinsfélags íslands hefur að geyma svör við spurningum varðandi blæðingar og fæðinga- sögulega þætti kvenna sem mætt hafa í legháls- og brjóstakrabbameinsleit, sem boðað er í ann- að hvert ár. Heilsusöguspurningarnar hafa breyst umtalsvert frá 1964 er gagnasöfnunin hófst. í upphafi takmarkaðist leitin við konur á höfuðborgarsvæðinu á aldrinum 25-59 ára. Árið 1969 var allt landið orðið eitt leitarsvæði og voru efri aldursmörkin jafnframt hækkuð í 69 ár. Leitaraldurinn var færður niður í tvítugt árið 1988 (7). Konurnar voru upphaflega spurðar heilsusöguspurninga í hvert skipti er þær mættu, en frá 1986 voru þær aðeins spurðar á 15 ára fresti. í árslok 1989 hafði verið safnað svörum frá um 74.000 konum sem höfðu svarað einu sinni til sex sinnum. Um 80% allra íslenskra kvenna á aldrinum 20-69 ára höfðu svarað heilsusögu- spurningum á árunum 1964-1989 og þær konur sem fæddar voru á árunum 1930-1949 höfðu nánast allar svarað (97%) (8). Frá 1964 var spurt um notkun getnaðarvarn- arpillunnar og frá 1975 um tímalengd notk- unar. Allan tímann hefur verið spurt um „nú- verandi notkun“ og frá 1971 einnig um fyrri notkun. Frá 1979 hefur tegund verið skráð. Á árunum 1964 og 1971-1974 voru upplýsingar um notkun getnaðarvarnarpillunnar ófullnægjandi og er þeim árum sleppt í þessari rannsókn. Ekki eru til upplýsingar um aldur við upphaf notkunar nema frá tímabilinu apríl 1991 til des- ember 1992, er spurningu þar að lútandi var bætt við tímabundið, en 14.344 konur svöruðu þessari viðbótarspurningu. Stuðst var við upplýsingar frá konum á aldr- inum 20-44 ára varðandi notkun á hverjum tíma, alls 112.388 svör. Við úrvinnslu tíma- bundnu spurningarinnar um aldur við upphaf notkunar getnaðarvarnarpillunnar voru notuð öll svör, óháð aldri við svar. Þótt tegund pillunnar hafi verið skráð frá 1979, er þess ekki getið á hvaða tíma hver tegund var notuð, auk þess sem aðeins um 75% kvenna virtust muna hvaða tegund þær notuðu. Til að fá mynd af breytingum með tímanum var því notast við upplýsingar frá Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu 1975-1992, en þó vantaði þær upplýsingar fyrir árið 1977. Til að kanna réttmæti upplýsinga í heilsu- sögubankanum, um hlutfallslega notkun pill- unnar, var notkunin hjá konum sem mættu í leitarstöðina borin saman við sölutölur frá Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu fyrir tímabilið 1978-1989. Fyrir þennan og ann- an samanburð þurfti að aldursstaðla, því að notkun getnaðarvarnarpillu er tengd aldri, auk þess sem aldursdreifing þeirra sem mæta í leit- ina er breytileg og ólík aldursdreifingu þjóðar- innar. Tvenns konar aldursdreifingarstaðlar voru notaðir. Fyrir samanburð milli ára var

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.