Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.06.1996, Side 53

Læknablaðið - 15.06.1996, Side 53
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 Þakkarorð 475 m íkjali \m cr slaijtsí aó (Olafur -s iiim4iáí!iii var einróma kjárínn, hnkríféiaji iíiknafclags Jsianlí a aóalfundi jckpm 29.-30.9.1995 vtqna slarja braufriiíjanda á sviii lijjliikmnja cq ijrir mikilvagt Jramla^ iil ktmiílw oq þjáljunar laknisejna fijmL C ,t>f;n affela# IJiiiife Ég vil þegar taka fram, að mér er kær sú nafnbót sem ég hefi nú verið sæmdur. Hún er mér ekki lítils virði. Þó á enn heima hið fornkveðna að verk manna lofa sig sjálf ef þau eru vel af hendi leyst og lasta sig sjálf ef illa er. Aftur á móti er mönnum ekki alltaf ljóst hversu vel verk þeirra hafa heppnast hverju sinni. Svo sem segir í Nýja Testamentinu eru menn ósjaldan glámskyggnir á sjálfa sig, þekkja ekki hug sinn, sjá flísina í auga bróður síns en greina ekki bjálkann í eigin auga. Menn eru iðulega í óvissu í sjálfs sín sök. Og vegna efa- semda okkar um eigið sjálf svo og sökum ílöngunar og eftir- sóknar okkar í hróður og orðstír eru viðurkenningar yfirleitt vel og þakksamlega þegnar og svo er um mig. Nafnbót er gjöf og við móttöku hennar koma í hug- ann hin kunnu orð úr Njálu, þau sem svo hljóða: „Góðar eru gjafir þínar en meira þykir mér verð vinátta þín. “ Víst er vinar- hugur okkur alla tíð mikils virði, ekki síst í elli okkar þá er hann yljar okkur og dregur úr þeirri einsemd sem þá sækir á okkur. Ég þakka ykkur kollegar og félagar í Læknafélagi Islands fyrir þann sóma sem þið hafið sýnt mér og þakka ykkur vin- fengi ykkar og gott þel. Tilnefn- ing ykkar mér til handa hefur komið með glampa af sól inn í huga minn. I gömlu miðalda- stefi segir: „Hvað er fegra en sólarsýn, þá sveimar hún yfir stjörnu- rann. Hún vermir, hún skín og hýrt gleður mann, “ Þökk sé ykkur kollegar. Þökk. Nú þegar liðin er hálf öld og hálfur áratugur betur frá lækna- prófi mínu leitar hugurinn ósjálfrátt aftur til fyrri daga. Ljósm. Lbl. Það mun vera nokkuð almenn kennd þegar horft er til baka á efri árum að þá virðist tíminn hafa liðið hratt. Svo sagði Einar Benediktsson: „Mér gleymast öll árin mín tug eftir tug, mér tíminn finnst horfinn sem örvarflug og allt sem ein augnabliks- saga. “ Og trúleysinginn mikli Shak- espeare sagði: „Og líf eins manns er sem að segja einn“, á frummálinu: „Andaman’slife's no more than to say one. “ Og tíminn breytir mörgu. Svo sem alkunna er hafa breytingar og framfarir í læknavísindum orðið geipilegar og stórfelldar á síð- ustu 55 árum, það er á minni læknisævi, miklu mun meiri en áður var í læknisfræði frá upp- hafi. Ekki verða þó raktir hér þeir margvíslegu ávinningar og sigrar, sem áunnist hafa í lækna- vísindum á því árabili. Ekki heldur verður getið þeirra sjúk- dóma, sem ekki hefur verið hægt að ráða við enn sem komið er. En hvað sem líður árangri og vandkvæðum í læknisstarfinu er það fólgið hálft í hvoru í um- hyggju fyrir öðrum. Margir vit- menn og hugsuðir hafa trúað því að einstaklingurinn ætti að þróast frá því að vera sérdrægur í að verða ósérplæginn. Einstein hélt því fram að umhyggja fyrir manninum og örlögum hans ætti alltaf að vera meginmark- mið allrar tæknilegrar viðleitni. Seinna sagði hann: „Einungis líf sem er lifað fyrir aðra er þess virði að því sé lifað. “ Það eru forréttindi læknisins að hafa at- vinnu og lifibrauð af því að hjálpa öðrum til heilsu eða bættrar líðanar. Það er líf sem er lifað fyrir aðra. Ólafur Sigurðsson

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.