Læknablaðið - 15.06.1996, Page 61
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
481
íðorðasafn lækna 78
Antimetabolite
Snemma í vor barst fyrir-
spurn um íslenskt heiti á fyrir-
bærinu antimetabolite, en það
hafði ekki fundist við uppflett-
ingu í íðorðasafni lækna. í
prentaða safninu má hins vegar
finna metabolism sem er þýtt
með íslenska heitinu efnaskipti
og metabolite sem þar er nefnt
lífefni á íslensku. Til samræm-
ingar lagði undirritaður þá til að
notað yrði að sinni heitið and-
lífefni, en þótti stirðlegt og
ákvað að skoða málið betur
þegar tóm gæfist.
Efnaskipti
Eins og alltaf, þegar við íð-
orðavinnu er fengist, var byrjað
á því að kanna hugtökin að baki
heitunum. Ekki dugir að fást
við orðin ein. Fyrst var leitað
skýringa í hinni miklu alþjóð-
legu læknis- og líffræðiorðabók
Wileys. Heitið metabolism er
þar sagt notað um heild þeirra
efnafrœðilegu ferla sem eiga sér
stað í lifandi verum, sérstaklega
þá sem hafa íförmeð sérskipti á
efnasamböndum og orku milli
frumna og umhverfis. Ljóst er
þó að heitið metabolism er
einnig notað um einstaka efna-
ferla eða söfn ferla, sem dæmi
má nefna fat metabolism, car-
bohydrate metabolism og jafn-
vel electrolyte metabolism. Is-
lenska heitið efnaskipti virðist
túlka þessa skilgreiningu dável
og heitin fituefnaskipti, sykru-
efnaskipti og rafvakaefnaskipti
fara ekki illa í munni. Nefna má
að gríska orðið metabole þýðir
breyting eða umbreyting.
Læknisfræðiorðabók Stedmans
getur þess að í efnaskiptum fel-
ist annars vegar anabolism, þœr
efnabreytingar sem breyti litlum
sameindum ístórar, og hins veg-
ar catabolism, þœr sem breyti
stórum sameindum í litlar. Ana-
bolism hefur augljóslega valdið
erfiðleikum þegar leitað var að
íslensku heiti. Iðorðasafnið gef-
ur fjórar þýðingar: aðlífun, til-
lífun, tillífgun og flifun. Ekki
hefur verið neitt auðveldara að
komast að niðurstöðu um cata-
bolism: frálífun, efnismolun og
sundrunarferli. I Islenskri orða-
bók Máls og menningar finnst
að auki orðið úrlífun og er það
talið samheiti við frálífun.
Gríska forskeytið ana- merkir
upp, aftur eða til baka, en kata-
er andheiti þess og merkir nið-
ur. Heitið anabolism er því not-
að um uppbyggingu lífrænna
efna, en catabolism um niður-
brot. Undirrituðum er ekki
kunnugt um uppruna orðhlut-
ans -lífun, en í orðabók Máls og
menningar er hann ekki út-
skýrður með öðru en tilvísun í
frálífun og úrlífun. Lífun er að
ýmsu leyti gott heiti þegar vísa
skal í lífræna starfsemi, en það
virðist ekki hafa náð vinsældum
í öllum herbúðum. Efnalífun
gæti þó verið heiti á lífrænum
efnabreytingum, efnaskiptum.
Metabolite
Læknisfræðiorðabók Sted-
mans skilgreinir á þann veg að
metabolite sé sérhver afurð
(fœðuefni, milliefni, úrgangs-
efni) efnaskipta, sérstaklega
frálífunar. I því samhengi er líf-
efni vafalítið vel samrýmanlegt
íslenskt heiti. Þó finnst undirrit-
uðum nú að betri kostur sé að
taka upp heitið lífunarefni og
það má þá skýra þannig að það
sé efni sem tekur þátt í eða verð-
ur til við efnalífun. Þessari hug-
mynd til varnar má búa til þær
einföldu orðskýringar að lífefni
sé hvert það efni sem nauðsyn-
legt er lífi, en að lífunarefni séu
einungis þau efni sem tengjast
efnalífun, efnaskiptum. Um
leið fæst lausn á upphaflega
verkefninu. Antimetabolite
heitir þá andlífunarefni. Skil-
greining Stedmans á antimeta-
bolite er þessi: efni sem keppir
við, kemur í stað eða verkar
gegn tilteknu lífunarefni. Rétt er
að minna á að heitin andefni og
mótefni eru þegar frátekin um
önnur en þó að vissu leyti sam-
bærileg hugtök.
Lagfæringar
Eistalyppa (epididymis) ligg-
ur á eista aftanverðu og skiptist í
höfuð (caput), bol (corpus) og
rófu (cauda). Frá eistalyppu-
rófu liggur sáðrás (ductus defer-
ens) sem með aðlægum æðum
og taugum myndar kólfinn (fun-
iculus spermaticus), en hann
gengur í gegnum náragöngin
(canalis inguinalis). Sæðis-
blöðrungur (vesicula seminalis)
hét sáðblaðra í prentaða íð-
orðasafninu, en nú hefur verið
skipt um hið íslenska heiti, sjá
Líffæraheitin bls. 108. Frá sæð-
isblöðrungi gengur sæðisblöðr-
ungsrás (ductus excretorius ves-
iculae seminalis), sem áður hét
sáðblöðrupípa, og sameinast
sáðrásinni. Þá tekur við sáð-
fallsrás (ductus ejaculatorius),
en sú rás hafði óheppilegt heiti í
prentaða íðorðasafninu, út-
varpsrás. Sáðfallsrásin opnast
inn í hvekkshluta þvagrásar
(pars prostatica urethrae).
Hvekkur (prostata) heitir einn-
ig blöðruhálskirtill (glandula
prostatica).
Jóhann Heiðar Jóhannsson