Læknablaðið - 15.06.1996, Side 64
484
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
Framtíðarhlutverk
Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur
Tillögur stjórnar Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur.
1. Inngangur
Ákvæði til bráðabirgða nr. 1 í
lögum um heilbrigðisþjónustu
nr. 97/1990 kveður á um að
heilsuverndarstarf í Reykjavík
skuli haldast óbreytt til ársloka
1994 en þá skulu heilsugæslu-
stöðvar hafa verið skipulagðar
til að annast það. Sérstakri
þriggja manna stjórn er ætlað að
annast rekstur Heilsuverndar-
stöðvar Reykjavíkur og vinna
að endanlegri gerð áætlunar um
framtíðarhlutverk stöðvarinn-
ar.
í samræmi við ofangreint
ákvæði hafa áætlanir um fram-
tíð Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur verið lagðar fram
af stjórnum stofnunarinnar, sú
fyrsta í nóvember 1991, og má
lesa um þessar hugmyndir og af-
drif þeirra í fylgiskjölum með
tillögum þessum. Þar sem ekki
hefur náðst sátt um tillögurnar
og þær ekki komið til fram-
kvæmda hefur gildistími bráða-
birgðaákvæðisins verið fram-
lengdur ár frá ári um eitt ár í
senn og því breytt lítilega.
Á þessum árum hefur hlut-
verk Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur verið rætt víða og
Meðfylgjandi tillögur stjórnar
Heilsuverndarstöðvar Reykja-
víkur, sem birtar voru 6. maí,
munu hafa mikil áhrif á skipun
heilbrigðisþjónustu í Reykja-
vík, komi þær til framkvæmda.
Rétt þótti því að birta þær hér.
margvíslegar tillögur settar
fram um breytingar og þróun
stofnunarinnar.
2. Stjórn Heilsuverndar-
stöðvarinnar
Núverandi stjórn Heilsu-
verndarstöðvar Reykjavíkur er
skipuð af heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðherra með neðan-
greindum hætti: Ragnheiður
Haraldsdóttir formaður, Óttar
Guðmundsson tilnefndur af
Tryggingaráði, Guðrún Ágústs-
dóttir tilnefnd af borgarstjórn
Reykjavíkur.
Stjórnin hefur annast rekstur
Heilsuverndarstöðvarinnar og
kynnt sér vel þá starfsemi sem
þar fer fram. Hún hefur hlýtt á
yfirmenn deilda gera grein fyrir
starfsemi sinna eininga, heim-
sótt deildir og skipst á skoðun-
um við stjórnendur og starfs-
fólk. Hún hefur kynnt sér sögu
stofnunarinnar og fyrri áætlanir
um starfsemi hennar. Þá hefur
stjórnin skoðað samhengi þeirr-
ar þjónustu sem veitt er á
Heilsuverndarstöðinni og ann-
arrar heilbrigðisþjónustu.
Núverandi stjórn Heilsu-
verndarstöðvarinnar setti sér
það markmið að leggja fram til-
lögur sem væru líklegar til að
tryggja almenningi að minnsta
kosti jafn góða þjónustu og þá
sem nú er veitt, kostnaður yrði
minni og hugmyndirnar væru til
þess fallnar að efla umræðu um
heilsuverndarstarfið og þróun
þess. Mikilvægt þótti að rjúfa þá
kyrrstöðu sem ríkt hefur frá
lagasetningunni og eyða óvissu
starfsfólks Heilsuverndarstöðv-
arinnar og annarra um framtíð-
ina.
3. Tillögur
3.1. Framtíðarstarf Heilsu-
verndarstöðvar Reykjavíkur
Stjórn Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur leggur til að stofn-
unin verði lögð niður í núver-
andi mynd. Mæðra- og ung-
barnaeftirlit flytjist í auknum
mæli til heilsugæslustöðva en
sameinist að öðru leyti sam-
bærilegum einingum á Land-
spítalanum. Heimahjúkrun
flytjist einnig í auknum mæli til
heilsugæslustöðva en þær sam-
einist um miðstöð til að mæta
sveiflukenndu álagi heima-
hjúkrunar. Aðrar einingar verði
endurskipulagðar eða lagðar
niður.
Hér á eftir verður gerð grein
fyrir starfsemi Heilsuverndar-
stöðvar Reykjavíkur eftir deild-
um og hugmyndum stjórnar
stofnunarinnar um hvernig
koma megi starfseminni fyrir
með öðrum hætti.
Mœðraeftirlit og ungbarnaeftir-
lit
Lagt er til að mæðradeild
verði sameinuð svipaðri starf-
semi á kvennadeild Ríkisspítala
og ungbarnaeftirlit verði með
sama hætti sameinað svipaðri
starfsemi á göngudeild Barna-
spítala Hringsins. Flestar skoð-
anir barna og barnshafandi
kvenna fari fram á heilsugæslu-
stöðvum, en þangað komi sér-
fræðingar á þessum sviðum til
ráðgjafar. Starfsfólk heilsu-
gæslustöðva, læknar, hjúkrun-
arfræðingar og ljósmæður eigi