Læknablaðið - 15.06.1996, Qupperneq 66
486
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
án tillits til efnahags og áhuga
foreldra.
Skólaheilsugœsla
Skólaheilsugæsla hefur flust
til heilsugæslustöðvanna og er
sinnt í skólunum. Skipulag
skólaheilsugæslu er ekki nema
að litlu leyti hjá Heilsuverndar-
stöðinni en þar eru vistaðar
nokkrar stöðuheimildir þeirra
er vinna á þessu sviði. Mikilvægi
skólaheilsugæslu eykst með ári
hverju þar sem skólarnir eru oft
og einatt besta leið heilbrigðis-
þjónustunnar til að ná til barna
og unglinga í vanda. Pví er það
áhyggjuefni að ekki sé lögð
meiri áhersla á þennan þátt en
raun ber vitni. Stjórn Heilsu-
verndarstöðvar Reykjavíkur
leggur til að Samstarfsráði
heilsugæslunnar í Reykjavík
verði falið að gera tillögur um
hvernig tryggja megi að þessi
þjónusta verði ekki látin víkja í
framtíðinni.
Rannsóknastofa
Lögð niður. Verkefni flytjist
með viðkomandi deildum.
Starfsemi stjórnsýslu
Sameiginleg skrifstofa fyrir
stjórnsýslu heilsugæslustöðva í
Reykjavík er talin gefa góða
raun og er gert ráð fyrir að sú
stjórnunareining verði áfram til
þó starfsemi Heilsuverndar-
stöðvar Reykjavíkur verði flutt
eða lögð niður.
3.2. Forvarnamiðstöð
í ýmsum fyrri tillögum um
framtíðarhlutverk Heilsuvernd-
arstöðvar Reykjavíkur er gert
ráð fyrir að stofnuninni verði
breytt í forvarnamiðstöð er
þjóni landinu öllu. Stjórn
Heilsuverndarstöðvar Reykja-
víkur telur að þar sem sú starf-
semi er nú fer fram á Heilsu-
verndarstöðinni er ólík um
margt þeirri starfsemi sem fram
myndi fara á miðstöð forvarna
fyrir landið allt, sé betri kostur
að leggja Heilsuverndarstöðina
niður og hefja starfsemi for-
varnamiðstöðvar á nýjum
grunni.
Stjórn Heilsuverndarstöðvar-
innar telur skynsamlegt að sett
yrði á laggirnar forvarnamið-
stöð sem myndi þjóna heilsu-
gæslustöðvum og innan veggja
hennar væru ýmis ráð, nefndir
og stofnanir er nú sinna for-
vörnum. Má þar nefna tóbaks-
varnaráð, manneldisráð, um-
ferðarráð, áfengisvarnaráð og
fleiri. Þessar stofnanir gætu
sameinast um yfirstjórn og stoð-
þjónustu og tengst með góðum
árangri. Jafnframt yrði stofn-
settur forvarnasjóður, er fengi
úthlutað árlega fjármagni á fjár-
lögum og úthlutaði til ýmissa
verkefna á sviði forvarna.
3.3 Húsnœði Heilsuverndar-
stöðvar Reykjavíkur
í umræðunni um hlutverk
Heilsuverndarstöðvar Reykja-
víkur er oft blandað saman hús-
næði og stofnun. Stjórn Heilsu-
verndarstöðvar Reykjavíkur
tekur ekki afstöðu til tillagna
um nýtingu á húsnæði stöðvar-
innar. Þó skal á það minnt að
saga stofnunar og húss er sam-
tvinnuð og því ef til vill eðlilegt
að stefnt verði að því að húsið
hýsi áfram heilbrigðisþjónustu.
Vel má hugsa sér að þær ein-
ingar sem áfram störfuðu væru
til húsa í Heilsuverndarstöð-
inni, það er sameinað mæðra-
eftirlit, sameinað ungbarnaeft-
irlit og hugsanlega heimahjúkr-
un. Þá gæti einnig komið til
greina að göngudeildarþjónusta
á Vífilsstöðum sem tengist
berkla- og lungnasjúkdómum
flyttist í húsnæði Heilsuvernd-
arstöðvarinnar.
4. Lokaorð
Starfsfólk Heilsuverndar-
stöðvar Reykjavíkur hefur búið
við óvissu um framtíð stofnun-
arinnar í nokkur ár og hefur það
á margan hátt hamlað þróun
hennar og lamað framtak.
Á Heilsuverndarstöðinni
vinnur mikið af úrvals starfs-
fólki sem aflað hefur sér mennt-
unar og reynslu á starfssviði
sínu. Því er afar mikilvægt að
tryggja að starfskraftar þess
fólks nýtist í framtíðinni með
flutningi stöðuheimilda, nái
þessar tillögur fram að ganga.
Sumt af starfseminni er barn
síns tíma og telja má að breyt-
ingar hefðu verið gerðar ef
stofnunin hefði ekki búið svo
við það ástand, sem lýst hefur
verið hér að framan. Mikilvægt
er að höggvið verði á þennan
hnút með einhverjum hætti, svo
takast megi á við annað hvort
framkvæmd þessara tillagna
eða aðrar úrlausnir.
Frá því er núverandi stjórn
Heilsuverndarstöðvar Reykja-
víkur byrjaði að undirbúa fram-
angreindar tillögur síðsumars
1995 hafa margir látið í ljósi þá
skoðun sína að rétt væri að gera
verulegar breytingar á starfsemi
Heilsuverndarstöðvarinnar.
Má þar sérstaklega benda á ný-
legt bréf landlæknis til heil-
brigðisráðherra sem er að
mörgu leyti samhljóða ofan-
greindum tillögum.
Stjórn Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur er reiðubúin til að
útfæra tillögur sínar betur sé
þess óskað eða leggja fram áætl-
anir um framkvæmd.
Með því að leggja þessar til-
lögur fyrir heilbrigðisráðherra
hefur stjórn Heilsuverndar-
stöðvar Reykjavíkur uppfyllt
hluta af starfsskyldum sínum,
en ber áfram ábyrgð á rekstri
stofnunarinnar. Þar sem tillög-
urnar fela í sér lok starfseminn-
ar er stjórn Heilsuverndar-
stöðvar Reykjavíkur reiðubúin
að segja af sér í kjölfar þeirra, sé
þess óskað.
Reykjavík, 13. mars 1996