Læknablaðið - 15.06.1996, Page 68
488
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
Þriðja vísindaþing
Félags íslenskra heimilislækna
Akureyri 18.-20. október
Á þinginu verða bæði frjálsirfyrirlestrar og spjaldþing. Kynntar verða rannsóknir
og rannsóknaráætlanir sem tengjast heilsugæslu. Auk þess verða bæði inn-
lendir og erlendir gestafyrirlestrar.
Ágrip skal skrifa á A4-blað með sama sniði og á fyrri þingum. Þar skal koma
fram tilgangur rannsóknarinnar, efniviður og aðferðir, niðurstöður og ályktanir.
Ágripum skal skilað á disklingum ásamt einu útprenti til Emils L. Sigurðssonar,
Heilsugæslustöðinni Sólvangi, 220 Hafnarfjörður fyrir 1. september.
Ágripin verða birt í sérstöku blaði þingsins sem dreift er til allra lækna á íslandi.
Flugferðir frá Reykjavík verða í tengslum við þingið.
Þingið er styrkt af Thorarensen Lyf ehf.
Þátttaka tilkynnist Jóni Steinari Jónssyni, Heilsugæslustöðinni í Garðabæ, 210
Garðabær, fyrir 15. september.
Vísindaþingsnefndin
Emil L. Sigurðsson
Jón Steinar Jónsson
Þorgils Sigurðsson
Fyrirlestur á vegum
Félags íslenskra
kvensjúkdómalækna
Anthony A. Luciano sérfræðingur í kvensjúkdómum og innkirtlasjúkdómum
kvenna við University of Connecticut Health Center Farmington Connecticut
mun halda fyririestur föstudaginn 7. júní. Fyrirlesturinn nefnist Endometriosis-
nýjungar í meðferð.
Fyrirlesturinn verður haldinn á vegum Félags íslenskra kvensjúkdómalækna á
Hótel Sögu og hefst kl. 18:00. Allir félagar í F.I.K. svo og innkirtlafræðingar eru
hjartanlega velkomnir. Sameiginlegt borðhald verður eftir fyrirlesturinn.
Stjórn F.Í.K.