Læknablaðið - 15.06.1996, Side 70
490
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
XII. þing
Félags íslenskra lyflækna
7.-9. júní á Sauðárkróki
Flogiö verður norður kl. 12:00 og 17:00 á föstudegi og suður á sunnudegi kl.
17:00. Flugfar kostar kr. 8.330 með flugvallarskatti. Farpantanir á söluskrifstof-
um Flugleiða.
Upplýsingar veitir Birna Þórðardóttir Læknablaðinu, sími 564 4104, bréfsími 564
4106.
SJÚKRAHÚS
RE YKJ AVI' KU R
Deildarlæknisstaða
á öldrunarlækningadeild
Laus er til umsóknar deildarlæknisstaða við öldrunarlækningadeild Sjúkrahúss
Reykjavíkur í Fossvogi. Staðan veitist frá 1. júní eða 1. júlí næstkomandi til allt að
eins árs. Vaktavinna er við sameiginlega vakt lyflækningadeilda. Á deildinni fer
fram fjölþætt teymisvinna við mat, meðferð og endurhæfingu aldraðra. Staðan
kemur að góðum notum fyrir þá sem hyggja á framhaldsnám í öldrunar-, lyf-,
heimilis-, geð- eða taugalækningum.
Umsókn sendist til Pálma V. Jónssonar forstöðulæknis, sem veitir allar frekari
upplýsingar í síma 525 1530.
Sjúkrahús Akraness
Svæfingalæknar
Laus er til umsóknar staða sérfræðings í svæfingalækningum við Sjúkrahús
Akraness. Um er að ræða 100% stöðu, með skilyrði um búsetu á Akranesi.
Umsóknarfrestur ertil 1. júlí, en staðan veitistfrá 1. janúar 1997. Umsóknir ásamt
upplýsinaum um nám og fyrri störf sendist framkvæmdastjóra sjúkrahússins,
Sigurði Ólafssyni, Merkigerði 9, 300 Akranes.
Frekari upplýsingar veitir Bragi Níelsson yfirlæknir í síma 431 2311.
Sjúkrahús Akraness