Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.1996, Blaðsíða 16

Læknablaðið - 15.07.1996, Blaðsíða 16
512 LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 mínútna blóðsykur. Oftast kom fram mark- tækur munur á gildi áhættuþátta er hópur 4 var borinn saman við einhvern hinna, en sjaldnar var munur milli hinna hópanna innbyrðis. Eina undantekningin við þessa almennu reglu fólst í því að meðal kvenna var hópur 2 líklegri en hópur 4 til að reykja 25 eða fleiri sígarettur, en hlutfall þeirra sem reyktu þetta magn var lítið eða um 2,6% af öllum konum. Ekki er ljóst hvers vegna karlar í hópum 1 og 2 höfðu hæstu þríglýseríðgildin. Samkvæmt skýrslu Manneldisráðs fer hlutfall orku sem fengin er úr fitu stiglækkandi með hækkandi menntastigi. Aftur á móti fer hlutfall orku úr kolvetnum stighækkandi (18). Þyngdarstuðull- inn skýrir ekki þennan mun þar sem karlar í hópi 1 voru léttari en karlar í hópi 4. Ef 90 mínútna blóðsykur er skoðaður gæti það gefið vísbendingu þar sem hópar 1 og 2 höfðu minnsta sykurþolið og þekkt tengsli eru á milli minna sykurþols og hækkunar á þríglýseríðum. Önnur möguleg skýring gæti legið í meiri áfengisneyslu þeirra meira menntuðu en við höfum ekki tölur um hana. Dönsk könnun (19) bendir raunar til hins gagnstæða. Enginn mun- ur er á næringargildi fæðu kvenna eftir skóla- göngu, hvorki með tilliti til orku, kolvetna, fitu né annarra næringarefna (18). Eftir sem áður er neikvæð fylgni milli menntunar annars vegar og þríglýseríða, kólesteróls (hópur 2) og þyngdarstuðuls hins vegar. Líkamleg hreyfing einstaklinganna var ekki metin í rannsókninni en gæti varpað ljósi á þennan mun hjá báðum kynjum. Aðrir höfundar hafa fundið að minni líkamleg hreyfing fylgi þeim sem eru minna menntaðir eða tilheyra lægri þjóðfélagsstétt (4,19-22). Erfiðara hefur gengið að sýna fram á fylgni heildarkólesteróls við þjóðfélagsstöðu. Þar hafa menn fundið jákvæða (4,21), nei- kvæða (22) og enga fylgni (19,20). Blóðþrýstingur hefur oftar sýnt neikvæða fylgni við þjóðfélagslega stöðu (19—22) og það sama er að segja um offitu eða þyngdarstuðul (4,19-22). Af öllurn þekktum áhættuþáttum kransæða- sjúkdóma vega reykingar líklega þyngst, að minnsta kosti hjá yngra fólkinu. Rannsókn okkar sýnir að reykingar eru mjög háðar menntun. Samantekt á reykingavenjum ís- lendinga fyrir árið 1989 og 1990 sem Hagvangur hf. tók saman fyrir tóbaksvarnanefnd og land- læknisembættið styður þá niðurstöðu að í hópi minna menntaðra séu fleiri sem reykja dag- lega, færri sem hafa aldrei reykt og færri sem hætta reykingum (23). Reykingakönnun á Rík- isspítölum árið 1989-1990 sýndi að reykingar þar væru háðar meðal annars starfshópum og þekkingu á skaðsemi reykinga þar sem mest menntaðir reyktu minnst (25). Aðrir höfundar erlendis hafa komist að svipaðri niðurstöðu (4,19-22). Fáar rannsóknir sýna samband menntunar eða þjóðfélagslegrar stöðu og líkamshæðar, en jákvæðu sambandi hefur þó verið lýst (4,19). Gildi líkamshæðar sem áhættuþáttar fyrir hjartasjúkdóma hefur verið lýst í nokkrum greinum (25,26) og í rannsókn Hjartaverndar var lág meðalhæð talin mögulegur áhættuþátt- ur fyrir dauða af völdum kransæðasjúkdóms (27). Rannsókn okkar er frábrugðin flestum öðr- um á þessu sviði meðal annars vegna annarra aðferða við úrvinnslu gagna. Skoðaðar voru nánar tvær nýlegar rannsóknir, önnur frá Dan- mörku (19) og hin frá Þýskalandi (20). Danska rannsóknin tók til 504 fertugra karla sem fylgt var eftir í 11 ár. Auk þekktra áhættuþátta var meðal annars kannað blýmagn í blóði, hávaði á vinnustað og heima og fleiri þættir sem ekki hafa hlotið almenna viðurkenningu sem áhættuþættir hjarta- og æðasjúkdóma. Skil- greind voru fimm þjóðfélagsstig sem tóku ekki einungis til menntunar heldur einnig starfs. Úrvinnsluaðferð Dananna gerði þeim kleift að kanna þá kenningu að einstaklingar með mikla sjúkdómsáhættu veljist eða færist í lægri þjóð- félagsstöðu eða öfugt. Þótt niðurstöður væru ekki allar á eina lund renndi rannsókn Dan- anna ekki stoðum undir þessa kenningu. Lík- legra virtist að vel menntað fólk væri móttæki- legra fyrir leiðbeiningar um heilsusamlegt líf- erni. Þýska rannsóknin byggði á stóru úrtaki karla og kvenna á aldrinum 25-69 ára. Kynin voru skoðuð sitt í hvoru lagi og til að leiðrétta fyrir mögulegum skekkjum meðal annars vegna mismunandi aldurs og hugsanlegra svæðis- bundinna áhrifa var notuð margliða aðhvarfs- greining og líktist því rannsóknin að þessu leyti meira okkar en sú danska. Niðurstaða hennar var á svipaða lund og úr okkar rannsókn, en að auki kom í ljós jákvætt samband þjóðfélags- legrar stöðu og líkamshreyfingar. Sálgerð A (type A) reyndist algengari meðal mennta- manna, en alls er óvíst að það hafi nokkur áhrif á meinþróun kransæðasjúkdóms.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.