Læknablaðið - 15.07.1996, Qupperneq 56
544
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
Stjórnun og rekstur
í heilbrigðisþjónustu
- nám samhliða starfi -
í október næstkomandi hefst á vegum Endurmenntunarstofnunar Háskóla íslands nám í
stjórnun og rekstri heilbrigðisstofnana. Námið er ætlað háskólamenntuðu fólki sem
starfar í heilbrigðisþjónustu.
Helstu námsgreinar verða: Stjórnkerfi, skipulag og uppbygging íslenskrar heilbrigðis-
þjónustu. Stjórnun, áætlanir, skipulag. Starfsmannastjórnun. Gæðastjórnun. Hagnýting
tölva, upplýsingatækni. Fjármálastjórn og reikningshald. Heilsuhagfræði. Siðferðileg mál
sem snerta heilbrigðisþjónustu. Samanburður heilbrigðiskerfa. Stefnumótun og mat á
heilbrigðisþjónustu. Stefnumótun stofnana og áætlanagerð.
Leiðbeinendur verða innlendir og erlendir sérfræðingar. Helstu íslensku kennararnir
veröa: Gísli S. Arason rekstrarhagfræðingur, Guðjón Magnússon læknir, Ingibjörg
Þórhallsdóttir hjúkrunarfræðingur, Guðrún Högnadóttir forstöðumaður, Guðbjörg
Sigurðardóttir tölvunarfræðingur og Ólafur Jón Ingólfsson viðskiptafræðingur.
Námið samsvarar um 15 eininga námi á háskólastigi. Kennslustundir eru alls 300 á
þremur misserum. Kennt er seinni hluta dags og um helgar, svo að nemendur geti
stundað vinnu sína með náminu. Kennt er einn dag í viku kl. 16:00-20:00 auk þess er
kennt föstudaga kl. 14:00-18:00 eða laugardaga 09:00-13:00.
Verð: Kostnaður er 180.000 krónur á verðlagi í janúar 1996. Upplýsingabæklingur hjá
Endurmenntunarstofnun Háskóla íslands.
Davíðsbók
Rit til heiðurs Davíð Da-
víðssyni, prófessor emerit-
us og fyrrverandi forstöðu-
lækni á Landspítala. Nán-
ari upplýsingar um ritið
veitir Háskólaútgáfan, Há-
skóla íslands, Suðurgötu,
Reykjavík, sími 525 4003
og Lífeðlisfræðistofnun
Háskóla íslands, Lækna-
garði, Vatnsmýrarvegi 16,
Reykjavík, sími 525 4835.