Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2007, Qupperneq 4
MIÐVIKudagur 16. MaÍ 20074 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Varðskip
leggur dufl
Varðskipsmenn á Ægi hafa að
undanförnu lagt fimm hlustun-
ardufl í hafið á ferð sinni um ís-
lensku efnahagslögsöguna. Duflin
eru ætluð til að hlusta eftir jarð-
skjálftum og hvalaferðum.
Landhelgisgæslan hefur unnið
við duflalagninguna fyrir Jarðvís-
indastofnun Háskóla Íslands og
Bandarísku haffræði- og veður-
stofnunina. Starfsmenn Jarðvís-
indastofnunar nota duflin til að
staðsetja jarðskjálfta betur en
áður hefur verið hægt. Líffræð-
ingur hjá Bandarísku haffræði-
og veðurstofnuninni nýtir duflin
svo við hvalaeftirlit. Hann hefur
sérhæft sig í að greina hljóð hvala
eftir tegundum og jafnvel ein-
staklingum innan sömu tegundar.
Rafmagnslaust
hjúkrunarheimili
Rafmagnslaust varð í Graf-
arvogi í um tuttugu mínútur,
rétt um klukkan hálf tólf í gær.
Bilanavakt Orkuveitu Reykja-
víkur segir ekki ljóst hvað olli.
Rafmagnslaust varð á hjúkrun-
arheimilinu Eir. Þar voru eldri
borgarar á leið í hádegismat.
„Þetta var dálítið bagalegt
vegna þess að fólkið þarf að nota
lyftur til þess að fara í matsalinn.
Við brugðumst við með því að
bera göngugrindurnar fyrir þau,“
segir Guðjón Emilsson, starfs-
maður á Eir. Hann segir vist-
menn marga hafa verið hugrakka
og notað lyfturnar strax að snæð-
ingi loknum.
Fiskistofa ákvað að aðhafast ekkert þrátt fyrir að telja sig hafa upplýsingar um kvóta-
svindl hjá G.P.G. fiskverkun á Húsavík. Þórður Ásgeirsson Fiskistofustjóri segir fyrir-
tækið hafa fengið áminningu. Gunnlaugur Hreinsson framkvæmdastjóri G.P.G. kann-
ast ekki við afskipti Fiskistofu af fyrirtækinu.
SVINDLAÐ MEÐ KVÓTA
EN EKKERT AÐHAFST
Fiskistofa komst á snoðir um ranga
vigtun á afla hjá G.P.G. fiskverkun á
Húsavík og ákvað að aðhafast ekk-
ert. DV hefur undir höndum bréf
frá Fiskistofu til G.P.G. fiskverkunar
þar sem greint er frá brotum á lög-
um um vigtun sjávarafla frá haust-
inu 2004 fram á sumar ársins 2005.
„Í ljósi atvika allra í máli þessu hef-
ur Fiskistofa ákveðið að grípa ekki til
frekari aðgerða að sinni,“ segir í nið-
urlagi bréfsins, sem undirritað er af
Hrefnu Gísladóttur, lögfræðingi hjá
Fiskistofu.
Minniháttar brot
Fiskistofustjóri, Þórður Ásgeirs-
son, segir að hér hafi aðeins ver-
ið um áminningu til viðkomandi
fyrirtækis að ræða. „Þarna stóðu
menn ekki hundrað prósent rétt að
því að vigta. Það var vigtað en ekki
var rétt að því staðið. Við áminnum
ef um er að ræða minniháttar brot,“
segir Þórður.
Níels Ársælsson sjómaður full-
yrðir á bloggsíðu að starfsmaður
G.P.G. fiskverkunar hafi gefið ítar-
lega skýrslu hjá ríkislögreglustjóra
um stórfellt kvótasvindl fyrirtækis-
ins á árunum 2001 til 2007.
Níels segir fulltrúa Fiskistofu
hafa verið viðstadda þessar yfir-
heyrslur.
Þórður fiskistofustjóri segir
þessar fullyrðingar vera uppspuna,
þessar yfirheyrslur hafi aldrei farið
fram. Hann segir skrif Níelsar ekki
vera svaraverð.
Stangast á
Gunnlaugur Hreinsson, fram-
kvæmdastjóri G.P.G. fiskverkunar,
kannast ekki við afskipti Fiskistofu
af fyrirtæki sínu.
„Það eru náttúrulega til sögu-
sagnir um öll félög. Það hefur aldrei
komið upp eitt einasta mál varð-
andi kvótasvindl hjá G.P.G.,“ segir
Gunnlaugur.
Hann segir menn hafa gert full
lítið úr Fiskistofu í þeirri umræðu
um svindl með kvóta sem fór af stað
í kjölfar umfjöllunar fréttaskýringa-
þáttarins Kompáss um málið.
„Stundum þegar svona skítkast
fer af stað þá stafar það af öfund eða
öðrum persónulegum ástæðum. Ég
tek þessum fréttum með fyrirvara.
Þetta voru pólitískar fréttir,“ segir
Gunnlaugur.
Sex ára svindl
Í fréttum Stöðvar 2 í fyrrakvöld var
greint frá stórfelldu kvótasvindli hjá
fiskvinnslufyrirtæki á Norðurlandi.
Sagt var frá vitnisburði um að fyrir-
tækið hafi landað eitt þúsund tonn-
um af fiski fram hjá vigt í sex ár. Verð-
mæti þessa afla er talið geta verið
meira en 1.500 milljónir króna. Þess-
ari frétt ber í mörgum atriðum sam-
an við fullyrðingar Níelsar Ársæls-
sonar.
Gunnlaugur Hreinsson segir að
Fiskistofa fylgist bæði með innkaup-
um og útflutningi hjá fiskvinnslu-
fyrirtækjum til þess að athuga hvort
samræmi sé þarna á milli. Fiskistofu-
stjóri segir að ávallt sé reynt að passa
upp á að menn svindli ekki. „Það
gefur auga leið að það eru alltaf ein-
hverjir sem svindla. Sumum náum
við, öðrum ekki.“
SiGtryGGur Ari jóHAnnSSon
blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is
Tölvuleiktækjasalur býður viðskiptavinum sínum upp á sérstakt reyksvæði:
Óvissa um lögmæti reyksvæðis
„Að sjálfsögðu ætlum við að skoða
þetta. Við höfum ekki fengið ábend-
ingar til okkar fram til þessa en ég á
von á því að við kíkjum á þetta mjög
fljótlega,“ segir Rósa Magnúsdótt-
ir, deildarstjóri hollustuhátta Heil-
brigðiseftirlits Reykjavíkur.
Tölvuleiktækjasalurinn Ground
Zero við Ingólfstorg býður viðskipta-
vinum sínum upp á sérstaka reyk-
aðstöðu á annarri hæð hússins. Að
sögn rekstraraðila er aldurstakmark
fyrir aðgangi í reykrýmið og leggja
starfsmenn sig fram við að framfylgja
því. Stór hluti viðskiptavina stað-
arins eru ungmenni og ósáttir for-
eldrar hafa kvartað yfir því að börn
þeirra hafi fengið að reykja á staðn-
um. Rekstraraðili útilokar ekki að
einhver þeirra kunni að hafa kom-
ist inn í reykaðstöðuna. Svið tóbaks-
varna Lýðheilsustöðvar og samtök
Heimilis og skóla mótmæla harðlega
að boðið sé upp á slíka reykaðstöðu
þar sem unglingar venja komu sína
á. Slíkt geti aukið reykingar og skap-
að hópþrýsting sem leiði til þess að
ungmenni byrji að reykja.
Rósa ítrekar að Heilbrigðiseftirlit-
ið fari í það að skoða þetta tilvik. Að-
spurð bendir hún á að veitingastað-
ir hafi hingað til haft heimild til að
bjóða upp á reykaðstöðu en sú heim-
ild rennur út um næstu mánaðamót.
„Ef þeir fara eftir reglunum er ekk-
ert út á þetta að setja. Það er svo aft-
ur á móti spurning hvort þessi staður
megi vera með svona reyksvæði þar
sem hann er ekki skráður með veit-
ingaleyfi,“ segir Rósa. trausti@dv.is
umdeild reykaðstaða
Heilbrigðiseftirlit reykja-
víkur skoðar fljótlega lög-
mæti þess að ground Zero
bjóði reykaðstöðu á stað
sem ungmenni sækja og
hefur ekki veitingaleyfi.
Kvótasvindl upplýst hefur verið um
kvótasvindl þar sem steinbítur var
settur efst í kör til þess að breiða yfir
þorsk sem veiddur var án aflaheimilda.
„Stundum þegar svona
skítkast fer af stað þá
stafar það af öfund eða
öðrum persónulegum
ástæðum. ég tek þess-
um fréttum með fyrir-
vara. Þetta voru póli-
tískar fréttir.“
Skilaboð frá Fiskistofu „...telur
Fiskistofa að brotið hafi verið gegn lögum
og reglum um vigtun sjávarafla við vigtun
og skráningu afla sem landað var á
Húsavík og fluttur var til endurvigtunar
hjá g.P.g. fiskverkun ehf. frá haustinu
2004 fram á sumarið 2005. Í ljósi atvika
allra í máli þessu hefur Fiskistofa ákveðið
að grípa ekki til frekari aðgerða að sinni
en leggur fyrir yður að að gæta þess
framvegis að fara í hvívetna að reglum
um vigtun sjávarafla.“
Veraldarvinir
hreinsa til
Fjórtán sjálfboðaliðar, sem
stýra starfi um fimm hundruð
annarra sjálfboðaliða í sumar,
hafa unnið í Grasagarði Reykja-
víkur að undanförnu.
Sjálfboðaliðarnir eru úr hópi
Veraldarvina, evrópskra samtaka
sem vinna að umhverfismálum
víða í heiminum. Hér vinna þeir
að hreinsun strandlengjunnar,
planta trjám og leggja göngu-
stíga.
Sjálfboðaliðarnir sem voru að
störfum í Grasagarði Reykjavíkur
verða hópstjórar fimm hundruð
sjálfboðaliða sem vinna að því í
sumar að hreinsa strandlengju
Austfjarða ásamt því að fást við
önnur verkefni. Hópstjórarnir
dvelja hér í hálft ár en aðrir sjálf-
boðaliðar verða hér skemur.