Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2007, Síða 11
DV Fréttir miðvikudagur 16. maí 2007 11
erlendarFréttir
ritstjorn@dv.is
Mikil bjartsýni ríkir í pólsku efna-
hagslífi þessa dagana. Pólland, í
samstarfi við Úkraínu, vann kapp-
hlaupið um að halda Evrópukeppn-
ina í knattspyrnu árið 2012 og nú
heyrast raddir þess efnis að Pólverjar
ættu að sæta lagi og taka upp evruna
í stað hins pólska zloty, gjaldmiðils
landsins. Nýjustu fregnir herma að
möguleiki sé á að evran gæti orðið
gjaldmiðill landsins áramótin 2011
og 2012. Vaxtaverkir landsins gætu
þó orðið almúganum ofviða með
hækkandi verðlagi og verðbólgu.
Næsta skref innan ESB
Pólland hafði ekki verið sjálfstætt
í nema innan við ár þegar stjórnvöld
hófu undirbúning að aðildarviðræð-
um við Evrópusambandið árið 1990.
Næstu árum varði Pólland með-
al annars í að styrkja samningstöðu
sína og aðlaga efnahagskerfi lands-
ins að evrópsku umhverfi. Árið 1997
bauð ESB Póllandi, Tékklandi, Ung-
verjalandi, Slóveníu, Eistlandi og
Kýpur til formlegra aðildarviðræðna
sem tóku mörg ár en urðu að lok-
um til þess að Pólland varð fullgildur
meðlimur ESB árið 2004.
Ef Pólland tekur upp evruna verð-
ur landið að uppfylla fjöldamörg
efnahagsleg skilyrði sem sett eru til
að tryggja efnahagslegan stöðug-
leika sambandsins. Meðal annars
verður verðbólga að vera lág til lengri
tíma auk þess sem skuldir ríkisins
verða að vera minna en þrjú prósent
af vergri landsframleiðslu. Fjármála-
ráðuneyti landsins hefur lýst því yfir
að landið ætti að geta uppfyllt þessar
kröfur á árinu 2009.
Mikill hagvöxtur
Pólska hagkerfið er það hagkerfi
sem vex hvað hraðast í Evrópu. Evr-
ópukeppnin í knattspyrnu árið 2012
mun að öllum líkindum viðhalda
hagvextinum til lengri tíma þar
sem ríkið getur byggt afkomu sína á
hækkandi skatttekjum í kjölfar auk-
inna framkvæmda og afleiddrar
starfsemi. Á fyrsta ársfjórðungi þessa
árs jókst verg landsframleiðsla Pól-
lands um sjö prósent og spáð er að
vöxturinn haldist í fimm prósentum
næstu fimm árin. Auk þess gerir fjár-
málaráðuneyti landsins ráð fyrir 20
prósenta aukningu í fjárfestingum á
þessu ári.
Forsætisráðherrann er
svartsýnni
Jaroslaw Kaczynski forsætisráð-
herra Póllands vill stíga varlega til
jarðar til að koma í veg fyrir óðaverð-
bólgu og ofsaverðhækkanir. Hann
segir í samtali við The Warsaw Voice
Online að Evrópukeppnin í knatt-
spyrnu sé ekki nægileg ástæða
til að flýta upptöku evrunnar.
Kaczynski leggur áherslu á að
stjórnvöld skoði allar efna-
hagslegar afleiðingar þess
að taka upp nýja mynt til
að koma í veg fyrir mistök
og óreiðu. Forsætisráð-
herrann telur víst, í ljósi
reynslu annarra aðildar-
landa, að verðlag muni
hækka í kjölfarið en slík-
ar breytingar fara sér-
staklega illa í alþýðu þar
sem kaupmáttur Pólverja hefur verið
í veikara lagi í töluverðan tíma.
Evran og Evrópukeppnin
haldast í hendur
Framámenn í viðskipta- og efna-
hagslífi Póllands hafa sent stjórn-
völdum og seðlabanka landsins
beiðni um að evran verði tekin upp
hið fyrsta. Þessi hópur telur að ef
sú gríðarlega uppbygging sem sé
óhjákvæmilegur und-
anfari þess að
halda Evr-
ópukeppn-
ina í knatt-
spyrnu
verði vel
skipulögð og framkvæmd geti hún
orðið til þess að skjóta Póllandi inn í
framvarðasveit Evrópu og gera land-
ið gjaldgengt meðal áhrifameiri og
félagslega þróaðri þjóða auk þess að
auka lífsgæði íbúa landsins um allan
helming.
Fyrirtækin núa saman lófunum
Það er ljóst að gríðarleg uppbygg-
ing mun eiga sér stað í samgöngum,
þjónustu og ferðamannaiðnaðinum
í Póllandi næstu árin. Því telja hag-
fræðingar og forsvarsmenn fyrirtækja
mikilvægt að evran verði tekin upp
til að greiða fyrir innkomu erlendra
fjárfesta og þar með erlends fjár-
magns. Fyrirtæki landsins bú-
ast við miklum gróða og hafa
verið að þrýsta á stjórnvöld
að leysa um höft í löggjöf
til að auðvelda fyrir-
tækjum að framkvæma
hratt og örugglega án
of mikilla afskipta
og skrifræðis
stjórnvalda.
Fengu Fótboltann
og vilja evruna
blaðamaður skrifar: skorri@dv.is
Skorri GíSlaSoN
Framámenn í efnahagslífi Póllands vilja nota Evrópukeppnina í knattspyrnu sem
stökkpall inn í Evrópu hinna ríku. Þeir vilja að landið taki upp evruna í stað zlotys til
að hraða uppbyggingu landsins.
Pólverji fagnar mikil
fagnaðarlæti brutust út þegar
ljóst var að Pólland og Úkraína
halda Evrópukeppnina í
knattspyrnu árið 2012.
Nýir knattspyrnuvellir mikil uppbygging mun
eiga sér stað á knattspyrnuvöllum, samgöngum
og ferðaþjónustu í Póllandi næstu árin
nýir seðlar
árið 2009
Danir taka í notkun nýja
peningaseðla árið 2009. Öllum
seðlum skal skipt út og er um að
ræða seðla frá fimmtíu krón-
um upp í eittþúsund krónur.
Þema seðlanna verður brýr og
hlutverk þeirra í að tengja sam-
an landshluta sem og fortíð og
nútíð. Það er listamaðurinn Kar-
in Birgitte Lunds sem hannar
seðlana og var hugmynd hennar
valin úr hópi átta hugmynda.
Byrjað verður að skipta út göml-
um seðlum árið 2009.
Vladimír Pútín hefur farið mikinn á alþjóðavettvangi upp á síðkastið:
Volgt stríð í uppsiglingu
Enn einu sinni hafa bandarísk og
rússnesk stjórnvöld sett samskipti
ríkjanna í uppnám og hafa löndin auk
þess náð að flækja Evrópusambandið
í málið.
Condoleezza Rice innanríkisráð-
herra Bandaríkjanna fullyrti við Vlad-
imír Pútín Rússlandsforseta á fundi
í Moskvu í gær að bandarísk stjórn-
völd muni ekki taka það í mál að veita
Rússlandi einhvers konar neitunar-
vald gegn uppbyggingu eldflauga-
varna í Evrópu. Rice bendir á að Rúss-
ar ráði yfir þúsundum eldflauga og
nokkrar slíkar staðsettar í Póllandi
og ratsjárkerfi í Tékklandi muni ekki
ógna Rússum á nokkurn hátt.
Pútín, sem hefur farið mikinn upp
á síðkastið í að auka völd og mátt
Rússlands á alþjóðavettvangi, hefur
á móti neitað að fella niður skatta á
flug bandarískra flugvéla inn í flug-
helgina yfir Síberíu, sem skilar tæp-
um þrjátíu milljörðum í ríkiskassann
á ári. Ennfremur hefur Pútín neitað
að samþykkja orkusáttmála Evrópu-
sambandsins þar sem aðildarlönd-
unum er gert kleift að taka þátt í fram-
tíðarskipulagi á gas- og olíuleiðslum
landsins inn í Evrópu. Rússar lentu
nýlega í deilu við Eistlendinga um
brottflutning minnismerkis um lok
síðari heimsstyrjaldarinnar og einn-
ig við Pólverja um innflutning á kjöti
sem varð til þess að allar þjóðir stóðu
eftir með beiskt bragð í munninum.
Eftir að Pútín gagnrýndi opinberlega
utanríkisstefnu Bandaríkjanna, sem
hann sagði þvinga vilja sínum upp á
heiminn, í febrúar síðastliðnum þá
hafa samskipti landanna verið í lág-
marki og er Rice æðsti bandaríski
embættismaðurinn sem hefur sótt
Rússland heim síðan í febrúar. Pútín,
sem er á síðara kjörtímabili sínu sem
forseti, virðist vera að stýra landinu
inn í volgt stríð við bæði Evrópusam-
bandið og Bandaríkin.
Vladimír Pútín
Ósáttur við áform bandarískra
stjórnvalda um eldflaugavarnir.
Slagsmál eða
ekki slagsmál
Lögreglan í Tallinn fann
nýverið drukkinn og slasaðan
mann í miðborginni. Maður-
inn, sem að sögn Daily Baltic
News heitir Anatoli Sorokin, var
blóðugur og ringlaður og sagð-
ist vera þingmaður í Dúmunni,
rússneska þinginu.
Lögreglan bauð fram aðstoð
sína sem maðurinn neitaði og
var honum þá komið fyrir á sér-
stökum stað fyrir ofurölvað fólk
til frekari aðhlynningar. Síðar
komst lögregla að því að maður-
inn var sérfræðingur í erlendum
málefnum innan borgarstjórn-
ar Moskvuborgar og var sóttur
af rússneska embættinu eftir
að hafa sofið úr sér. Síðar lýsti
borgarstjórn Moskvu því yfir að
maðurinn hefði hlotið meiðsl-
in eftir misþyrmingar eistnesku
lögreglunnar.
Fyrsta vandamál
forsetans nýja
Nýkjörinn Frakklandsfor-
seti, Nicolas Sarkozy, tekst þessa
dagana á við sitt fyrsta stór-
vandamál í innanríkismálum.
Ekki eru það óeirðir, verkföll eða
spilling ráðherra heldur á hann
í vandræðum með eiginkonu
sína. Hin 49 ára Cecilia Sarkozy
tók þátt í sigurgleði bóndans
þegar úrslitin lágu fyrir en hún
tók afar takmarkaðan þátt í
kosningabaráttunni að öðru
leyti.
Nú er svo komið að marg-
ir Frakkar stórefast um að hún
muni leika hlutverk „eiginkonu
númer eitt,“ eins og frú forsæt-
isráðherra er einatt kölluð. Árið
2005 skildu þau að skiptum og
náðust myndir af þeim báðum
með öðrum elskhugum. Cecilia
Sarkozy hefur lýst því yfir að hún
hafi lítinn áhuga á fyrrgreindu
hlutverki.