Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2007, Side 32
Innflutningur á sjöundu bók-
inni um töfradrenginn Harry Pott-
er er í óvissu vegna þess að Eim-
skip, sem flytur inn flestar bækur til
landsins, hefur neitað að flytja bók-
ina til landsins áður en hún fer í al-
menna sölu. Fyrirtækinu var gert að
skrifa undir samning þess efnis að
það verði bótaskylt ef sannast á það
að efni bókarinnar hafi lekið út til al-
mennings á meðan farmurinn með
bókunum er í þeirra umsjá. Blooms-
bury, útgefandi Harry Potter-bók-
anna í Bretlandi, krefur alla bóksala
og flutningsaðila um að skrifa undir
slíkt samkomulag.
Eysteinn Björnsson bóksali hjá
Bóksölu Stúdenta furðar sig á þessu.
„Þetta er heilmikið skjal sem allir
sem koma að innflutningi og dreif-
ingu á bókunum þurfa að skrifa und-
ir. Ég setti mig í samband við Eimskip
í Bretlandi til þess að fá staðfest að
þeir hefðu neitað að skrifa undir og
ég fékk þau skilaboð að lögfræðing-
ar þeirra hefðu ráðlagt þeim að skrifa
ekki undir.“
Óvanalegt er að flutnings- og sölu-
aðilar þurfi að skrifa undir slík skjöl.
Eysteinn segir bækurnar um Harry
Potter vera sér á báti með þetta. „Það
er öllum sama þegar bækurnar eru
ekki um Harry Potter. Bóksala stúd-
enta hefur oft fengið bækur til sölu
áður en þær eru gefnar út erlendis og
við höfum vanalega sett þær í sölu.
Harry Potter er algjörlega einstakur
í þessu samhengi, ef það spyrðist út
að Harry Potter myndi deyja í bók-
inni þá myndi það hafa veruleg áhrif
fyrir útgefendur hennar.“
Ákvörðun Eimskipa hefur þau
áhrif að bóksalar sem vilja selja bók-
ina frá fyrsta útgáfudegi þurfa að leita
annarra leiða til þess að fá bókina í
tæka tíð. Bloomsbury hefur þegar
mælt með því að innflutningsaðilinn
Jónar flytji bókina inn, en fyrirtækið
hefur sagst tilbúið til þess að skrifa
undir samninginn.
Eysteinn segist þó ekki missa
svefn yfir því þótt hann fái bókina
seinna í hendur. „Kúnnarnir mínir
koma ekki til með að standa í röðum
til að fá fyrsta eintakið af bókinni.
Við skulum bara vona að Harry Pott-
er þurfi ekki á Eimskipum að halda
til þess að bjarga heiminum í þetta
skiptið.“
valgeir@dv.is
Fyrirtækið Formaco er til rækilegr-
ar skoðunar hjá Vinnumálastofnun
vegna þess að erlendir starfsmenn á
þeirra vegum finnast ekki á skrám hér
á landi. Að minnsta kosti tveir Lithá-
ar hafa starfað á vegum fyrirtækisins í
hálft annað ár án þess að um þá finn-
ist nokkrar upplýsingar í kerfinu. Sam-
kvæmt heimildum blaðsins hafa þeir
ekki íslenska kennitölu, hafa ekki ver-
ið tilkynntir til Vinnumálastofnunar
og ekki hafa verið greidd opinber gjöld
af launum þeirra.
Undanfarið hafa Litháarnir tveir
starfað við að reisa mikið iðnaðarhús-
næði á Akranesi. Fyrirtækið hefur gef-
ið upp ellefu starfsmenn frá Litháen
en enginn þeirra kemur fram hjá Hag-
stofu Íslands yfir einstaklinga með ís-
lenska kennitölu. Samkvæmt upplýs-
ingum frá ríkisskattstjóra finnast ekki
upplýsingar hjá embættinu yfir opin-
ber gjöld vegna mannanna.
Til vandlegrar skoðunar
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verka-
lýðsfélags Akraness, heimsótti starfs-
stöð Litháanna og hefur út á margt að
setja í málefnum þeirra. „Ég fer ekk-
ert ofan af því að þetta er hið versta
mál. Mennirnir vinna hvern einasta
dag vikunnar en þeir eru hvergi til í ís-
lenska kerfinu. Engin kennitala er til,
þeir eru ekki skráðir hjá Vinnumála-
stofnun og engin opinber gjöld eru
greidd af launum þeirra hér á landi,“
segir Vilhjálmur.
Unnur Sverrisdóttir, forstöðumaður
stjórnsýslusviðs Vinnumálastofnunar,
staðfestir að málefni fyrirtækisins séu
til umfjöllunar hjá stofnuninni. Hún
segir ábendingar hafa borist vegna
fyrirtækisins. „Það er alveg ljóst að við
erum með þetta fyrirtæki til vandlegrar
skoðunar. Við erum ekki búin að ljúka
þeirri athugun og því erfitt að staðfesta
nákvæmlega hvernig þessu er háttað.
Við höfum óskað eftir ýmsum gögnum
frá fyrirtækinu og munum skoða þetta
vel,“ segir Unnur.
Skekkir samkeppnisstöðu
Aðspurður segir Vilhjálmur mennina
hafa starfað hér á landi í hálft annað
ár. Hann bendir jafnframt á að þeir
segist fá laun sín greidd inn á reikning
í heimalandi sínu.
„Mennirnir segja mér að þeir hafi
starfað hér á landi í hálft annað ár og
að þeir fái greidd laun inn á reikning
í heimalandi sínu. Þessir menn eru
bara ekki til og greinilegt að forsvars-
menn fyrirtækisins eru að reyna að
koma sér framhjá kerfinu,“ segir Vil-
hjálmur. „Þegar hlutunum er hag-
að með þessum hætti þá skekkir það
alla samkeppnisstöðu á markaði. Fyr-
irtækin sem koma sér hjá öllum op-
inberum gjöldum eiga inni tugi pró-
senta sem þau geta nýtt til undirboða
í verk. Þeirra svör eru hins vegar í þá
veru að allt sé klappað og klárt. Ég get
hins vegar ekki séð að svo sé.“
Ekki fengust svör frá forsvarsmönnum
Formaco við vinnslu fréttarinnar.
miðvikudagur 16. maí 2007 n Dagblaðið vísir stofnað 1910
FréTTaSkoT
5 1 2 7 0 7 0
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast 5.000 krónur.
Að auki eru greiddar 10.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
Þannig er hægt að fá 15.000 krónur fyrir besta fréttaskot mánaðarins.
Kjósendur eru að
verða sturlaðir...
LITHÁAR VINNA ALLA DAGA
EN ERU HVERGI TIL Á SKRÁ
Formaco rannsakað vegna starfsmanna sem hafa hvergi verið skráðir:
Harry Potter og félagar Fá ekki að sigla
með Eimskipum til Íslands í tæka tíð.
Fór út af og lenti á
brúarhandriði
Engan sakaði þegar sendi-
bíll með kerru í eftirdragi lenti
utan í brúarhandriði á Borgar-
fjarðarbrúnni um klukkan þrjú í
gær. Lögreglan á staðnum þurfti
að loka brúnni í tvígang vegna
þess að timburfarmur í kerrunni
dreifðist um veginn.
Að sögn lögreglu í Borgarnesi
var orsök slyssins líklega sú að
kerran hafi verið vitlaust hlaðin
eða ofhlaðin. Lögregla telur mildi
að brúarhandriðið hafi haldið við
áreksturinn.
Sturla strikaður út
Nær 300 kjósendur Sjálfstæð-
isflokksins í Norðvesturkjördæmi
strikuðu yfir nafn Sturlu Böðvars-
sonar samgönguráðherra, sem
skipaði fyrsta sæti listans, eða færðu
hann neðar á listann. Það þýðir að
tólfti hver kjósandi listans hafi strik-
að hann út eða fært niður eða ríflega
6 prósent. Þetta hefur þó ekki áhrif á
sætaskipun.
Aðrir þingmenn sem nokkuð var
strikað yfir voru þeir Einar Oddur
Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins, og Karl V. Matthíasson,
þingmaður Samfylkingarinnar.
„Það var þó nokkuð af útstrik-
unum hjá okkur. Áberandi mest hjá
Sturlu Böðvarssyni. Þessar upplýs-
ingar liggja nú hjá landskjörstjórn-
inni sem fer yfir málið,“ segir Jens
Kristmannsson, fulltrúi yfirkjör-
stjórnar Norðvesturkjördæmis.
Falwell fallinn frá
Jerry Falwell er fallinn frá. Hann
er einn þeirra sem höfðu hvað
mest áhrif á uppgang kristilegra
afla í bandarískum stjórnmálum
upp úr 1980 og fram á okkar dag.
Falwell fannst meðvitundarlaus
á skrifstofu sinni í gær. Hann var
fluttur á sjúkrahús þar sem hann
var lýstur látinn eftir að læknum
mistókst að lífga hann við. Falwell
var tvisvar nær dauða en lífi vegna
heilsubrests árið 2005 og átti lengi
við hjartasjúkdóm að stríða.
Stjórnmálamenn á hægrivæng
bandarískra stjórnmála leituðu
mjög eftir stuðningi hans. Hann
studdi meðal annars við bakið á
Ronald Reagan í forsetakosningun-
um 1980 og 1984 og meðal þeirra
sem hafa leitað til hans undanfarið
er John McCain, sem sækist eftir
útnefningu repúblikana fyrir for-
setakosningarnar á næsta ári.
TrauSTi HaFSTeinSSon
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Mennirnir ekki til Formaður Verkalýðs-
félags Akraness furðar sig á stöðu
mannanna.
ÓSLESIÐ
Sýknaðir af
nauðgunarákæru
Þrír unglingspiltar voru í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær sýknaðir af
ákæru um nauðgun. Óumdeilt þótti
að hinir ákæru hefðu haft samræði
við stúlkuna sem kærði þá, en þeim
var gefið að sök að hafa hagnýtt sér
að hún væri ein með þeim í íbúð
og ekki átt sér undankomu auðið.
Stúlkan var sextán ára þegar þetta
átti sér stað en piltarnir á sautjánda
og átjánda ári.
Piltarnir neituðu því að hafa
nauðgað stúlkunni og sögðu hana
hafa sjálfviljuga haft við þá samfarir.
Sakarkostnaður að upphæð rúmlega
sjöhundruð fjörutíu og fimmþúsund
krónur greiðist úr ríkissjóði.
Harry Potter fær ekki far
Eimskip neitar að flytja inn nýjustu Harry Potter-bókina:
aftur á heimaslóðir Helgi Tómasson, stjórnandi San Francisco-balletsins, sótti Vestmannaeyjar heim í gær. Þar fæddist hann og
bjó fyrstu æviárin. Með Helga í för var Ólafur Ragnar Grímsson og skoðuðu þeir margt það besta sem Vestmannaeyjar hafa upp á
að bjóða. DV-mynd Gúndi
Grunur en engin
sönnunargögn
Portúgalska lögreglan rannsakar
hvort breskur maður sem býr í Alg-
arve hafi rænt Madeleine McCann,
fjögurra ára stúlku sem var numin á
brott af hótelherbergi þar sem hún
dvaldi ásamt foreldrum sínum.
Lögregluna grunar að hinn 33
ára gamli Robert Murat hafi rænt
stúlkunni en talsmenn lögreglunn-
ar viðurkenna að þeir hafi engin
sönnunargögn sem duga þeim til að
handtaka manninn. Sjálfur neitar
hann því að hafa nokkuð með ránið
á stúlkunni að gera og segist hafa
verið gerður að blóraböggli fyrir eitt-
hvað sem hann hafi ekki gert.
Ekki er vitað hvort Madeleine sé
lífs eða liðin. Á morgun verða liðnar
tvær vikur síðan hún hvarf.