Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2007, Blaðsíða 3
Lórítín®
– Kröftugt ofnæmislyf
Notkun: Lóritín er ætlað til meðferðar á einkennum ofnæmiskvefs og langvarandi ofsakláða af
óþekktum toga. Skömmtun: Fullorðnir og börn (>12 ára): 1 tafla á dag. Börn 2-12 ára (<30 kg): ½ tafla (5
mg) á dag. Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 2 ára. Töfluna má taka hvenær sem er, án tillits til
matmálstíma. Hefja ætti meðferð hjá sjúklingum með verulega skerta lifrarstarfsemi með minni
skammti. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka efninu eða hjálparefnum. Varúðarreglur: Gæta skal varúðar
ef Lóritín er gefið sjúklingum með mikið skerta lifrarstarfsemi. Lyfið inniheldur laktósa. Langvarandi
notkun getur leitt til aukinnar hættu á tannskemmdum vegna munnþurrks. Notkun Lóritíns á
meðgöngu og við brjóstagjöf er ekki ráðlögð nema í samráði við lækni. Í einstaka tilfellum finnur fólk
fyrir syfju sem getur haft áhrif á hæfni þeirra til aksturs eða notkunar véla. Aukaverkanir: Lóritín þolist
almennt vel en algengustu aukaverkanirnar hjá börnum á aldrinum 2-12 ára eru höfuðverkur,
taugaveiklun og þreyta. Algengustu aukaverkanirnar hjá 12 ára og eldri eru svefnhöfgi, höfuðverkur,
aukin matarlyst og svefnleysi. Lesið vel leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Desember 2005.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
9
0
2
5
-
A
c
ta
v
is
7
0
4
0
0
3