Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2007, Blaðsíða 12
ÞRIÐJudaguR 29. MaÍ 200712 Sport DV
2 2
FYLKIR ÍA
Mörk: Valur Fannar Gíslason, Christian Christiansen Mörk: Jón Vilhelm Ákason , Vjekoslav Svadumovic
7
6
6
8
3
7
6
5
7
8
7
14
4
2
4
3
2
1
Fjalar Þorgeirsson
Kristján Valdimarsson
Guðni Rúnar Helgason
Ólafur Stígsson (84.)
Peter Gravesen
Haukur Ingi Guðnason (79.)
Víðir Leifsson
David Hannah
Halldór Arnar Hilmisson
Christian Christiansen
Valur Fannar Gíslason
Páll Gísli Jónsson
Árni Guðmundsson
Bjarni Guðjónsson
Heimir Einarsson
Helgi Pétur Magnússon (65.)
Ellert Jón Björnsson
Andri Júlíusson (56.)
Jón Vilhelm Ákason
Guðmundur Guðjónsson (56.)
Dario Cingel
Vjekoslav Svadumovic
TÖLFRÆÐI
SKOT Á MARKIÐ
SKOT AÐ MARKI
SKOT VARIN
UNNAR HORNSPYRNUR
RANGSTAÐA
GUL SPJÖLD
RAUÐ SPJÖLD
15
4
2
8
1
2
0
7
5
6
6
6
6
5
7
6
6
8
VARAMENN: (79.) Albert
Ingason -, (84.) Páll Einarsson
VARAMENN: (56.) Ragnar
Leósson 6, Gísli Brynjarsson 6,
(66.) Kári Steinn Reynisson 6
Dómari: Kristinn Jakobsson - 8 Áhorfendur: 1207
MAÐUR LEIKSINS:
Ólafur Stígsson
Fjalar
Páll
Víðir Hannah Kristján Guðni
HalldórValur FannarÓlafurGravesen
Haukur Ingi Christiansen
Árni Cingel Heimir Ellert Jón
Jón Vilhelm
Helgi
Bjarni
Guðmundur
Svadumovic
Andri
Leikur Fylkis og ÍA, í Árbænum
í gær, var fjörugur og bauð upp á
mikla skemmtun fyrir áhorfend-
ur. Aðstæður til þess að leika knatt-
spyrnu voru afskaplega góðar, 14
gráðu hiti, sólskin og hægur vindur.
Skagamenn komu ákveðnir til
leiks og höfðu frumkvæði fyrstu mín-
útur leiksins. Liðin áttu í vandræð-
um með að brjótast í gegnum varnir
mótherjana enda þéttur varnarleikur
í fyrir rúmi og það var í raun ekki fyrr
en á 20 mínútu leiksins sem virkilegt
fjör færðis í hann. Þá gaf Fylkismað-
urinn Peter Gravesen Skagamannin-
um Ellert Jóni Björnssyni olnboga-
skot í baráttu um boltann og Kristinn
Jakobsson, dómari leiksins, átti ekki
annars úrkosta en að senda hann af
velli með rautt spjald. Við þetta opn-
aðist leikurinn töluvert og bæði lið
áttu ágætis sóknir sem hefðu getað
endað með mörkum.
Á 37. mínútu leiksins dró svo til
tíðinda. Nýr leikmaður ÍA, sóknar-
maðurinn Vjekoslav Svadumovic,
fékk þá boltann í vítateig Fylkis og
lagði boltann laglega fyrir Jón Vil-
helm Ákason sem kom Skagamönn-
um yfir með góðu skoti hægra meg-
in úr vítateignum. Fast skot ofarlega
í hornið fjær sem Fjalar Þorgeirsson
átti litla möguleika í.
Mínútu síðar komst Fylkismaður-
inn Haukur Ingi Guðnason í dauða-
færi er hann slapp einn inn fyrir vörn
ÍA en skot hans hafnaði rétt fram
hjá stönginni vinstra megin. Hauk-
ur hefði mátt vera vera óeigingjarn-
ari í þetta skiptið, því samherji hans
Christian Christiansen var einn á
auðum sjó fyrir opnu marki ÍA.
Á 42. mínútu jöfnuðu heima-
menn. Þar var að verki Valur Fannar
Gíslason með góðu skoti utan úr
miðjum teig ÍA. Heiðurinn af þessu
marki átti Halldór Arnar Hilmirsson
sem lék á tvo Skagamenn í vinstra
horni vallarins og sendi svo boltann
út á Val Fannar sem var einn á auð-
um sjó.
Undir lok hálfleiksins rákust
Fylkismaðurinn Halldór Arnar og
Skagamaðurinn Helgi Pétur Magn-
ússon saman og þurftu báðir að yf-
irgefa völlinn vegna meiðsla sinna.
Fylkismenn skiptu þá Mads Bei-
erholm inn fyrir Halldór sem fór á
sjúkrahús en Helgi sem fékk skurð
undir hökuna var plástraður í hálf-
leik og kom aftur til leiks.
Fyrri hálfleikur rann sitt skeið
og jafnt á komið með liðunum 1-1.
Það var verðskulduð staða því Fylk-
ismenn börðust eins og ljón, héldu
bolta vel og voru áræðnir í sínum
aðgerðum. Skagamenn voru hins-
vega í vandræðum með að skapa
sér góð færi þrátt fyrir að vera leik-
manni fleiri.
Síðari hálfleikur reyndist hin
besta skemmtun. Liðin skiptust á
að sækja og Fylkismenn gáfu ekk-
ert eftir. Það var varla hægt að sjá
marktækan mun á liðunum þrátt
fyrir rauða spjaldið. Á 57. mínútu
ákvað Guðjón Þórðarson, þjálfari
ÍA, að gera breytingu á liði sínu. Þeir
Gísli Freyr Brynjarsson og Ragn-
ar Leósson komu þá í stað Guð-
mundar Böðvars Guðjónssonar og
Andra Júlíussonar. Á 65. mínútu
kom svo Kári Steinn Reynisson inn
í stað Helga Péturs Magnússonar og
ÍA búið með allar sínar skiptingar.
Þessar breytingar reyndust Skaga-
mönnum vel. Sóknarleikur liðsins
varð snarpari og pressan á heima-
mönnum jókst töluvert. Á 71.
mínútu fengu Skagamenn auka-
spyrnu um það bil 30 metrum fyrir
framan mark Fylkis. Bjarni Eggert
Guðjónsson, fyrirliði ÍA, tók spyrn-
una og boltinn barst til Svadumovic
sem skoraði með föstu skoti í slánna
og inn. Óverjandi fyrir Fjalar mark-
vörð Fylkismanna. Á 82.mínútu
skoraði Christiansen frábært mark
fyrir Fylki eftir að hafa leikið laglega
á vörn ÍA. Christiansen lagði boltann
í hægra horn Skagamarksins, fram
hjá Páli Gísla Jónssyni markverði.
Í uppbótartíma slapp Christians-
en einn inn fyrir vörn ÍA og átti að-
eins eftir að mæta Páli markverði
þegar hann var felldur í vítateig ÍA.
Góður dómari leiksins dæmdi rétti-
lega vítaspyrnu og skyndilega áttu
heimamenn góða möguleika á öll-
um stigunum þrem. Það var David
Hannah sem fékk það hlutverk að
taka spyrnuna. Páll Gísli varði frekar
slaka vítaspyrnu Hannah, sem sendi
boltan frekar laust á mitt mark ÍA.
2-2 jafntefli staðreynd og verða
að teljast nokkuð sanngjörn úrslit,
þar sem Skagamönnum tókst ekki
að nýta sér liðsmuninn í þær 70.
mínútur sem þeir voru fleiri. Fylkis-
liðið fær marga plúsa fyrir leik sinn
í dag. Liðið virkaði mjög þétt í gær
og greinilegt að liðið nýtur góðs af
reynslu miklum leikmönnum sín-
um. Miðjumenn liðsins, þeir Ólaf-
ur Stígsson og Valur Fannar Gísla-
son, höfðu góða stjórn á leik liðsins
og voru bestu menn vallarins í gær.
Varnarleikur Fylkis virkar sterkur
þrátt fyrir að þeir hafi fengið á sig tvö
mörk í þessum leik og haldi Fylkis-
menn öllum sínum leikmönnum
innan vallar í næstu leikjum, verða
þeir að teljast líklegir til afreka.
Hið unga lið ÍA virðist enn vanta
aðeins upp á sjálfstraust til að klára
leiki sína. Leikmenn liðsins virka
frískir og dugnaðurinn er vissulega
til staðar. Takist Guðjóni að berja
meira sjálfstrausti í liðið er ljóst
að ekki verður langt að bíða fyrsta
sigurs þeirra í sumar. Liðinu hefur
borist liðsstyrkur í tveim Króötum
sem eru nýkomnir til liðsins og fóru
beint í byrjunarliðið. Svadumovic
virkaði vel í framlínu liðsins, skor-
aði eitt mark og lagði hitt upp. Dar-
io Cingel stóð sig ágætlega í vörn
liðsins og ætti að vera mikill styrkur
fyrir liðið þegar honum hefur tekist
að stillt saman strengi sína við aðra
leikmenn liðsins.
Leifur þjálfari Fylkis var að von-
um ánægður með leik liðsins í gær,
„Við vorum einum færri í 70. mínútur
af 90 og vorum samt sem áður betra
liðið á vellinum. Spiluðum boltan-
um oft á tíðum mjög vel á milli okk-
ar og opnuðum Skagavörnina hvað
eftir annað. Ég afskaplega sáttur við
mína menn, það vinnulag sem var í
gangi og þá baráttu sem þeir sýndu.
Þeir voru frábæir dag”. Aðspurður
um framhaldið þá er Leifur nokkuð
bjartsýnn. “Mitt lið er þannig saman
sett að menn eru tilbúnir að vinna
hver fyrir annan, það skiptir ekki
máli hver er inná það eru allir að
vinna þetta saman. Sú samstaða og
vinna sem einkennir liðið sást ber-
lega í dag og ég get lofað þér að þetta
lið leggur sig alltaf fram í verkefnin“,
sagði Leifur að lokum.
Guðjón þjálfari ÍA var ekki
nógu sáttur við eitt stig í Árbæn-
um í gær, „Við vorum í stöðu til að
vinna þennan leik en náum ekki að
klára það. Það eru ákveðnar stöð-
ur í leiknum sem við hefðum get-
að unnið betur úr og ég tel að þegar
við erum manni fleiri í þetta lang-
an tíma þá verðum við að vinna
betur úr því en við gerðum. Fylkis-
menn brugðust mjög vel við þeg-
ar þeir misstu Gravesen útaf, börð-
ust af krafti og lögðu mikla vinnu í
leikinn. Þeir eiga hrós skilið. En af
sama skapi vorum við allt of fum-
kenndir í okkar aðgerðum og vor-
um ekki nógu markvissir í uppspil-
inu“. Aðspurður um nýju leikmenn
liðsins sagðist Guðjón vera nokkuð
sáttur við þá, „Það tekur þá þrjá til
fjóra leiki að komast inn í þetta og
það var ekki eftir neinu að bíða með
að tefla þeim fram. Við eigum góða
daga framundan sem við getum æft
vel og stillt saman strengi okkar. Ég
er alveg klár á að þeir eiga eftir að
vaxa og dafna hjá okkur. Það er mikil
vinna framundan og við þurfum að
leggja mikið á okkur“, sagði Guðjón
að lokum. Kristinn Guðmundsson
Skagamenn fengu stig í Árbæ þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Fylki á 40 ára afmæli Fylkis. Heimamenn klúðr-
uðu vítaspyrnu undir lokinn
Páll Gísli hetja ÍA
Hetjan Páll gísli Jónsson var hetja
skagamanna