Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2007, Blaðsíða 26
Pirates of the Caribbean: At World‘s
End er síðasta myndin í þessum æsi-
lega þríleik. Eins og flestir muna þá
lauk síðustu mynd þannig að kapt-
einn Jack Sparrow var étinn af risa-
vöxnu sjávarskrímsli. Þess vegna hefst
þessi mynd þannig að föruneyti kapt-
einsins þarf að sigla inn í næsta heim
til þess að bjarga honum úr eilífð-
arprísund. Svo þegar kapteinninn er
orðinn góður þarf að hitta sjóræn-
ingjanefndina, sem ákveður hvernig
sé best að berjast við Austur-Indíafé-
lagið, sem hefur sjóræningjavofuna
Davy Jones á sínum snærum. Pirat-
es of the Caribbean er algjört ofmat,
eins og við segjum í Mosfellsbænum.
Jack Sparrow er ekki hetja á pari við
Indiana Jones, James Bond eða jafn-
vel Casey Ryback. Sagan er líka orðin
alltof flókin og allur sá ferskleiki sem
fylgdi fyrstu myndinni kominn langt
yfir síðasta söludag. Í raun minnir
Pirates of the Caribbean þríleikurinn
mig á Matrix-myndirnar. Almennilegt
púður lagt í fyrstu myndina en hinar
bara til skrauts sem samanstendur
aðallega af yfirdrifnum tæknibrellum
sem hafa greinilega meira vægi en
söguþráður og framvinda kvikmynd-
arinnar. Myndin er þó ekki alslæm.
Johnny Depp er nokkuð skemmti-
legur leikari, sem og þeir Bill �ighy,
Chow Yun Fat og Geoffrey Rush. Hinn
eini sanni Keith Richards á svo mjög
skemmtilega innkomu í myndina og
skilar sínu frábærlega þótt lítið sé. Sá
sem skipaði í hlutverk fyrir myndina
var eflaust á einhverjum eiturlyfjum
þegar hann hóaði í Orlando Bloom og
Keiru Knightley en þau er eins og fífl
í myndinni. Alltof sæt og alltof hæfi-
leikalaus til þess að hægt sé að taka
mark á þeim. Ég vona að það verði
ekki gerðar fleiri myndir um sjóræn-
ingjana í Karíbahafinu. Lopinn hef-
ur verið teygður til hins ítrasta og ein
mynd í viðbót yrði bara siginn ullar-
sokkur.
Bíódómur
Pirates of the Caribb-
ean: at World‘s end
The Pirates of the Caribb-
ean: At World‘s End flækir
ævintýrið enn frekar.
Myndin er uppfull af
tæknibrellum en hins vegar er heildin
ekki sterk. Fínir leikarar og skemmtilegur
Keith Richards. Keira Knightley og Orl-
ando Bloom eru kjánaleg.
Leikstjóri: Gore Verbinski
Aðalleikarar: Johnny Depp, Orlando Bloom, Keira
Knightley, Stellan Skarsgård, Geoffrey Rush og Chow
Yun-Fat.
Niðurstaða: HHHHH
Það er óhætt að segja að tónleikar
Deep Purple og Uriah Heep hafi verið
tvískiptir á sunnudaginn var.
Síðarnefnda sveitin var mun ferskari
og stóð starfsbræðrum sínum í Deep
Purple skrefi framar á nánast öllum
sviðum.
Þegar ég gekk inn í höllina var Uriah
Heep byrjuð að spila og var á fyrsta
lagi. Stemningin leyndi sér ekki og
hvort sem það var gamli, fulli
rokkarinn við hliðina á mér eða
húsmóðirin úr Garðabænum þá voru
allir í hörkufíling. Krafturinn í Bernie
Shaw kom mér strax á óvart því ég
bjóst við því að hann væri búinn að
missa meiri kraft úr söng sínum.
Hljómsveitin sjálf eða hljóðfæraleikur-
inn var nánast óaðfinnanlegur og
bandið lék á alls oddi. Það var
sérstaklega skemmtilegt að fylgjast
með trommaranum Russell Gilbrook,
sem gekk nýlega til liðs við sveitina eftir
að Lee Kerslake þurfti að hætta sökum
lélegrar heilsu. Gilbrook var hreinlega
ógnandi á trommunum hann var svo
kraftmikill. Maður beið bara eftir því að
hann myndi brjóta settið. Þrátt fyrir
það leyndi ótrúleg færni hans sér ekki
enda er Gilbrook mjög virtur trommari
og á meðal annars sæti í Brighton
Institute of Modern Music, þrátt fyrir
að útlit hans minni helst á handrukk-
ara. Þá sýndi Mick Box líka ótrúlega
takta á gítarnum og hann virtist
hreinlega ekkert hafa fyrir því að galdra
fram frábær sóló.
Því miður þá tókst Deep Purple
engan veginn að fylgja þessu eftir.
Maður fann það strax að Ian Gillan
réði ekki jafn vel við verkefnið og áður.
Hann þurfti að rembast mikið á
löngum köflum og það kom ekkert
alltof vel út. Auðvitað voru slagarar
sveitarinnar eins og Smoke on the
Water frábærir en það var ekki nóg. Þá
var helmingurinn af atriði sveitarinanr
margra mínútna löng sóló gítarleikar-
ans Steves Morse og hljómborðsleik-
arans Dons Airey og verður það bara
þreytt á endanum þó svo að þeir séu
frábærir hljóðfæraleikarar.
Ásgeir Jónsson
ÞRIÐJUdagUR 29. maí 200726 Bíó DV
URIAH HEEP STAL SENUNNI
LOPINN TEYGÐUR
MEÐ TÆKNIBRELLUM
The Pirates of the Caribbean:
At World‘s End Heldur þunnt
ævintýri, en gleður vissulega
augað.
Allt að verða vitlaust Lopinn
teygður alltof langt.
Deep Purple Ian
gillan náði sér ekki
á strik í þetta sinn.
Tónleikadómur
deeP PurPle &
uriah heeP
Laugardalshöll
Sunnudagur 27.maí
Uriah Heep: HHHHH
Deep Purple: HHHHH
SÍMI 551 9000
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
MIÐASALA Á
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 530 1919
UNKNOWN kl. 5.50 - 8 - 10.10
THE PAINTED VEIL kl. 5.30 - 8 - 10.30
IT´S A BOY GIRL THING kl. 5.50 - 8 - 10.10
SPIDERMAN 3 kl. 6 - 9
ANNAÐ LÍF ÁSTÞÓRS kl. 6
UNKNOWN kl. 5.50 - 8 - 10.10
FRACTURE kl. 5.30 - 8 - 10.30
THE CONDEMNED kl. 10.30
THE LIVES OF OTHERS kl. 5.30 - 8 - 10.30
PIRATES OF THE CARIBBEAN 3 kl. 3 - 5 - 7 - 9 - 11
PIRATES OF THE C. 3 LÚXUS kl. 5 - 9
FRACTURE kl. 8 - 10.30
IT´S A BOY GIRL THING kl. 3.45 - 5.50
SPIDERMAN 3 kl. 5 - 8 - 10.50
10
14
10
16
10
16
14
16
16
IT´S A BOY GIRL THING kl. 6
FRACTURE kl. 8 - 10.10
SPIDERMAN 3 kl. 6
THE CONDEMNED kl. 9
14
10
16
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
F.G.G. Fbl.
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
www.SAMbio.is 575 8900
álfabakka
PIRATES CARRIBEAN 3 kl. 4:30 - 6 - 8 - 10 10
PIRATES 3 VIP kl. 4:30 - 8
ZODIAC kl. 6 - 9 16
THE REAPING kl. 8 - 10:10 16
SPIDER MAN 3 kl. 5 10
BLADES OF GLORY kl. 5:50 - 8 12
ROBINSON FJ... ÍSL TAL kl. 3:50 L
kRINGlUNNI
kEflaVÍk
akUREYRI
PIRATES 3 kl 6 - 8 - 10 10
GOAL 2 kl 6 7
PIRATES CARRIBEAN 3 kl. 6 - 8 - 10 10
DIGITal
PIRATES OF THE CARIBEAN 3
kl. 6:15 - 8 - 10 - 10:20 10
GOAL 2 kl. 5:50 - 8 7
ROBINSON F.. M/- ÍSL TAL kl. 5:50 LDIGITal-3D
HJ MBL
PANAMA.IS
VJV TOPP5.IS
Hörkuspennandi mynd byggð á sannsögulegum atburðum.
Nánari upplýsingar á www.SAMbio.is
PIRATES 3 kl. 3.15, 6.30 og 10-POWER 10
SPIDERMAN 3 kl. 4, 7 og 10 10
SEVERANCE kl. 8 16
SHOOTER kl. 10 16
ÚTI ER ÆVINTÝRI kl. 4 og 6 -450 kr.- L
www.laugarasbio.is Sími: 553 2075
- bara lúxus
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR