Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2007, Blaðsíða 8
ÞRIÐJudaguR 29. MaÍ 20078 Fréttir DV
Verði tillögur Roberts Mugabe, for-
seta Simbabve, að lögum verða öll
erlend fyrirtæki í landinu skylduð
til að afhenda ríkinu fimmtíu og
eitt prósent hlutafjár í fyrirtækj-
unum. Stjórnvöld í landinu færu
þá með meirihlutaeign í þeim og
hefðu tögl og haldir í stjórn þeirra.
Þessi aðferð til að rétta við bágan
efnahag landsins hljómar fram-
andi í eyrum erlendra sérfræðinga
og ekki eru allir ráðherrar Muga-
bes sammála honum um ágæti
hennar.
Lærir ekki af reynslunni
Efnahagsástandið í Simbabve
er ömurlegt um þessar mund-
ir. Heimsmet eru sett í verðbólgu
í hvert skipti sem hún er reiknuð
og áttundi hver landsmaður er at-
vinnulaus. Þannig var ástandið ekki
áður en Mugabe hrakti hvíta bænd-
ur af jörðum þeirra í kringum alda-
mótin. Þá var landið stór útflytjandi
landbúnaðarafurða en í dag er það
háð innflutningi og matargjöfum
frá hjálparstofnunum. Til dæm-
is hafa stjórnvöld varað við brauð-
skorti í haust þar sem kornuppskera
verður langt undir þeim mörkum
sem vonast var til að hún yrði.
Samkvæmt frétt breska blaðs-
ins The Guardian í gær óttast sér-
fræðingar að nýju lögin um eignar-
hald erlendra fyrirtækja muni hafa
sömu afleiðingar. Þau muni fæla
erlenda fjárfesta frá landinu sem er
mjög slæmt á þessum tímapunkti
þegar landið sárvantar erlendan
gjaldeyri. Simbabve er fyrrverandi
nýlenda Breta og eru mörg bresk
fyrirtæki með starfsemi í landinu.
Breski bankinn Barclays er með-
al þeirra sem kynnu að verða fyr-
ir barðinu á lögunum og eins tvö
námufyrirtæki sem skráð eru í
kauphöllinni í London. Haft hefur
verið eftir Mugabe að öll fyrirtæki
sem hefðu með dólgslegum hætti
reynt að koma á stjórnarskiptum í
landinu yrðu tekin eignarhaldi.
Dauðadómur yfir fyrirtækjum
Innlendur hagfræðingur sem
rætt er við í grein blaðsins seg-
ir tilgang Mugabes með lögun-
um eingöngu vera þann að umb-
una stuðningsmönnum sínum líkt
og hann gerði þegar landbúnað-
arjarðirnar voru teknar. Hann tel-
ur að nýju lögin jafngildi því að
þjófnaður yrði lögleiddur í land-
inu og þetta verði til þess að fjöldi
fyrirtækja leggi upp laupana. Und-
ir það taka erlendir viðskiptamenn
sem segja mikla hættu á spillingu
og óskilvirkni í rekstri fyrirtækj-
anna í kjölfar breytts eignarhalds.
En samkvæmt nýju lögunum verð-
ur meirihlutaeignin færð innfædd-
um íbúum landsins sem eru stuðn-
ingsmenn flokks Mugabes. Tillögur
stjórnar forsetans koma hins veg-
ar ekki eins og þruma úr heiðskíru
lofti og hafa nokkur erlend fyrirtæki
búið sig undir að eitthvað þessu líkt
kynni að gerast. Hafa þau því dreg-
ið úr starfsemi sinni jafnt og þétt
síðustu ár. Í tilkynningu frá Barcl-
ays á sunnudag segir að enn sé of
snemmt að meta hvaða áhrif meint
löggjöf kunni að hafa á starfsemi
bankans í landinu. Um þúsund
manns vinna hjá Barclays í Simb-
RÍKIÐ VERÐI MEIRIHLUTAEIGANDI
Í ÖLLUM ERLENDUM FYRIRTÆKJUM
Nýjustu aðgerðir Roberts Mugabe, forseta Simbabve til að rétta við efna-
hag landsins eru taldar hafa þveröfug áhrif. Efnahagsástandið versnar
stöðugt og fjöldahandtökur stjórnarandstæðinga halda áfram. Stjórnin býr
sig undir kosningar með því að stórefla lögregluna:
Útibú Barclays-bankans Bankinn hyggst endurmeta umfang starfsemi sinnar í
Simbabve verði ný lög um eignarhald erlendra fyrirtækja samþykkt í sumar.
Robert Mugabe, forseti
Simbabve Vill að stuðningsmenn
sínir fái meirihlutaeign í öllum
erlendum fyrirtækjum í landinu.