Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2007, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2007, Blaðsíða 2
miðvikudagur 30. maí 20072 Fréttir DV InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Eldur í Eiðismýri Eldur kviknaði í pönnu á elda- vél í fjölbýlishúsi við Eiðismýri rétt fyrir hádegið í gær. Slökkvilið kom snarlega á vettvang og réði niðurlögum eldsins. Lögreglu- menn á staðnum sögðu að ein- hverjar skemmdir hefðu orðið innandyra, einkum í eldhúsinu. Slökkvilið vaktaði íbúðina fram yfir hádegið til þess að hindra að eldurinn næði sér aftur á strik. Íbúum var nokkuð brugð- ið en allir voru heilir á húfi. Helga Þórðardóttir og Gunnar Jónsson sameinuð á ný: Hittast á hverjum degi Hjónin Helga Þórðardóttir og Gunnar Jónsson hittast nú á hverjum degi og er það mikil breyting frá því þegar Helga þurfti að leggja á sig 400 kílómetra ferðalag í hvert skipti sem hún heimsótti mann sinn. Helga og Gunnar eru á níræðis- og tíræðisaldri. DV sagði frá því 25. apríl síðastliðinn að ekkert pláss hafi verið fyrir Gunnar á hjúkrunarheim- ilum í nágrenni Selfoss, þar sem þau hafa búið alla tíð. Brugðið var því á það ráð að senda Gunnar á hjúkr- unarheimili á Kirkjubæjarklaustri sem er í tvö hundruð kílómetra fjar- lægð frá Selfossi. Helga þurfti því að leggja á sig rúmlega fjögur hundruð kílómetra akstursleið í fimm klukku- stundir í hvert skipti sem hún hitti eiginmann sinn. Helga keyrir ekki sjálf og því þurfti hún að reiða sig á fjölskyldumeðlimi til þess að aka sér á Kirkjubæjarklaustur. Hjónin hafa nú fengið greitt úr sínum málum því Gunnari hefur verið úthlutað plássi á hjúkrunar- heimilinu að Kumbaravogi sem er í einungis tólf mínútna akstursfjar- lægð frá heimili þeirra hjóna. Helga kvaðst í samtali við DV vera afar glöð yfir því að málið hefði ver- ið leyst á farsælan hátt og það breyti miklu að geta hitt Gunnar alla daga. „Nú er hann kominn á Kumbaravog og ég er mjög ánægð með það. Nú heimsæki ég hann á hverjum degi og sit hjá honum með prjónana mína,“ segir hún. Helga segist hafa fengið mikil viðbrögð frá sveitungum sínum eftir að DV fjallaði um mál hjónanna. „Það voru margir vinir og kunn- ingjar sem fylgdust með málinu. Ég var mjög ánægð með umfjöllun- ina og hér um bil rammaði greinina inn. Það eru margir sem hafa kom- ið í heimsókn til mín til þess að lesa greinina. Það er alveg ljóst að þessi umfjöllun átti hlut að því að greitt var úr málunum.“ valgeir@dv.is Ölvaður á bíl mömmu Ölvaður ökumaður ók útaf gatnamótum Laugarvatns- og Biskupstungnabrautar aðfara- nótt sunnudag. Bíllinn hafnaði á umferðaskilti en ökumann sak- aði ekki. Ökumaður, rúmlega tvítugur karlmaður, var á bíl móður sinn- ar í leyfisleysi en hann er sviptur ökuréttindum. Þegar Selfosslög- regla handtók manninn fannst hass í fórum hans. Maðurinn við- urkenndi brot sín við yfirheyrslu. Ríkið getur hagnast á því að af- nema tengingar tryggingabóta við atvinnutekjur eldri borgara og ör- yrkja. Einungis lítill hluti öryrkja og um tíu prósent eldri borgara á aldr- inum 65 til 71 árs þarf að fara út á vinnumarkað til þess tekjur ríkis- sjóðs aukist. Stór hluti eldri borgarar sem ekki vinnur nú hefur áhuga á því að hefja störf. Í niðurstöðum úr skýrslu sem unnin var af Rannsóknarsetri versl- unarinnar í samstarfi við Hagfræði- stofnun HÍ, kemur fram að áhrif afnáms tekjutengingar getur haft jákvæð áhrif á tekjur ríkissjóðs. „Ef einhver hópur fer að vinna sem ekki vinnur núna og greiddi tekju- skatt, gæti farið svo að ríkið græddi á þessu. Jafnvel þó enginn færi út á vinnumarkaðinn eftir afnám tekju- tengingarinnar myndi það kosta rík- ið tiltöluleg lítið. Í hæsta lagi einn til tvo milljarða en einungis nokkur hundruð milljónir ef að líkum læt- ur,“ segir Dr. Sigurður Jóhannesson hagfræðingur sem kynnti niðurstöð- ur skýrslunnar í Húsi atvinnulífsins í gær. Sigurður segir mikla eftirspurn eftir eldra fólki í vissar tegundir starfa sem krefjast reynslu. Eins segir hann vöntun á fólki í störf sem ekki krefjast líkamlegrar áreynslu. Sigurður seg- ir afnám tekjutengingarinnar muni leiða til þess að fleiri öryrkjar sæki út á vinnumarkaðinn. Í núverandi ástandi myndi það leiða til minnk- andi þennslu og bættrar hamingju þeirra sem vilja vinna. Í viðhorfskönnun sem fylg- ir skýrslunni kemur fram að nær 30 prósent eftirlaunaþega sem ekki eru starfandi nú hafa áhuga á at- vinnuþáttöku ef það skerðir ekki líf- eyristekjur þeirra. Ekki liggja fyr- ir sambærilegar tölur um öryrkja. Í niðurstöðum skýrslunnar kemur einnig fram að gera megi ráð fyrir að þúsundir manna fari út á vinnu- markað ef af afnámi tekjutengingar verður. vidar@dv.is Hjónin Helga Þórðardóttir og Gunn- ar Jónsson eru á níræðis- og tíræð- isaldri. Þau hafa verið gift í 65 ár og búið saman á Selfossi alla tíð. Gunn- ar þjáist af heilabilun og hefur ver- ið á sjúkrahúsi undanfarnar fimm vikur. Ekkert pláss er fyrir Gunn- ar á hjúkrunarheimilum á Selfossi og í nágrenni og því sendu læknar á Sjúkrahúsi Suðurlands hann á hjúkr- unarheimilið á Kirkjubæjarklaustri, en það er í um það bil 200 kílómetra fjarlægð frá Selfossi. „Þegar hann veiktist var um nokkra kosti að ræða, ég neitaði Kirkjubæjarklaustri vegna þess að það var allt of langt í burtu fyrir okk- ur. Ég sætti mig hins vegar við að hann fari á Ljósheima, Kumbaravog eða Ás. Einn góðan veðurdag frétti ég það að hann væri á leiðinni austur á Kirkjubæjarklaustur án þess að við fjölskyldan hans vissum af því. Við höfðum gefið samþykki fyrir því að hann færi þangað í stuttan tíma, en við vissum ekki hvenær hann myndi fara. Síðan frétti ég það utan úr bæ að hann hafi verið sendur austur, án þess að ég gæti einu sinni hvatt hann,“ segir Helga. Fimm klukkutíma ferð. Helga segir fjölskylduna vera afar reiða og hneykslaða yfir því að Gunnar skuli hafa verið sendur á Kirkjubæjarklaustur. Helga keyrir ekki sjálf og því er hún upp á fjöl- skyldu sína komin í hvert skipti sem hún vill heimsækja eiginmann sinn á hjúkrunarheimilið. „Krakkarnir leyfa mér ekki að keyra, ég er búin að fara tvisvar að heimsækja hann og þetta er rosalega langur bíltúr. Ég þarf að keyra rúma tvö hundr- uð kílómetra hvora leið til þess að heimsækja eiginmanninn. Mér líður mjög illa yfir þessu því það er ljótt að koma svona fram við gamalmenni. Hann er geymdur einhversstaðar einn, langt í burtu frá öllum og þarf að vera einn allan sólarhringinn.“ Vegna vinnu barnana geta hjón- in ekki hitt hvort annað nema um helgar. „Við þurfum að leggja af stað klukkan níu á morgnana og erum komin til hans um hádegisbil, síð- an þurfum við að keyra alla leið til baka, þannig að allur dagurinn hef- ur farið í þetta,“ segir hún. Myndi heimsækja hann daglega Aðskilnaðurinn tekur mjög á hjónin og segir Helga að Gunn- ar kalli nafn hennar dag og nótt. Í hvert skipti sem hún hefur heim- sótt hann á Kirkjubæjarklaustur hef- ur hann haldið að hún sé komin til að sækja hann. „Læknarnir segja að hann muni ekki nafnið mitt, en hann þekkir mig og alla fjölskyldumeðlimi sem koma til að heimsækja hann.“ Hún segir að ef Gunnar fengi pláss á hjúkrunarheimilinu myndi hún heimsækja hann daglega. „Von- andi kemst hann á Kumbaravog fljótlega. Auðvitað myndi ég þá vera hjá honum alla daga, ég myndi sitja með prjónana mína á hverjum degi hjá honum og þá myndi honum líða vel og finnast hann vera eins og heima hjá sér.Hann er vanur því að sjá mig sitja með prjónana mína. Ef hann kemst inn á Kumbaravog þá fer ég þangað á hverjum degi, en mér gefst enginn kostur á því þegar hann er í þessari fjarlægð.“ þriðjudagur 24. apríl 20072 Fréttir DV InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Helga Þórðardóttir Gunnar Jónsson ferðast 400 kílómetra fyrir hverja heimsókn ValGeir Örn raGnarsson blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is „Krakkarnir leyfa mér ekki að keyra, ég er búin að fara tvisvar að heimsækja hann og þetta er rosalega lang- ur bíltúr.“ Allir hagnast á afnámi tekjutengingar bóta niðurstöður kynntar dr Sigurður jóhannesson er hér lengst til hægri ásamt dr.Sveini agnarssyni (fyrir miðju) og Emils B. Karlssonar (til hægri) þegar niðurstöðurnar voru kynntar. vilja tónlistar- nám fyrir alla „Við viljum að tónlistarnám verði metið til jafns við allt annað nám,“ segir Fjóla Einarsdóttir for- maður Samfé- lagsins, félags framhaldsnema við félagsvísinda- deild HÍ, sem í samstarfi við félag tónlistar- nema stendur fyrir hádegisfundi í dag um fram- tíð tónlistarnáms á Íslandi. Fjóla segir að tónlistarnám í FÍH sé mjög eftirsótt og miklar kröfur gerðar til nemenda. Því sé slæmt að nemum sé mismunað eftir búsetu og aldri. „Tónlistar- nám er dýrt og við viljum ekki að það sé einungis aðgengilegt ríku fólki og þeirra börnum,“ segir Fjóla sem býst við líflegum fundi þar sem fulltrúar allra stjórn- málaflokkanna hafa boðað komu sína. engar meirihátt- ar framkvæmdir „Þjóðvegurinn er ágætlega greiðfær nema á Vestfjarðaheið- um þar sem má finna einstaka hálkubletti,“ segir Kristín Lilja Kjartansdóttir, deildarstjóri um- ferðarþjónustu Vegagerðarinn- ar á Ísafirði. Kristín bendir á að á hringveginum séu fjallvegir og þar geta myndast hálkublettir eftir rigningar, en almennt séð er ástand vega á láglendinu mjög gott. Engar meiriháttar fram- kvæmdir eru á þjóðveginum þessa stundina en þó eru fyrir- hugaðar vegalagnir í Ísafjarðar- djúpi. „Nú þegar er farið að huga að minniháttar viðgerðum eins og vegna holuskemmda víða um land og þegar þiðnar enn frekar munum við setja þungatakmark- anir á valda vegi,“ segir Kristín. Innbrot og ölvunarakstur Brotist var inn í tvö hús að- faranótt mánudags á höfuð- borgarsvæðinu. Smáræði var tekið og skemmdarverk unninn þegar brotist var inn. Þjófanna er leitað en ekki er búið að hafa uppi á þeim. Ekkert var um ölv- unarakstur aðfaranótt mánu- dags. Þó voru sautján manns teknir ölvaðir undir stýri yfir helgina á höfuðborgarsvæð- inu. Yngsti stúturinn var 15 ára gamall og var á stolnum bíl ásamt 16 ára félaga sínum. Helga Þórðardóttir og Gunnar Jónsson Helga getur aðeins heimsótt eiginmann sinn um helgar og þarf að reiða á aðra til þess að keyra hana á Kirkjubæjarklaustur.Ömurlegar aðstæður dv sagði frá því 24. apríl að fjögur hundruð kíló trar skildu gömlu hjónin að. gunnari hef r nú verið úthlutað plássi á kumbaravogi. Skert þjónusta í Árbænum „Furðu vekur að þetta er gert rétt áður en boðað hefur verið að gjaldfrjálst eigi að vera fyrir námsmenn í strætó til að auka nýtingu vagnanna og draga úr umferð. Með þessu er verið að skera Árbæjarhverfi frá helstu skólum landsins og stærstu vinnustöðum. Það verður að teljast sérstaklega undarlegt í ljósi áforma um gjaldfrjálsar al- menningssamgöngur fyrir náms- menn,“ segir Dagur B. Eggerts- son, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn. Strætó bs. hefur tilkynnt um breytingar á leiðakerfi strætis- vagna og tíðni ferða. Ein af breyt- ingunum er að hraðleiðin S5 frá Árbænum keyrir Sæbraut, í stað Miklubrautar áður. Dagur telur þessar breytingar þvert á yfirlýsta stefnu um bættar almennings- samgöngur í höfuðborginni. Kántríbærinn Skagaströnd Nafni sveitarfélagsins Höfða- hrepps verður breytt í Skaga- strönd. Hugur íbúa var kannaður í nýafstöðnum alþingiskosning- um og var niðurstaðan afgerandi, tæplega sjötíu prósent íbúa vilja nafnið Skagaströnd. Í tilkynningu frá Magnúsi Jónssyni sveitar- stjóra segir að málið verði afgreitt á næsta hreppsnefndarfundi. Tvöfaldur varaformaður Katrín Jakobsdóttir, varafor- maður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, sem kosin var á þing í vor í fyrsta sinn, var kjörin varaformaður þingflokks vinstri grænna á þingflokks- fundi í gær. Þar með er hún hvort tveggja varaformaður flokksins og þingflokksins. Katrín er eini nýliðinn í stjórn þingflokksins. Ögmund- ur Jónasson er sem fyrr þing- flokksformaður og Kolbrún Halldórsdóttir ritari þingflokks- ins. Karl Vignir Þorsteinsson sem hefur játað að hafa misnotað dreng kynferðislega á Kumbaravogi er grunaður um fleiri brot. Fyrrverandi forstöðumaður á Kumbaravogi segir það ekki hafa komið sér á óvart að Karl Vignir hafi játað brotin en neitar því að hafa grunað hann um barnagirnd þegar hann vandi komur sínar þangað. HÆTTULEGUR MAÐUR Kristján Friðbergsson, fyrrverandi forstöðumaður uppeldisheimilisins á Kumbaravogi, segir það ekki hafa komið sér á óvart að Karl Vignir Þor- steinsson hafi játað að hafa marg- sinnis misnotað kynferðislega dreng, sem var vistaður á heimilinu. Ítar- lega hefur verið fjallað um starfsemi Kumbaravogs í blaðinu að undan- förnu. DV greindi frá því í gær að Karl Vignir hafi játað í yfirheyrslu lögreglu að hafa beitt drenginn kynferðislegu ofbeldi fyrir luktum dyrum á árun- um 1969 til 1973. Sök mannsins er hins vegar fyrnd og því er ekki hægt að aðhafast frekar í málinu. Neitar að tjá sig um lögreglurannsókn Kristján Friðbergsson neitar því staðfastlega að hann hafi nokkurn tímann grunað Karl Vigni um barna- girnd á tímabilinu sem hann vandi komur sínar á Kumbaravog og seg- ir erindagjarðir hans hafa verið að heimsækja sig, enda hafi þeir verið gamlir vinir frá því þeir bjuggu báðir í Vestmannaeyjum. Kristján úthýsti Karli Vigni á endanum frá uppeldisheimilinu á Kumbaravogi, en Kristján segir það ekki hafa verið vegna barnagirndar mannsins. Kristján neitaði hins veg- ar að tilgreina hvaða ástæður lágu að baki því og varðist allra fregna. Hann neitaði jafnframt að tjá sig nokkuð um lögreglurannsókn málsins og hvort hann hafi verið kallaður til yf- irheyrslu vegna málsins og sagðist ekki vilja ræða frekar við DV. Eins og fram kom í DV í gær hef- ur réttargæslumaður kæranda í mál- inu, Óskar Sigurðsson, óskað eftir lögregluskýrslu og öðrum gögnum sem lögregla hefur aflað við rann- sókn málsins, en ekki fengið í hend- ur ennþá. Vikið úr kirkjusöfnuði Karl Vignir var safnaðarmeðlim- ur í Kirkju sjöunda dags aðventista en honum var vikið úr söfnuðinum fyrir um það bil áratug síðan. Björg- vin Snorrason, fyrrverandi prestur í kirkjunni, vék Karli Vigni úr söfn- uðinum eftir að stúlka greindi frá því að hann hefði misnotað hana kynferðislega. Málið kom aldrei til kasta lögreglu en Björgvin telur víst að Karl Vignir hafi misnotað hana margsinnis. „Þetta gerðist bæði áður en hún varð kynþroska og eftir. Karl Vignir talaði um börn á þessum aldri sem konfektið sitt,“ segir hann og á þar við að Karl Vignir hafi sérstak- lega sóst eftir því að misnota börn á þessum aldri. Karl Vignir var á tímabili um- sjónarmaður aðventukvölda í kirkj- unni í Reykjavík en Björgvin tók það hlutverk af honum vegna þess að orðrómur var þegar kominn á kreik um barnagirnd hans. Hins vegar var málið þannig að safnaðarmeðlim- ir höfðu ekki haldbærar sannanir um kenndir mannsins. „Við höfðum aldrei neinar sannanir fyrr en stúlk- an steig fram og greindi frá málinu. Þetta er einfaldlega hættulegur mað- ur sem á aldrei að vera einn í kring- um börn og ungmenni.“ Reynir Guðsteinsson var skóla- stjóri í grunnskólanum í Vestmanna- eyjum á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar, en Karl Vignir er fædd- ur og uppalinn í Vestmannaeyjum. Reynir staðfestir að minnsta kosti eitt tilvik í Vestmannaeyjum þar sem Karl Vignir misnotaði unga stúlku kynferðislega, málið var tæplega þrjátíu ára gamalt þegar það kom upp á yfirborðið og varð því aldrei að lögreglumáli. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náð- ist ekki í Karl Vigni við vinnslu frétta- rinnar. ValGeir ÖrN raGNarssoN blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is Krotað hefur verið yfir andlit mannsins Heimildarmenn dv lýsa karli vigni sem hlýjum og góðlegum manni og margir eiga erfitt með að trúa því að hann sé barnaníðingur. Tölvuóð þjóð Það verður víst seint hægt að segja að Íslendingar séu ekki tæknivæddir en á þessu ári eru tölvur á átta af hverjum níu heimilum og 84% heimila gátu tengst internetinu. Þetta kem-ur fram í úttekt Hagstofunnar á upplýsingatækni hér á landi. Nærri níu af hverjum tíu net-tengdum heimilum nota ADSL, SDSL eða annars konar xDSL nettengingu og einungis sjö prósent nettengdra heimila nota hefðbundna upphringitengingu eða ISDN. Einnig kemur fram að níu af hverjum tíu Íslendingum á aldrinum 16 til 74 ára nota tölvu og internet og flestir nota tölv-urnar til samskipta og upplýs-ingaleitar. ÞRIÐJudaguR 29. MaÍ 2007 2 Fréttir DVInnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Banki styrkir matjurtarækt Kaupþing tekur þátt í átaki til að auka áhuga leikskóla- barna á grænmeti og græn- metisneyslu. Öllum leikskól-um landsins bjóðast tæki og tól til að útbúa hjá sér mat- jurtagarð. Frá þessu er sagt á vef Víkurfrétta. Vonast er til þess að börnunum finnist spennandi að rækta græn- meti og fyrir vikið verði einnig spennandi fyrir þau að borða grænmeti sem þau hafa sjálf ræktað. Jón fær helmingi lægri biðlaun Jón Sigurðsson, fyrrverandi ráðherra og formaður Fram-sóknarflokksins, fær helmingi lægri biðlaun en aðrir ráðherrar Framsóknarflokksins sem létu af ráðherraembætti í gær. Hann fær greidd biðlaun í þrjá mánuði en Guðni Ágústsson, Jónína Bjartmarz, Magnús Stefáns- son, Siv Friðleifs- dóttir og Valgerð- ur Sverrisdóttir fá greidd biðlaun í hálft ár. Jón sat sem formaður flokksins og ráð-herra í 9 mánuði en hefði þurft að sitja samfellt í ár til að hljóta sama biðlaunarétt og hinir fyrr-verandi ráðherrarnir. JÁTAR EN SLEPPUR Karlmaður hefur játað ítrekaða kyn-ferðislega misnotkun á dreng sem vistaður var á uppeldisheimilinu á Kumbaravogi á árunum 1969 til 1973. DV sagði frá því að fórnarlambið hefði lagt fram kæru hjá lögreglunni á höf-uðborgarsvæðinu þann 16. mars síð-astliðinn, þar sem krafist var ítarlegr-ar rannsóknar á framferði mannsins. Maðurinn, Karl Vignir Þorsteinsson, var í kjölfarið boðaður í skýrslutöku, þar sem hann játaði að hafa misnot-að drenginn margsinnis á tímabilinu. Þrátt fyrir að játning liggi fyrir, getur lögreglan ekki aðhafst frekar í málinu, þar sem sök mannsins er fyrnd. Í al-mennum hegningarlögum er kveðið á um að ef sök er fyrnd, sé ekki hægt refsa fyrir háttsemina. Réttargæslumaður kæranda, Ósk-ar Sigurðsson héraðsdómslögmaður, hefur staðfest þetta við DV. Lögregla verst fregna DV hefur sagt frá að Karl Vignir hafi verið starfsmaður á Sólheimum Í Grímsnesi, þaðan var honum vikið úr starfi. Þá hefur honum verið vik-ið úr Aðventistakirkjunni í Reykjavík og eftir að DV fjallaði um barnagirnd hans var honum vikið úr nefndar-störfum sem hann gegndi hjá líkn-arfélagi. Karl vandi komur sínar á Kumbaravog á fyrrgreindu tímabili þar sem hann bauð drengnum sæl-gæti áður en hann misnotaði hann fyrir luktum dyrum. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisafbrotadeildar lögreglunn-ar á höfuðborgarsvæðinu, varðist allra fregna af framvindu rannsóknar málsins og neitaði að tjá sig við DV að öðru leyti en að málið hafi komið inn á borð til lögreglunnar. Óskar Sigurðsson, réttargæslu-maður kæranda hefur óskað eft-ir lögregluskýrslu og öðrum gögn-um sem lögregla hefur aflað en ekki fengið þau í hendur ennþá. Því liggur ekki fyrir hvort Kristján Frið-bergsson, sem var forstöðumaður á Kumbaravogi á þeim tíma sem brot-in áttu sér stað, hafi verið boðaður til yfirheyrslu, eða aðrir sem tengdust uppeldisheimilinu. Ólíklegt að miskabætur verði greiddar Réttur til skaða- og miskabóta fyrnist tíu árum eftir að brot er fram-ið, hins vegar er ákvæði í fyrningar-lögum þar sem kveðið er á um að mögulegt sé að sækja bótamál þótt krafan sé fyrnd ef brotamaður er sakfelldur fyrir dómi. Nýleg lög um afnám fyrningarfrests á kynferðis-brotum þegar fórnarlambið er undir fjórtán ára aldri eru heldur ekki aft-urvirk. Óskar Sigurðsson telur því ólík-legt að kærandi eigi rétt á miskabót-um, þar sem ekki er hægt að sak-fella Karl Vigni vegna brotanna. Um ábyrgð Kristjáns Friðbergssonar í málinu segir hann: „Forstöðumaður heimilisins var ábyrgur fyrir öryggi barnanna, en það er ómögulegt að segja til um hvort hann vissi af brot-unum eða ekki og því er ábyrgð hans í þessu máli óljós.“ Munum ná réttlætinu fram Páll Rúnar Elísson, formaður Breiðavíkursamtakanna segir sam-tökin ekki una því ef miskabætur verða ekki greiddar. „Við mótmælum því harðlega og við erum alls ekki sáttir við þá stöðu. Samtökin eru rétt að byrja að láta að sér kveða og við munum reyna að ná réttlætinu fram á næstunni.“ Hann tekur ekki undir álit Óskars og telur að málið þurfi að vera kruf-ið betur. Páll Rúnar segist hins vegar ekki vilja tjá sig meira um málið að svo komnu. VaLgeir Örn ragnarsson blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is Kumbaravogur Maðurinn vandi komur sínar á Kumbaravog og misnotaði drenginn kynferðislega á árunum 1969 til 1973. Karl Vignir Þorsteinsson Krotað hefur verið yfir andlit hans. Bæjarstjórn vill olíuhreinsun Vilji er fyrir því að skoða frek-ar möguleika á uppbyggingu olíuhreinsistöðvar innan marka Ísafjarðarbæjar. Birna Lárusdóttir, formaður bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar, segir að ályktun þess efnis hafi verið samþykkt einróma á fundi bæjarstjórnar í síðustu viku. „Þetta er fyrst og fremst viljayfir-lýsing. Við erum að lýsa yfir vilja okkar til að skoða möguleikana.“ Bæjarstjórn Vesturbyggðar hefur sent frá sér sams konar viljayfir-lýsingu. „Næsta skref er að meta að-stæður á þessum stöðum með tilliti til náttúruverndar og sam-félagsmála,“ segir Aðalsteinn Óskarsson, framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Vestfirð-inga. „Þegar við vorum nánast komin upp þá kom bara svona smellur eða hvinur og flekinn byrjaði að síga nið-ur,“ segir Halldór Halldórsson, úr-smiður á Akureyri. Hann var einn þeirra sex sem flutu niður með snjó-flóði sem féll í Hlíðarfjalli á Akureyri á sunnudag. Hann kveðst hafa verið fljótur að jafna sig en honum hafi þó brugðið talsvert. „Við vorum alls sjö sem vorum að ganga þarna upp, sum með brettin með okkur. Tveir strákar voru á und-an okkur og annar þeirra var kominn alveg upp á brún þegar flóðið féll. Hin sex fóru niður með spýjunni,“ segir Halldór. Flóðið stöðvaðist fljót-lega. „Ég rétt náði að átta mig á því hvað var að gerast og þá var þetta búið.“ Flekinn sem fór af stað er talinn hafa verið eins metra þykkur og allt að því áttatíu metra breiður. Flóð-ið féll í hvilft sem er í fjallinu, ofan og sunnan við brekku sem nefnd er Strýta. Halldór segir veður hafa ver-ið þokkalegt, hiti um frostmark og snjórinn nýr. Guðmundur Karl Jónsson, for-stöðumaður skíðasvæðisins í Hlíð-arfjalli, segir nokkuð algengt að flóð falli á þessum slóðum. „Það hafa oft komið spýjur þarna niður en sjald-an svona stórar,“ segir Guðmundur. Hann segir brekkuna vera ansi bratta þarna og snjórinn eigi auðvelt með að skríða af stað. „Sjálft flóðið náði aldrei inn á sjálft skíðasvæðið og hafði þannig engin áhrif á starfsemina í fjall-inu,“ segir Guðmundur. Hann slær á að um fjögur hundruð manns hafi verið á skíðum á laugardag og sunnudag. Færið hafi verið óvenju- lega gott fyrir árstímann. Lögreglan á Akureyri fékk tilkynningu um snjó-flóðið og mætti á staðinn. Varðstjóri segir að þar sem ekki hafi verið um slys á fólki eða eignatjón að ræða heyri þó málið ekki undir lögregl-una. sigtryggur@dv.is Heyrðu skyndilega mikinn hvin snjóflóð í Hlíðarfjalli Snjólaust er í akureyrarbæ en fyrr í vikunni snjóaði nokkuð í fjöll í Eyjafirði og skapaðist því tækifæri til að opna skíðasvæðið í Hlíðarfjalli um hvítasunnuhelgina. Fré t DV frá því í gær „Karl Vignir talaði um börn á þessum aldri sem konfektið sitt.“ DV myND ÁsGeir aðventistakirkjan í reykjavík karli vigni var vikið úr kirkjunni eftir að stúlka greindi frá því að hann hefði misnotað hana kynferðislega.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.