Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2007, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2007, Blaðsíða 8
miðvikudagur 30. maí 20078 Fréttir DV Giftingum hefur fjölgað hlutfalls- lega undanfarna áratugi en fjöldi skilnaða staðið í stað á sama tíma. Í fyrra gekk 1.681 par í hjónaband en 498 hjón skildu. Fólk er líka orð- ið eldra þegar það gengur í hjóna- band en áður var. Í fyrra voru konur að meðaltali 31 árs og átta mánaða gamlar og karlar áttu að meðaltali eftir mánuð fram að þrítugasta og fjórða afmælisdegi sínum. Sveiflur í brúðkaupum „Þetta er ánægjulegt að sjá þess- ar tölur því það virðist vera að fólk sé að gifta sig í meira mæli en áður og sé síður að skilja. Líklegt er að það sé tengt því að giftingaraldur er að hækka,“ segir Hjörtur Magni Jó- hannsson fríkirkjuprestur. Í nýjum tölum frá Hagstofunni kemur fram að skilnaðartíðnin hefur haldist frekar jöfn í yfir tvo áratugi, á með- an giftingartíðni hefur sveiflast mik- ið og hækkað frá því á áttunda ára- tug síðustu aldar. Hjörtur segir að það hafi verið mikið um brúðkaup síðustu ár. Á sjöunda áratugnum og í upphafi þess áttunda gengu að meðaltali átta af hverjum þúsund landsmönnum í hjónaband ár hvert. Þetta breyttist svo mikið í kring- um 1990 þegar giftingum fækkaði og þá náðu þær sögulegu lágmarki þegar aðeins 4,5 af hverjum þúsund landsmönnum gengu í hjónaband. Frá miðjum 10. áratug 20. aldar hef- ur giftingum fjölgað aftur. Giftingar- tíðni varð áberandi há 2000, eða 6,3 af hverjum þúsund íbúum, en mörg pör ákváðu að ganga í það heilaga á aldamótaárinu. Þróunin á Norðurlöndunum Árið 2006 var giftingartíðni hér- lendis 5,5 á hverja 1.000 íbúa en það var mjög svipað og árið áður. Í Nor- egi og Finnlandi er giftingartíðn- in álíka há og hér á landi. Hins veg- ar er þróunin öðruvísi í Danmörku og er giftingartíðni hæst þar af öllum Norðurlöndum, nær sjö af þúsund íbúum ganga í hjónaband ár hvert. Svíar eru einnig frekar ólíkir Íslend- ingum á þessu sviði en þar er gifting- artíðnin mun lægri eða um fjórir af þúsund íbúum. Skilnaður í skorpum „Að vísu er ég með mörg skiln- aðarmál inni á borði hjá mér núna, þrátt fyrir þessa þróun, en mér finnst eins og þetta geti verið svolít- ið árstíðabundið. Það er mikið um skilnaði á vorin og í byrjun sumars og svo aftur á haustin. Ég veit ekki hvort það séu einhverjar geðlægð- ir sem hafa áhrif en það virðist vera frekar á ákveðnum tímum ársins sem fólk leitar sér skilnaðar,“ segir Hjörtur. Hins vegar telur Hjörtur hugar- far fólks til hjónabands og skilnaðar hafa breyst mikið á undanförnum árum. „Það er mín reynsla að fólk sem leitar til prests vegna skilnað- ar, eða allavega þeir sem hafa leit- að til mín, koma í einlægri leit að sátt. Það var hins vegar ekki svo hér áður og ég man það vel enda búinn að vera prestur í 20 ár, því þá komu flestir bara til þess að fá skilnaðar- pappírana. Nú vill fólk byggja upp það sem hefur farið illa og kemur jafnvel til þess að gera góð hjóna- Staða hjónabandsins er betri en hún hefur oft verið. Fólk giftist eldra en áður og þá gjarnan eftir að hafa búið lengi saman. Niðurstaðan er sú að þótt hjónaböndum fjölgi standa skilnaðir í stað. Ánægjuleg þróun, segir Hjörtur Magni Jóhannsson fríkirkjuprestur. ELDRI BRÚÐHJÓN LENGUR SAMAN Hjörtur Magni Jóhannsson Telur það jákvæða þróun að fólk gifti sig síðar á lífsleiðinni en áður var, því þá sé komin reynsla á sambandið. kriStíN HrefNa HalldórSdóttir blaðamaður skrifar: kristinhrefna@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.