Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2007, Blaðsíða 7
DV Fréttir miðvikudagur 30. maí 2007 7
BÍLSTJÓRAR SKIKKAÐIR
TIL AÐ SÆKJA NÁMSKEIÐ
breytingar á reglugerðinni. Þetta er
alls ekki aðlaðandi fyrir stéttina. Ég
er alveg viss um það að menn hugsa
sig tvisvar um ef þeir eru skikkaðir á
eitthvað námskeið og er sannfærð-
ur um að þetta muni fæla frá,“ segir
Valdimar. „Ég hef trú á því að þetta
sé aðeins til þess fallið að valda
enn frekari vandræðum í stéttinni.
Ég óttast að þetta verði frekar til
þess að fæla íslenska bílstjóra frá
og fjölga erlendum bílstjórum. Þeir
hugsanlega standa frekar í þessu.
Ég er viss um að menn nenni ekki
að sækja endalaus námskeið. Það
er bara ekki á vandræðin í stétt-
inni bætandi og því líst mér ekkert
á þetta.“
Þrátt fyrir tilraunir fengust ekki
svör frá Umferðarstofu vegna breyt-
inganna.
Tveir menn sýknaðir af ákæru um fíkniefnasmygl:
Missti vitið og var sýknaður
Tveir menn voru sýknaðir fyrir að
smygla inn tæplega 800 alsælutöflum
til Íslands frá Hollandi í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær. Annar maðurinn
sagði að sér hefði verið hótað lífláti
myndi hann ekki taka við pakkan-
um sem sendur var frá Hollandi. Þá
sýndi hann geðrofaeinkenni í gæslu-
varðhaldi og vildi meina að einhver
hefði borað inn í höfuðið á sér og
komið þar fyrir tæki.
Það var síðasta haust sem tollur-
inn í Hollandi stoppaði pakkasend-
ingu til Íslands. Í pakkanum reyndust
vera tvö tímarit og 800 alsælutöflur.
Samkvæmt dómsorði voru töflurnar
í sterkara lagi.
Fíkniefnalögreglan á Íslandi
skipti út töflunum og setti gervi-
efni í staðinn. Pakkinn var sendur á
heimili hins ákærða. Svo kom ann-
ar maður sem átti að sækja send-
inguna. Hann varð var við að búið
var að eiga við sendinguna. Hann
flúði þá húsið og var handtekinn
um leið.
Maðurinn sem sendingin var
send til var úrskurðaður í gæslu-
varðhald. Við yfirheyrslur neitaði
hann sakargiftum sterklega. Skyndi-
lega hélt hann því fram að einhver
væri búinn að bora inn í höfuð sitt.
Hann vildi meina að sá hinn sami
og boraði inn í höfuðið hefði kom-
ið þar fyrir einhvers konar tæki sem
olli minnisleysi. Lögreglan kallaði
á geðlækni í kjölfarið. Maðurinn
reyndist sakhæfur en hann sýndi
samt einkenni um geðrofa á meðan
hann sat í gæsluvarðhaldi.
Í héraðsdómi segir að ekki hafi
verið hægt að sakfella mennina
fyrir innflutninginn þar sem ekki
þótti sannað að þeir hefðu skipu-
lagt hann. Þá var ekki hægt að sýna
með óyggjandi hætti að þeir hafi
haft hugmynd um hvað væri í pakk-
anum. Voru þeir því sýknaðir. Máls-
kostnaður upp á sjöhundruð þús-
und krónur fellur á ríkissjóð.
valur@dv.is
Sýknaður í héraði maður missti vitið í
gæsluvarðhaldi og hélt því fram að mað-
ur hefði borað inn í höfuðið á honum.
Geir H. Haarde forsætisráðherra segir stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar skýra og
að á sumarþingi verði lögð áhersla á þau mál sem þar eru tilgreind. Steingrímur J.
Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, telur mál ríkisstjórn-
arinnar harðsoðin
HARÐSOÐIÐ SUMARÞING
Alþingi kemur saman á morgun í
fyrsta skipti eftir kosningar. Formenn
stjórnarflokkanna funduðu í gær
með formönnum stjórnarandstöðu-
flokkanna um skipulag sumarþings.
Þar var farið yfir hvernig þinghaldið
verður.
Greinilega samið jafnóðum
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs, segir að sér sé ekkert
að vanbúnaði til að mæta
til þings. „Ég held að
það sé frek-
ar ríkisstjórn-
in sem er með
sín mál dálít-
ið harðsoðin,
og í ein-
hverjum mæli virðast stjórnarflokk-
arnir vera að, eða eiga eftir að, semja
um nánari útfærslu á þessu. Stjórn-
arsáttmálinn er nú, eins og kunnugt
er, mjög almennt orðaður, ekki mjög
skýr eða handfastur, þannig að það er
greinilega verið að semja þessa hluti
jafnóðum.“ Steingrímur lætur engan
bilbug á sér finna. „Við tökum á móti
stefnuræðu forsætisráðherra sem
verður flutt hér á fyrsta kvöldi, tökum
þátt í þeim umræðum að sjálfsögðu
og tökumst þar á við stjórnarstefn-
una í fyrsta sinn.“
Líst ekki á sameiningu
ráðuneyta
Guðni Ágústsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, segist hlakka til að
takast á við nýja ríkisstjórn. „Ég held
að hún sé innbyrðis veik þrátt fyrir
þennan mikla mannfjölda. Ég er auð-
vitað mjög efins um að allt það sem
í bakherbergjunum liggur í handa-
bandi þeirra Geirs og Ingibjargar sé
orðið þingflokkum þeirra ljóst.
Þess vegna verður þetta mun
óljósara þing en ég bjóst
við sem er fram undan.“
Á sumarþinginu
hyggst ríkisstjórnin
leggja fram frumvarp til
breytinga á lögum um
ráðuneyti þar sem verk-
efni færast á milli.
„Hér hefur lengi
verið umræða um
eitt atvinnuvegaráðuneyti,“ segir
Guðni, „Landbúnaður og sjávarút-
vegur eru auðvitað okkar grunnat-
vinnuvegir í gegnum aldir og eru þýð-
ingarmiklir enn, þannig að í sjálfu
sér geta þeir farið saman. Það sem
mér þykir auðvitað verst í því er að
það eigi að taka af landbúnaðinum,
að mér heyrist, hvað landgræðslu og
skógrækt varðar. Ég trúi því reyndar
ekki því þetta eru framkvæmdastofn-
anir sem hljóta að vera undir land-
búnaðarráðuneyti og eiga að vera þar.
Mér líst ekki á þessa sameiningu en
ég verð auðvitað að taka þeim rökum
að ég ræð ekki ferðinni. “
Stjórnarsáttmálinn skýr
Geir H. Haarde, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, kom af fundinum
ásamt Ingibjörgu Sólrúnu Gísladótt-
ur, formanni Samfylkingarinnar, en
þau höfðu haldið fundinum áfram
í um hálfa aðra klukkustund án for-
manna hinna þingflokkanna.
„Við gerðum stjórnarandstöð-
unni grein fyrir okkar hugmynd-
um hvað sumarþingið varð-
ar, þannig að þeir viti svona
nokkuð hvað við erum að
hugsa,“segir Geir, „Stjórnar-
sáttmálinn er skýr og frek-
ar hefðbundinn miðað við
þess háttar skjöl undan-
farinna ára: það er margt
afgerandi í honum. Þau
mál sem við höfum í
hyggju að leggja áherslu á koma auð-
vitað upp úr stefnuyfirlýsingunni,
það eru breytingar á stjórnarráðslög-
um, þingsályktun um aðgerðaáætl-
un varðandi börn og ungmenni, og
hugsanlega málefni aldraðra.“
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for-
maður Samfylking-
arinnar, lét það
eitt uppi um fund
sinn með Geir að
þetta hafi verið
„almennt spjall“.
Flokksformenn funda Forsætisráð-
herra segir stjórnarflokkana ætla að
leggja áherslu á aðgerðaáætlun um
börn og ungmenni.
Steingrímur J. Sigfússon, formaður
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs Segir stjórnarsáttmálann óskýran.
Guðni Ágústsson, formaður
Framsóknarflokks Er efins um það
sem rætt er í bakherbergjunum.
ERLA HLYNSDÓTTIR
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
„Mér líst ekki á þessa
sameiningu en ég verð
auðvitað að taka þeim
rökum að ég ræð ekki
ferðinni.“