Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2007, Page 12
Þjóðarathygli vakti Jóna Bene-diktsdóttir, bæjarfulltrúi á Ísa-firði, þegar hún steig fram og
sagðist undrandi, hissa og algjörlega
ósammála því ráðslagi að bæjar-
fulltrúar þar vestra færu í kynnis-
ferðir yfir lönd og álfur til að skoða
olíuhreinsistöðvar. Jóna þessi komst
að því að bæjarfulltrúar á fjörðum
vestra hafi ekki sérstaklega mikið
vit á þannig starfsemi og hafi þess
vegna ekkert með þannig innkík að
gera. Eflaust sé hægt að finna annað
fólk til þeirra hluta.
Eðlilega fór afstaða Jónu pent í taugarnar á þeim félög-um hennar sem höfðu þegar
pakkað niður sokkataui,
skyrtum og brókum og
endurnýjað vega-
bréfið. Jóna svo sem
breytti engu, en hún
vakti upp spurning-
ar um ágæti ferða-
lagsins og það var víst
erfitt fyrir ferðalangana
að skýra frá þekkingu sinni
á olíufabríkkum. En hvað um það,
þeir fóru með spekingssvip og skoð-
uðu fabríkkur.
Heima sat Jóna. Hún hafði svo sem
nóg að gera, að-
stoðarskólastjóri
og þeir eru víst
störfum hlaðn-
ir, störfum sem þeir
þekkja og
kunna til
verka. Það hélt Jóna sem hafði sinnt
starfinu með ágætum, enginn hafði
fundið að henni eða verkum hennar
og allt virtist vera í þessu fína. Það
var hlutverk Jónu að mennta börnin
og gera þau klár fyrir lífið. Kannski
leyndist meðal þeirra sérfræðingur
í olíuhreinsistöðvum framtíðarinn-
ar. Það er ómögulegt að segja, en
kannski.
Afskipti Jónu af olíuskemmti- ferð bæjarfulltrúanna voru geymd en ekki gleymd.
Hún átti eftir að bíta
úr nálinni með það
að skemma fyrir
ferðafólkinu, hún
dró vissulega úr
ferðagleðinni og
það sem meira
var, eftir að hún
stráði efasemdum
um þekkingu bæjar-
fulltrúanna á olíufabríkkum gerði
hún þeim vissulega erfiðara fyrir.
Stund hefndarinnar er runnin upp.
Ferðamennirnir komnir heim og
eitt þeirra fyrsta verk var hefnd-
in. Bæjarfulltrúarnir voru varla
búnir að taka upp úr töskunum,
sokka, skyrtur og brækur þegar
þeir komu saman og hvað; lögðu
starf Jónu niður og nú er hún
atvinnulaus. Allt vegna þess að
hún efaðist um þekkingu bæj-
arfulltrúanna á olíuhreinsistöðv-
um. Svona er þetta.
miðvikudagur 11. júlí 200712 Umræða DV
Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
Stjórnarformaður: Hreinn loftsson
framkVæmDaStjóri: Hjálmar Blöndal
ritStjóri og áByrgðarmaður:
Sigurjón m. Egilsson
fulltrÚi ritStjóra: janus Sigurjónsson
fréttaStjóri: Brynjólfur Þór guðmundsson
aðStoðarritjóri: Sigríður Dögg auðunsdóttir
auglýSingaStjóri: auður Húnfjörð
Umbrot: dv. Prentvinnsla: Prentsmiðja morgunblaðsins.
Dreifing: Árvakur. dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni
blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
aðalnúmer 512 7000, ritstjórn 512 7010,
Áskriftarsími 512 7005, auglýsingar 512 70 40.
MótMælandinn rekinn
GRÍMÞÓR
Sigurjón M. EgilSSon ritStjóri Skrifar. ...hún sagði marga fjölmiðlamenn halda að hugleysi væri það sama og hlutleysi.
Tölum þínu máli
LeiðaRi
Tveir síðustu dagar hafa fært okkur fréttir af mál-um sem DV upphóf og benti þjóðinni á. Fyrst ber að nefna áfanga í lífi þeirra manna sem þoldu helvistina á Breiðavík. Það mál hafði legið í þagnargildi allt þar til
DV lagðist í rannsóknir og með kjarki þeirra manna sem sár-
ast leið byrjaði umfjöllun um Breiðavíkurvistina. Þótt ekki sé
nema hálft ár frá því DV sagði fyrst frá Breiðavíkurmálinu hef-
ur margt gerst. Breiðavíkursamtökin verða eflaust til þess að
styrkja mennina sem mest er hægt.
Annað mál sem DV hreyfði við var sú sára staðreynd að blind
börn gátu ekki fengið kennslu hér á landi og DV birti viðtal við
föður blinds drengs þar sem fjölskyldan bjó í Lúxemborg. Það
var eina leiðin til að barnið fengi þolandi kennslu. Nú hefur
verið ákveðið að bæta úr vanda blindra barna og fjölskyldna
þeirra með að bæta úr þeim vanda sem er og hefur verið. Það
hlýtur að vera mikill léttir fyrir fjölskyldur blindra barna. Meira
en eitt hundrað blind börn eru á landinu en aðeins tveir kenn-
arar. Það er mikið verk óunnið, en það er að fara af stað.
Breiðavík var ekki ein og stök. DV hefur einnig flutt fréttir af
vist barna á Kumbaravogi og á Bjargi á Seltjarnarnesi. Félags-
málaráðherra hefur lofað að önnur heimili en Breiðavík muni
sæta skoðun. Þá mun skýrast enn og betur það sem DV hefur
verið að grafa upp og rannsaka. Barnaþrælkun, barnaofbeldi
og ástleysi í garð barna var þjóðfélagsmein og er jafnvel enn.
Það er þörf á að fjölmiðlar hafi vilja og kjark til að stinga á þeim
málum sem þarf að koma í kastljós þjóðarinnar. Flestir fjöl-
miðlar hér á landi gera það ekki og ætla sér ekki að gera það.
Þeir hafa valið sér stöðu þar sem fer sem minnst fyrir þeim. Þá
breytir engu hversu útbreiddir þeir eru. Aðkoma að umfjöllun-
arefnum er það sem mestu skiptir. Björg Eva Erlendsdóttir, sem
var fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu, lýsti þessu ágætlega þeg-
ar hún sagði marga fjölmiðlamenn halda að hugleysi væri það
sama og hlutleysi.
„Við áttum ekki von á umræðunni sem hófst í DV í febrúar en
hún var kærkomið tækifæri til þess að hefja umræðuna.“ Þetta
segir Páll Elísson, formaður Breiðavíkursamtakanna í DV í dag.
Hann segir rétt þegar hann segir málið ekki aðeins snerta þá
sem þoldu helvistina, heldur þjóðina alla. „Breiðavíkurmálið
er smánarblettur á þjóðinni og ég held að landsmenn séu að
átta sig á því núna. Það þarf að gera upp þessi mál, ekki bara
fyrir okkur persónulega heldur alla þjóðina,“ segir Páll.
Hefði DV hagað sér þannig hefði Breiðavíkurmálið ekki komist
á dagskrá. Þá væri enginn fjölmiðill að skýra frá niðurlægingu
og þrengingum barna og fjölskyldna þeirra. Það er brýnt að hér
séu fjölmiðlar sem taka mál einstaklinga fram yfir mál kerfis-
ins. DV talar þínu máli.
DÓMstÓLL GötunnaR
Er nauðsynlEgt að halda byggð á öllu landinu?
„nei, mér finnst það ekki alveg
nauðsynlegt, allavega ekki þessi
minnstu sjávarpláss sem eru að deyja
út. Það er ekki mikið lífi í þessu og mest
allt að hrynja allt þetta fiskistúss hér á
íslandi. Það eru aðallega stærri bæirnir
sem mun ganga vel.“
Bryndís Tryggvadóttir, 17 ára,
nemi.
„já mér finnst það. Ég er sjálf utan af
landi og gæti ekki hugsað mér ísland
án landsbyggðarinnar þótt ég búi hér
núna.“
Rakel Björnsdóttir, 42 ára,
skrifstofumaður.
„nei, í rauninni ekki. Það er eðlileg
þróun að byggðir þróist og sumar
dragist saman. mér finnst allt í lagi að
halda í stærri bæjarfélög eins og á
akureyri og egilsstöðum en ég er ekki
tilbúinn að borga einhverja milljarða
fyrir göng sem fimm nota.“
Snorri Arnar Sveinsson, 19 ára,
nemi.
„já, það er nauðsynlegt. ísland er það
fallegt að mér finnst það alveg
nauðsynlegt að halda því sem er í
byggð áfram í byggð. Ég myndi ekki
vilja sjá bæi úti á landi lenda í þeirri
krísu að þeir leggi upp laupana.“
Þorgerður E. Long, 39 ára, öryrki.
sanDkoRn
n Moggamenn eiga erf-
itt þessa dagana ef fréttir úr
höfuðstöðvum þeirra reynast
réttar. Þær
segja aldrei
fleiri segja
upp áskrift
en nú. Þeim
fækki oftast
yfir hásum-
arið en í ár
sé meira að
gerast en
áður. Grófustu sögur segja að
um fjögur þúsund áskrifendur
hafi hætt síðustu daga og vik-
ur og flestir þeirra eigi heima
í sjávarbyggðum þar sem fólk
er allt annað en sátt með það
sem Mogginn kallaði frétta-
skýringar af kvótasvindli, en
lesendurnir kalla fréttasvindl.
Styrmir Gunnarsson neydd-
ist meðal annars til að fara
á fund Grundfirðinga vegna
málsins.
n Þar sem ríkisstjórnin hefur
mikið fylgi og almenningur
virðist ekkert finna að ákvörð-
un um nið-
urskurð
á kvótan-
um og ekki
einu sinni
að hinum
sérstöku
bráða-
birgða-
lögum um
rafstraum á Suðurnesjum er
stjórnarandstaðan að undir-
búa fjörugt þing þar sem allt
verður gert til að opinbera
veikustu hliðar ríkisstjórnar-
innar. Þar sem Steingrímur J.
Sigfússon, Guðni Ágústsson
og Guðjón Arnar fara sín-
um flokkum er klárt að tekist
verður á.
n Þingmaðurinn Grétar Mar
Jónsson er með reyndari skip-
stjórum
Íslendinga.
Hann notar
ekki fríið
frá þing-
störfum til
að endur-
nýja kynni
sín af sjó
og sjósókn.
Þess í stað er með hann þætti
á Útvarpi Sögu þar sem hann
meðal annars ræðir við fólk
um ævi þess og störf.
- og ekki aukatekið orð
leiðrétting
Röng mynd birtist með frétt í
blaðinu í gær um kristnifræðslu í
skólum sem bar fyrirsögnina Hætta
á að brotið sé á trúfrelsi barna. Rétt
mynd af Sigurði Hólm Gunnarssyni,
varaformanni Siðmenntar, birtist
hér með.