Kjarninn - 26.09.2013, Side 5

Kjarninn - 26.09.2013, Side 5
Skýrari valkostir í borginni Leiðari Þórunn Elísabet Bogadóttir thorunn@kjarninn.is Í höfuðborginni er slagurinn um sigur í sveitarstjórnar- kosningum næsta árs hafinn af fullum krafti. Það fer ekki framhjá þeim sem sjá fréttir um undirskrifta- söfnun fyrir áframhaldandi veru flugvallarins í Vatns- mýri, eða lesa Morgunblaðið að ausa skömmum yfir núverandi meirihluta. Við upphaf kosningaveturs stendur Besti flokkurinn uppi sem stærsti flokkurinn og hefur meira að segja hirt nokkurt fylgi af helsta keppinautinum, Sjálfstæðisflokknum. Sam- fylkingin fellur algjörlega í skuggann af Besta en Vinstri græn geta mjög vel við unað á meðan Framsókn kemst ekki á blað frekar en í síðustu kosningum. Það varð nokkurn veginn ljóst í gær hvernig Sjálfstæðis- flokkurinn hyggst fara inn í þennan vetur, og hvaða sjónar- mið eiga að verða ofan á, þegar Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi tilkynnti að hann hygðist hætta í stjórnmálum. Gísli Marteinn hefur eytt kröftum sínum í skipulagsmál í víðum skilningi. Hann hefur verið helsti talsmaður nýrra sjónarmiða innan síns flokks og hefur starfað með öðrum flokkum í ýmsum málum. Hann virtist líka einn fárra borgar- fulltrúa sem gera sér grein fyrir muninum á sveitarstjórnar- málum og landsmálum á Íslandi, og því að þau fara ekkert endilega vel saman. „Mér er ljóst að á næstu mánuðum myndi ég annað hvort þurfa að skipta um skoðun eða valda mikill úlfúð og óeiningu meðal félaga minna sem mér þykir vænt um,“ skrifaði Gísli Marteinn í pósti þar sem hann greindi frá ákvörðun sinni. Á heimasíðu sína skrifaði hann: „Staðreyndin er að sú harða sannfæring sem ég hef fyrir því hvað er rétt að gera í Reykja- vík, getur verið til bölvaðra trafala.“ Þessi orð skýra sig sjálf, Sjálfstæðisflokkurinn ætlar með eina skoðun inn í kosninga- vetur. Spurningin er hvað aðrir væntanlegir frambjóðendur á svipaðri línu og Gísli gera í kjölfarið og hvernig þeim reiðir af. Margir vilja meina að flugvallarmálið verði stærsta kosningamálið á næsta ári. Júlíus Vífill Ingvarsson, oddviti sjálfstæðismanna og eini frambjóðandinn í fyrsta sætið enn sem komið er, er einn þeirra sem hafa haldið því á lofti undanfarið. Það væri frekar þægilegt stærsta mál fyrir hann, meirihluti Íslendinga og borgarbúa er samkvæmt könnunum sammála honum um að völlurinn eigi að vera áfram í Vatns- mýri. Um fátt eru Íslendingar vanari að rífast en um veru flugvallarins, þrátt fyrir að rifrildið hafi sorglega lítið þróast í mjög langan tíma. Umræðan heldur alltaf áfram í formi upphrópana og gífuryrða, sem hjálpa engum að komast að niðurstöðu í málinu. Þeir sem vilja völlinn burt eru ekki á móti landsbyggðinni heldur vilja almennilega uppbyggingu í höfuðborginni og þeir sem vilja flugvöllinn áfram óttast margir um hag sinn og sinna ef hann fer. Þetta er einfalt. Bæði sjónarmiðin eru gild. Skoðanakannanir benda þó ekkert endilega til þess að borgarbúar sjái flugvallarmálið sem aðalmál kosninganna. Þeir eru víðsýnni en svo. Það er samt angi af því sem gæti vel orðið stærsta kosningamálið, skipulagsmál. Framtíð borgar- innar veltur að miklu leyti á því hvernig þeim málum verður háttað á næstu árum. Nýtt aðalskipulag hefur verið unnið á löngum tíma og í mikilli sátt langflestra borgarfulltrúa. Þetta hefur gerst á sama tíma og nokkur vakning hefur orðið meðal almennings um skipulagsmál. Borgarbúar hópa sig saman og láta vel í sér heyra ef þeim mislíkar eitthvað í umhverfi sínu. Meðal mest áberandi mála þessa kjörtímabils eru mál tengd skipulagi: Nasa og Landsíma- reiturinn, Hljómalindarreiturinn, sumarlokanir Laugavegs og Hofsvalla gata svo dæmi séu tekin. Þessu tengist að ástandið á húsnæðismarkaðnum er slæmt, eins og Kjarninn hefur sagt ítarlega frá undanfarnar vikur. Fyrirsjáanlegt er að þúsundir Íslendinga muni lenda í miklum vandræðum á næstu misserum vegna þess að eftirspurn eftir litlum og meðalstórum íbúðum er mikil en framboðið takmarkað. Leiguverð er auk þess himinhátt og nauðsynlegt að geta reitt fram margar milljónir til að kaupa fasteign. Vandamálið á einna helst við miðsvæðis í borginni, enda er það þar sem þetta fólk vill búa. Við þessu er reynt að bregðast og borgaryfirvöld hafa sýnt viðleitni í nýju aðalskipulagi með þéttingu byggðar. Kostnaður inn við að byggja er hins vegar mikill og eigendur lóða reyna því að fá sem mest fyrir peninginn – byggja mikið og selja dýrt, sem verður til þess að íbúar hverfa mótmæla flestum nýbyggingum sem fyrirhugaðar eru í nágrenni þeirra. Alla þessa uppbyggingu, sem Reykvíkingar amast við í sínum hverfum, væri hægt að rúma í Vatnsmýri. Hún er stærsta byggingarlandið sem völ er á á því svæði þar sem borgarbúar vilja búa. Það er staðreynd. Þannig að ef Reyk- víkingar kjósa að hafa flugvöllinn áfram þar sem hann er verða þeir líka að sætta sig við að það verður enn dýrara að búa á þessum svæðum og þéttingin verður líklega enn meiri í vinsælustu hverfunum á næstunni – nema snúið verði aftur til þess að byggja bara í úthverfunum. Einmitt nú lítur út fyrir að helsta baráttan í borginni verði á milli Besta flokksins og Sjálfstæðisflokksins. Að óbreyttu munu flokkarnir berjast um það hvor þeirra fær að mynda meirihluta næsta sumar, og munurinn á flokkunum er mun skýrari í dag en í gær. Laugavegi 71, 101 Reykjavík Sími 551-0708 kjarninn@kjarninn.is www.kjarninn.is Ritstjóri: Þórður Snær Júlíusson Framkvæmdastjórar: Gísli Jóhann Eysteinsson og Hjalti Harðarson Kjarninn miðlar ehf. gefa Kjarnann út.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.