Kjarninn - 26.09.2013, Side 19
02/06 kjarninn trúmál
Í
byrjun ágúst síðastliðins ætlaði allt að fara á annan
endann í íslensku samfélagi þegar í ljós kom að heims-
þekktur bandarískur predikari, Franklin Graham,
ætlaði að koma til Íslands síðustu helgina í september
til að predika í Laugardalshöll á Hátíð vonar.
Hneykslunin var vegna þess að Graham, og samtökin sem
hann leiðir, eru yfirlýstir andstæðingar hjónabands samkyn-
hneigðra. Hún var líka vegna þess að Þjóðkirkjan, sem fær um
fimm milljarða króna á ári úr ríkissjóði til að reka víðfeðma
starfsemi sína, auglýsti hátíðina á vef sínum og ofbauð með
því nánast öllum samtökum fyrir auknum mannréttindum,
meðal annars samkynhneigðra, sem starfa á Íslandi.
Þjóðkirkjan baðst á endanum afsökunar á auglýsingunni
og fjarlægði hana af vef sínum. Hún vildi þó ekki endurskoða
aðkomu sína að hátíðinni. Rúmlega 50 kirkjur, söfnuðir,
sóknir og trúarsamtök á Íslandi taka þátt í henni. Á meðal
þeirra sem eru í forsvari fyrir samtökin sem standa að hátíð-
inni eru tveir Þjóðkirkjuprestar.
Ekki voru allir kristnir Íslendingar á eitt sáttir við að-
komu Þjóðkirkjunar að viðburðinum. Sóknarnefnd og
sóknarprestur Laugarneskirkju sendu til dæmis frá sér
ályktun þar sem fram kom að þau álitu þátttöku þjóð-
kirkjunnar skref í ranga átt. Í vikunni var síðan ákveðið að
haldin yrði Regnbogamessa í Laugarneskirkju næstkomandi
sunnudagskvöld. Auðbjörg Stefanía Helgadóttir, formaður
sóknarnefndar, segir að þar verði fjölbreytileikanum fagnað
og regnbogafánanum flaggað. Í kirkjunni sé rými fyrir alla.
Hún leggur þó áherslu á að undirtóninn sé grafalvarlegur og
ætlar sjálf að tala á messunni um mjög persónulegt málefni.
„Það getur verið lífshættulegt að dæma aðra,“ segir hún.
Þessi afstaða einnar kirkju hefur þó ekki bifað Agnesi M.
Sigurðardóttur, biskupi Íslands. Hún ætlar að halda erindi á
hátíðinni.
Lögreglan spurð um öryggismál
Franklin Graham er forseti og framkvæmdastjóri The Billy
Graham Evangelistic Association (BGEA), samtaka sem
Trúmál
Þórður Snær Júlíusson
thordur@kjarninn.is