Kjarninn - 26.09.2013, Qupperneq 34

Kjarninn - 26.09.2013, Qupperneq 34
03/06 kjarninn Danmörk um. Stjórnarformaðurinn benti á sjálfan sig og hann varð að endingu fyrir valinu. Þótt Eivind Kolding, sem er 53 ára, hafi setið í bankastjórninni um árabil var hann ekki bankamaður í eiginlegum skilningi. Að loknu lögfræðiprófi árið 1983 vann hann um nokkurra ára skeið á lögmannsstofu en hóf árið 1989 störf hjá A.P. Möller-Mærsk fyrirtækinu. Frá 1. júlí 2006 og þangað til hann settist í bankastjórastólinn var hann forstjóri Maersk Line, stærsta fragtskipafélags í heimi, með 25 þúsund starfsmenn. Mörgum þótti einkenni legt að Kolding skyldi velja að yfirgefa Maersk-skútuna og gerast banka maður en í viðtölum sagði hann að það væri spennandi vettvangur og mikil áskorun að takast á við nýtt starf. Það reyndust orð að sönnu. Danske Bank hefur verið í miklum vanda staddur síðan í bankahruninu. Bankinn, sem er sá langstærsti í Danmörku og hefur lengi verið, tapaði miklu fé í kreppunni og það er hreint ekki víst að hann hefði lifað hrunið af án aðstoðar danska ríkisins. Sérfræðingar segja að það hafi einfaldlega ekki komið til greina að láta bankann rúlla eins og það er kallað, til þess hafi allt of mikið verið í húfi. Bankinn var, og er, risavaxinn á danskan mælikvarða og fall hans hefði haft gríðarleg áhrif í dönsku samfélagi. Nær öruggt er að margir aðrir danskir bankar hefðu komist í þrot og fjölmörg dönsk fyrirtæki, bæði stór og smá, hefðu ekki lifað af. Þegar best lét á fyrsta áratug aldarinnar var heildar- verðmæti Danske Bank um 170 milljarðar danskra króna, sem í dag samsvarar yfir 3.700 milljörðum íslenskra króna. Vorið 2009 hríðféll hins vegar verð á hlutabréfum í bankan- um og í mars það ár var heildarverðmæti hans 25 milljarðar danskra króna. Tiltrú umheimsins, og Dana sjálfra, á bank- anum hafði beðið alvar legan hnekki. Þannig var ástandið þegar Eivind Kolding settist í bankastjórastólinn. Hans biðu því mörg og erfið verkefni. Það mikilvægasta, og erfiðasta, var að efla tiltrú og traust landsmanna á bankanum en nýja banka stjóranum og samstarfsfólki hans virðast hafa verið ákaflega mislagðar hendur í þeim efnum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109

x

Kjarninn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.