Kjarninn - 26.09.2013, Page 47
03/08 kjarninn viðmælandi vikunnar
að innkaupum. Það er ekki hægt að fá erlendar ábyrgðir
lengur. Áður fyrr áttum við birgðirnar í evrum, borguðum
miklu lægri vexti og áttum kost á því að fá fjármögnun frá
framleiðendum, jafnvel vaxtalaust í einhvern tíma. Nú eru gerð-
ar kröfur um að allt sé borgað um leið og bílarnir eru pantaðir.
Fyrir þessu eru ýmsar ástæður. Í fyrsta lagi er Íslandi illa treyst.
Framleiðendur fá þær upplýsingar frá bönkum erlendis að það
sé ekki lengur hægt að treysta íslenskum fyrirtækjum fyllilega.
Í öðru lagi hefur staða efnahags mála í Evrópu líka versnað. Við
erum ekki þau einu sem eru í vandræðum og það hefur mikil
áhrif á allt ytra umhverfið að hagkerfi heimsins eru í hæga-
gangi, eins og hefur verið reyndin í Evrópu að undanförnu. Við
slíkar aðstæður eru allar reglur hertar og gerðar meiri kröfur
um staðgreiðslu og þess háttar. Þetta helst í hendur og við erum
tengd alþjóðlegri þróun í þessum efnum.“
Einn elsti bílafloti Evrópu
Íslenski bílaflotinn hefur elst hratt og er nú orðinn einn sá
elsti í Evrópu með meðalaldur upp á um þrettán ár. Erna segir
þetta umhugsunarefni. „Við erum meira að segja komin með
eldri bílaflota en Danir og er þá mikið sagt,“ segir Erna. Danir
hafa lengi verið þekktir fyrir það í hinum alþjóðlega bílaiðnaði
að vera með gamlan bílaflota, sem meðal annars ræðst af
aðstæðum í Danmörku þar sem reiðhjólamenning á sér djúp-
stæðar rætur í samfélaginu líkt og almennings samgöngur.
Eftir fall krónunnar eru nýir bílar orðnir mjög dýrir í krónum
talið fyrir fólk og erfitt fyrir marga að leggja út fyrir nýjum bílum.
Hvernig horfir staðan við þér?
„Ég hef velt þessu mikið fyrir mér og hef verið að afla upp-
lýsinga um hvernig önnur lönd hafa brugðist við efnahags
um Ernu Gísladóttur
Erna er menntuð mBa frá iESE Barcelona og B.Sc.
í hagfræði frá Háskóla Íslands. Hún er forstjóri og
eigandi Bl ehf. og er ræðismaður Suður-kóreu á Ís-
landi. Erna var forstjóri Bifreiða & landbúnaðarvéla
hf. 2003-2008 og einn af eigendum þess félags, en
hún var framkvæmdastjóri hjá B&l 1991-2003. Erna
situr í stjórnum eftirtalinna félaga: EGG ehf., EGG
fasteignir ehf., Eldhúsvörur ehf., Hregg ehf., Bl ehf.,
BliH eignarhaldsfélag hf., SF 1 slhf., SF1GP ehf.,
Sjóvá-almennar tryggingar hf. og viðskiptaráð.