Kjarninn - 26.09.2013, Síða 50
06/08 kjarninn viðmælandi vikunnar
heyrist lítið í rafmagnsbílunum og truflun af umferð þeirra
er því lítil. Þetta tengist skipulagsmálunum af þessum sökum
þar sem lífsgæði aukast gríðarlega mikið þegar rafmagnsbílar
eru orðnir algengir í umferðinni. Hér á landi er þetta líka
mikið umhverfismál þar sem við erum með umhverfisvæna
endurnýjan lega raforku. En það er vitaskuld ekki raunin alls
staðar, þar sem olía og kol eru notuð til þess að framleiða raf-
orku. Hversu hratt raf bílarnir ná fótfestu á markaði mun hanga
saman við alþjóðlega þróun, meðal annars í orku geiranum. En
mér finnst sjálfri mjög spennandi hvað rafbílunum hefur verið
vel tekið og vafalítið eiga þeir eftir að verða enn vinsælli eftir
því sem fram í sækir.“
Hringurinn hjá venjulegu fólki
Erna segist njóta þess að sinna ólíkum verkefnum. Hún líti
svo á að tryggingageirinn, smásalan og bíla geirinn, sem hún
komi beint að, myndi efnahagslegan hring sem áhugavert sé að
fylgjast með. „Ég líki tryggingageiranum við klett í hafinu sem
breytist ekki. Tryggingar fólks eiga að vera stöðugt öryggis net
og þannig lít ég á trygginga geirann. Hann snýst um góða þjón-
ustu, stöðugleika og tryggð. Smásalan er síðan svolítið eins og
„púlsinn“ í þjóðfélaginu. Fólk þarf að kaupa mat og nauðsynjar
og það er mikill hraði í öllum verk ferlum. Ef matvara selst
ekki verður hún ónýt á skömmum tíma. Reksturinn þarf því að
ganga eins og vel smurð vél, sem er tilfellið hjá Högum. Bíla-
geirinn byggir mikið á væntingum og í gegnum hann sést betur
en í flestum öðrum geirum hvað er fram undan.“
Svona til einföldunar; Ef bílasala minnkar mikið og hratt, hvað er
þá að fara að gerast hálfu ári seinna?
vill Ekki Já-fólk
Erna segist starfa eftir því að hver og einn starfs-
maður sem starfi með henni sé með skýrt afmarkað
starfssvið, svo að hann „viti með fullu hvað hann
er að gera“. Þá segist Erna líta svo á að fólk eigi að
vera einbeitt á fundum, sleppa því að tala í símann
og klára þau verkefni sem séu á borðinu á hverjum
tíma. „Ef það þarf að ná í fólk eru alltaf leiðir til
þess. Það þarf ekki alltaf að vera með símann uppi
við. Stjórnarstörf eru mikilvægari en svo.“ Þá vill
Erna ekki hafa já-fólk í kringum sig, heldur gagn-
rýnið fólk sem þorir að setja fram sín sjónarmið,
óháð því hvort það telur þau vera á skjön við það
sem aðrir hafa sett fram innan fyrirtækisins.