Kjarninn - 26.09.2013, Page 70
04/04 kjarninn Stjórnmál
verða vorið 2014, flokkarnir eiga allir eftir að raða fólki á
lista og stilla málefnabyssurnar og ný framboð eiga ugglaust
eftir að bætast við. Því getur margt gerst á næsta rúma hálfa
árinu.
Gísli Marteinn hættir
Þau stórtíðindi áttu sér síðan stað í borgarpólitíkinni í gær
að Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins, tilkynnti að hann ætlaði að hætta og yrði ekki í
framboði fyrir flokkinn né nokkurn annan í haust. Þess í stað
ætlar hann að stýra stjórnmálaumræðuþætti sem mun taka
við af Silfri Egils á sunnudögum á Rúv.
Margir töldu ljóst að Gísli Marteinn myndi eiga í erfið-
leikum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins, sem fer fram um
miðjan nóvember. Ástæðan er sú að hugmyndir, áherslur
og að einhverju leyti vinnubrögð hans hafa ekki rímað við
stefnu flokksins né sýn margra annarra sem hafa verið í
forystu fyrir hann í Reykjavík. Nægir þar að nefna Júlíus Vífil
Ingvarsson og Kjartan Magnússon. Því töldu margir einsýnt
að Gísli Marteinn myndi annaðhvort fara í sérframboð eða
hætta.
Í færslu sem Gísli Marteinn setti inn á heimasíðu sína í
gær segir: „Það er heilmikið álag að vera í stjórnmálum. Ég
hélt alltaf að það hlyti að vera auðveldara ef ég vissi fyrir
hvað ég stæði og hefði trú á mínum hugmyndum. Þá þyrfti ég
ekki að vakna á hverjum morgni og gá til veðurs, í pólitískum
skilningi. En staðreyndin er að sú harða sannfæring sem
ég hef fyrir því hvað er rétt að gera í Reykjavík, getur verið
til bölvaðra trafala. Það er leiðinlegt að standa í stöðugum
illdeilum, ekki síst við félaga og vini sem mér þykir vænt um.
Það var því ekki erfitt að ákveða að stíga til hliðar og leyfa
öðrum að eiga sviðið, í bili að minnsta kosti.“