Kjarninn - 26.09.2013, Blaðsíða 73
02/06 kjarninn Tækni
M
eð því að leggja inn pöntun í gegnum þessa
vefsíðu á fyrsta degi fjórða mánaðar ársins
2010 eftir Krist samþykkir þú að veita okkur
óframseljanlegan rétt til að krefjast, nú og
fram til eilífðar, ódauðlegrar sálu þinnar.
Kjósum við að ganga að rétti okkar samþykkir þú að láta af
hendi sálu þína og gefur jafnframt upp allan rétt til hennar,
innan 5 virkra daga frá móttöku kröfunnar frá gamestation.
co.uk. […] Ef þú a) telur þig ekki búa yfir ódauðlegri sálu b)
hefur nú þegar ráðstafað henni til annarra aðila eða c) óskar
ekki eftir að veita okkur umbeðið leyfi, smelltu þá vinsam-
legast á tengilinn hér að neðan…“
Ofangreint aprílgabb í notkunarskilmálum tölvuleiksins
GameStation aflaði fyrirtækinu á einum degi yfirráðum yfir
7.500 grunlausum sálum, sem félagið hefur enn ekki gert
grein fyrir hvenær það hyggst innheimta og ráðstafa.
Því hefur lengi verið haldið fram að stærsta lygi internets-
ins sé þegar fólk hakar í reitinn „Ég hef lesið og skilið þessa
notkunarskilmála…“, því fæst okkar lesi í raun það sem við
segjumst vera að samþykkja, heldur hökum hugsunarlaust í
reitinn, áfjáð í að byrja að nota umrædda þjónustu.
Fáir lesa lítið
Rannsóknir sýna að þessi fullyrðing er líklega sönn; af þeim
8-12 prósentum sem yfirhöfuð lesa notkunarskilmálana
les fólk einungis 10-20 prósent af textanum og yfirgæfandi
meirihluti hefur hvorki skilning á því hvaða gildi notenda-
skilmálarnir raunverulega hafa né gerir sér grein fyrir því
að um lagalega bindandi samkomulag er að ræða. Í einni
rannsókn sögðust ríflega 20 prósent þátttakenda hafa setið
eftir með sárt ennið eftir að hafa ekki kynnt sér fyrrnefnda
skilmála nægilega vel. Flestir treysta því einfaldlega að
notenda skilmálarnir séu nauðsynlegir og sanngjarnir en
velta því lítið fyrir sér hvaða vald vefsíðan/appið/forritið
er að taka sér, hvaða réttindum menn eru að afsala sér með
samþykki eða þeim afleiðingum sem af hljótast.
Þekktasta íslenska dæmið um afleiðingar slíks afsals er
Smelltu til að lesa grein
Birgittu Jónsdóttur á The
Guardian
Tækni
Þórlaug Ágústsdóttir