Kjarninn - 26.09.2013, Side 86

Kjarninn - 26.09.2013, Side 86
S teven Spielberg og George Lucas, tveir af frægustu stórmyndaleikstjórum veraldar, hafa skipst á því undanfarin ár að lýsa yfir því að dýrar stórmyndir eins og við þekktum þær væru óðum að líða undir lok. Þær væru of margar og of dýrar og myndu áhorfendur því innan tíðar sjá fjölda minni mynda taka við af þeim þegar stúdíóin gæfust loksins upp á risamyndunum. Árangur mynda er langoftast mældur eftir velgengni – eða vandræðum – þeirra í Bandaríkjunum. Oftar en ekki byrja kvikmyndaauglýsingar á hinum hræðilega ofnotaða sígilda frasa „Fór beint á toppinn í Bandaríkj- unum!“ eins og um sé að ræða hinn eigindlega og óum- deilanlega mælikvarða á hvort myndin njóti velgengni eða ekki. Og við, lesendur, áhorfendur og áhugafólk um kvikmyndir, höfum um áratugaskeið litið á tekjutölur frá Bandaríkjunum sem miðlæga uppsprettu upplýsinga um hvort þessi mynd eða hin sé „smellur“ eða „flopp“. Og um langa hríð var það þannig. Stór hluti af tekjum kvikmynda úr kvikmyndahúsum, í það minnsta sá hluti sem rann til framleiðendanna, kom frá Bandaríkjunum. Auk þess voru fréttir um vinsældir – eða vöntun þar á – frá Bandaríkjunum oftar en ekki afar mótandi á aðsókn víða um heim. Ef dýr mynd floppaði í Bandaríkjunum var svo gott sem úti um þá sem settu peningana sína í framleiðslu hennar. Nú er öldin hins vegar aldeilis önnur. Floppunum fjölgar Gríðarleg fjölgun á kvikmyndahúsum í Suður-Ameríku, Kína, Rússlandi og víðar um Asíu hefur orðið þess valdandi að aðsókn í Bandaríkjunum einum saman er farin að skipta stúdíóin minna máli, jafnvel fyrir stærstu og dýrustu myndir hvers árs. Við sjáum margar umfjall- anir á netinu um að sumarið 2013 hafi reynst mörgum myndum, og stúdíóum, ansi blóðugt, þar sem aðsókn á fjölda mynda hafi valdið vonbrigðum. Ef aðeins er litið 02/07 kjarninn Exit
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.