Kjarninn - 26.09.2013, Blaðsíða 88

Kjarninn - 26.09.2013, Blaðsíða 88
mistókst algerlega að fá til baka í Bandaríkjunum. Og ef kvikmyndaheimurinn væri eins og hann var fyrir um það bil 20 árum væru þær allar skínandi dæmi um upp- blásna stórmyndaloftbelgi sem hrapa logandi til jarðar. Aftur á móti hefur heimurinn breyst töluvert síðustu tuttugu árin. Pacific Rim, ein dýrasta mynd ársins, er enn að reyna að skríða yfir 100 milljón dollara markið í Bandaríkjunum, en er þegar farin að skila hagnaði fyrir Guillermo del Toro og framleiðendur. Svo mikinn, reyndar, að talið er líklegt að framhaldsmynd verði gerð af henni. Ástæðan? Kína. Myndin hefur verið gríðarlega vinsæl þar, reyndar svo vinsæl að tekjur af henni eru hærri þar en í Banda- ríkjunum, heilar 109 milljónir dollara. Heildartekjur á heimsvísu standa nú í rúmum 400 milljónum dollara, sem gerir myndina að hinni prýðilegustu fjárfestingu fyrir Warner Bros. og aðra sem stóðu að henni. Svipaða sögu er að segja af Oblivion (Suður-Ameríka og Evrópa), G.I. Joe: Retaliation (Asía), Elysium (Rússland og Evrópa), A Good Day to Die Hard (Rússland, Suður- Ameríka og Evrópa), After Earth (um allan heim) og fleiri myndum. Hvernig sér maður hvort mynd er flopp eða ekki? Það sem gerir lestur og mat á velgengni mynda, í það minnsta hvað varðar hvort þær skili framleiðendum hagnaði eða ekki, erfiðan er þessi sama sprenging á kvikmyndahúsamarkaðnum á heimsvísu. Mismunandi samningar gilda milli framleiðenda, dreifingaraðila og sýningaraðila í hverju landi, með mismunandi tekju- skiptingu til hvers aðila. Flestir sem þekkja til setja þó þá grunnlínu að stúdíóin fái milli 50 og 60 prósent af tekjum mynda, og að meðaltalið sitji um 55 prósenta markið. Þetta er auðvitað aðeins viðmið, en nokkuð ná- kvæmt í flestum tilvikum. Því er gott að margfalda kostnaðartölu myndar með 1,8 til að fá út hversu mikinn pening myndin þarf að taka 04/07 kjarninn Exit
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109

x

Kjarninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.