Kjarninn - 26.09.2013, Page 105

Kjarninn - 26.09.2013, Page 105
03/04 kjarninn Exit Grískur veruleiki og atvinnu-efasemdarmenn Gríska myndin Wasted Youth, eða Æska til spillis, fylgir hinum 16 ára gamla Haris sem eyðir dögunum sínum í að flækjast stefnulaust með vinum sínum á hjólabrettum um götur Aþenu. Vassilis er miðaldra og óhamingju- samur lögreglumaður sem þrífst illa í vinnunni og hírist í örlítilli íbúð með fjölskyldu sinni. Þessir tveir afar ólíku einstaklingar, sem lifa afar ólíku lífi, verða á vegi hvors annars einn funheitan sumardag. Myndin þykir sýna mjög raunsanna mynd af Aþenu og því kreppusamfélagi sem þar þrífst. Wasted Youth verður sýnd í Tjarnarbíói og í Norræna húsinu. Greedy Lying Bastards, eða Svikulir lygamerðir upp á ylhýrsku, er heimildarmynd þar sem leikstjórinn Craig Rosebraugh dýfir sér í dimm skúmaskot olíuheimsins og þeirra sem gæta hagsmuna hans. Þrátt fyrir að sannanir um loftlagsbreytingar af mannavöldum hrannist upp og vísindamenn séu flestir samhljóma í slíku áliti sínu gætir enn takmarkaðs pólitísks vilja til að vinna gegn þessum vágesti. Í myndinni er fylgst með þeim einstak- lingum og hópum sem vinna við að breiða út efasemdir um loftslagsvísindi og staðhæfa að gróðurhúsaáhrifin komi hegðun manna ekkert við. Myndin verður sýnd í Háskólabíói. Óvenjulegt samband og Valentínusarskot Í Betlehem er saga af óvenjulegu sambandi ísraelska leyniþjónustumannsins Razi og palestínsks heimildar- manns hans, Sanfur, sem er yngri bróðir hærra setts palestínsks hermanns. Razi hefur þróað mjög náið, næstum föðurlegt, samband við Sanfur. Sá reynir á hinn bóginn að feta þrönga stigu milli skipana frá Razi og tryggðar við bróður sinn. Sanfur lifir því tvöföldu lífi og lýgur að bæði Razi og bróður sínum. Myndin, sem var frumsýnd fyrr á þessu ári, verður sýnd í Háskólabíói. Í heimildarmyndinni Valentine Road er sögð saga 15 ára drengs sem spurði annan hvort hann vildi vera Smelltu til að fræðast um Bethlehem á vef- síðu West End Films
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109

x

Kjarninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.