Kjarninn - 17.04.2014, Síða 17
08/08 EfnahagSmáL
PeningamarkaðSSjóður fullur af eitruðum eignum
Peningamarkaðssjóðir voru mörgum hugleiknir
þegar bankarnir hrundu, enda höfðu margir valið
að setja sparnað sinn inn í þá í stað þess að geyma
hann á innlánum. Ástæðan var einföld, loforð um
mun betri ávöxtun. Þar fór SPRON fremst í flokki.
Sjóðurinn lofaði viðskiptavinum sínum mikilli
ávöxtun.
Vegna þess að viðskiptavinir fjármála stofnana
voru ítrekað hvattir til að færa fé inn í þessa sjóði
héldu margir að vilyrði ríkisins um að tryggja
innstæður myndi líka eiga við um sjóðina. Það var
rangt mat. Sjóðir stóru bankanna greiddu hins vegar
hlutdeildarskírteinishöfum sínum út úr sjóðunum
hluta eigna sinna og slitu þeim í kjölfarið. Hlutfall
útgreiðslu byggði á ofmati á þeim eignum sem voru
inni í peningamarkaðssjóðunum.
SPRON var ekki í sömu stöðu og stóru bankarnir
hvað þetta varðar. Sjóðurinn fékk PwC og KPMG til
að leggja mat á virði þeirra eigna sem voru í sjóðnum
eftir hrun. Endurskoðendafyrirtækin komust að
þeirri niðurstöðu að 73 prósent af virði þeirra bréfa
sem þar var að finna myndu innheimtast. Í matinu
var meðal annars reiknað með að 91 prósent af
skuldabréfum Baugs myndi innheimtast. SPRON
gekk lengra en matið og greiddi út 85,52 prósent.
Sjóður SPRON var fullur af vondum eignum.
Uppistaða eigna hans, utan innlána, var bréf frá
Samson, Existu, FL Group, Atorku, Baugi Group,
Milestone, Sparisjóði Mýrasýslu og Landic Property.
Öll þessi félög hafa orðið gjaldþrota eða farið í
gegnum nauðasamninga. Ljóst er að lítið hefur
innheimst af skuldabréfum þeirra.