Kjarninn - 17.04.2014, Page 24

Kjarninn - 17.04.2014, Page 24
06/06 EfnahagSmáL úr 0,5 sterlingspundum í 8,3 sterlingspund á hlut miðað við verðmat sem byggt var á rauntölum fyrir rétt rúmlega sex mánaða rekstur og væntingum um framtíðartekjur. Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis kemur fram að samkvæmt árs- uppgjöri Shelley Oak fyrir árið 2007 hafi hagnaður félagsins numið 15,6 milljónum króna. Eigið fé félagsins nam 79,7 milljónum króna á sama tíma. Á meðal þeirra hluthafa sem seldu Byr hluti sína í Shelley Oak voru Saxbygg, félag með tengsl við Jón Þorsteinn stjórnarformann Byrs, og félagið Quercus, sem var í eigu áðurnefnds Árna Helgasonar. Félögin fengu hlutabréfin sín staðgreidd fyrir samtals 1,5 milljónir sterlingspunda. Jón Þorsteinn vék af fundi þegar hlutabréfaviðskiptin voru sam- þykkt, en hann skrifaði engu að síður undir kaup samningana fyrir hönd Byrs. Áætlað tap Byrs sparisjóðs vegna niðurfærslu hlutafjár í Shelley Oak og lánafyrirgreiðslna nemur um 2,5 milljörðum króna. Líklegt má telja að Shelley Oak-málið hafi verið eitt þeirra sem rannsóknarnefnd Alþingis vísaði til Ríkis- saksóknara til frekari rannsóknar.

x

Kjarninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.