Kjarninn - 17.04.2014, Page 26

Kjarninn - 17.04.2014, Page 26
02/04 grEining átti til að mynda í félögum sem fjárfestu í fasteignum í Berlín og stóðu að útrás Remax og sölu á kvennmannsnærfatnaði í öðrum Evrópulöndum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu rannsóknar- nefndar um starfsemi sparisjóðanna sem birt var í síðustu viku. tugmilljarða kostnaður lendir á skattgreiðendum Þær pólitísku hugmyndir sem voru uppi um endurreisn sparisjóðakerfisins með einhverja af þessum sjóðum sem nýtt hryggjarstykki, sérstaklega Sparisjóðinn í Keflavík eða Byr, voru því eftir á að hyggja andvana fæddar. Í þær hefði aldrei átt að ráðast. Ástand þessara sjóða vegna slælegs reksturs, mikillar áhættusækni, undirlægju semi við ákveðnar fjármála- og viðskipta blokkir og vanþekkingar eða -getu starfsmanna sem fóru með mikil fjárráð, og dregið er fram í skýrslu rann- sóknarnefndarinnar, sýna að raunhæfi slíkra hugmynda var ekkert. Niðurstaðan er að heildarkostnaður sem þegar hefur fallið á hið opinbera, skattgreiðendur, vegna erfiðleika og falls sparisjóðanna, er nú þegar rúmir 33 milljarðar króna. Uppistaðan í því tapi er kostnaður vegna Sparisjóðsins í Keflavík, rúmir 19 milljarðar króna án tillits til vaxta. Auk þess ríkir enn óvissa um hvort og hvað muni falla til vegna uppgjörs við slitastjórn Sparisjóðabankans. Seðlabanki Íslands lýsti 215 milljarða króna kröfu í þrotabú bankans en lítill hluti krafnanna hefur verið samþykktur. Þessar kröfur eru vegna hinna svokölluðu endurhverfu viðskipta þar sem Sparisjóðabankinn var milliliður. Hann fékk lán hjá Seðla- banka Íslands og endurlánaði þau svo til viðskiptabanka og sparisjóða. Viðbúið er því að tugir milljarða króna til við- bótar tapist vegna þessarra lána. Beintengdir við viðskipta- og bankablokkir Þrír sjóðanna: SPRON, Sparisjóðurinn í Keflavík og Spari- sjóður Mýrasýslu, beintengdu hagsmuni sína við Kaupþing í gegnum beint og óbeint eignarhald á hlutabréfum í Existu, „Kjarnastarfsemi þeirra var ónýt, vaxtamunur lítill eða enginn og sumum þeirra tókst meira að segja ekki að hagnast á því að lána út verð- tryggð íbúðalán. Lán voru veitt án nægjanlegra trygginga og lán- að var til stofn- fjárkaupa með veði í bréfunum sjálfum, sem er andstætt lögum.“

x

Kjarninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.