Kjarninn - 17.04.2014, Side 43

Kjarninn - 17.04.2014, Side 43
01/01 SpES 01/01 spes kjarninn 17. apríl 2014 SpES Kentucky Fried Chicken fetar nýjar brautir í markaðssetningu Kjúklingabiti til skrauts á úlnliðinn fyrir lokaballið n ýjasta viðbótin við vörulínu skyndibitakeðjunnar Kentucky Fried Chicken (KFC) er skreyttur kjúklingabiti. Um er að ræða skraut sem hefð er fyrir að ungir menn færi stúlkunum sem þeir bjóða á lokaball amerískra framhaldsskóla. Vöndurinn, eða skreytingin, er samstarfsverkefni KFC og blómabúðar í Louisville í Kentucky, en áhugasamir viðskiptavinir geta pantað hana á netinu. Skreytingin kostar litla tuttugu Bandaríkjadali. Kjúklingabitinn kemur ekki með í pakkanum, en viðskiptavinirnir þurfa ekki að örvænta því með skreytingunni fylgir fimm dollara gjafakort fyrir einum kjúklingabita hjá KFC, þar sem þeir geta svo valið sér bita að eigin vali, sem best passar við kjólinn sem á að klæðast hverju sinni. Uppátæki KFC hefur vakið athygli fjöl- miðla vestan hafs, sem og auglýsingin á nýjustu vöru skyndibitarisans. Kjúklinga- skreytingin hefur í senn verið auglýst sem glæsileg og próteinrík, og hefur hlotið góðar viðtökur.

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.