Kjarninn - 17.04.2014, Page 46
02/05 piStiLL
félag forstöðumanna
Forstöðumenn ríkisstofnana eru skemmtilegur samtíningur af
ýmiss konar fólki sem í senn sinnir sambærilegum og ólíkum
verkefnum þegar kemur að rekstri stofnana. Þessi hópur hefur
um árabil stillt saman strengi á vettvangi Félags forstöðu-
manna ríkistofnana sem staðið hefur fyrir fræðslu- og félags-
starfi af ýmsum toga. Félagið hefur til að mynda verið ötult
við að benda á eitt og annað sem færa mætti til betri vegar í
starfsumhverfi hins opinbera, verið virkur
þátttakandi í ýmsum framfara verkefnum,
til dæmis á sviði nýsköpunar, og staðið fyrir
málþingum um þau mál sem efst eru á baugi
hverju sinni. Félagið heldur úti vefsíðunni
www.ffr.is og er virkt í upplýsinga miðlun á
samfélagsmiðlinum Facebook.
Eins og gefur að skilja hefur Félag
forstöðu manna látið sig sérstaklega varða
starfsumhverfi forstöðumanna. Í samræmi
við tillögu félagsins var fyrir nokkrum árum
settur á laggirnar starfshópur sem fékk
það verkefni að skila tillögum um það efni.
Skýrsla þessa starfshóps, sem ber yfir skriftina
Tillögur starfshóps um vinnuumhverfi
forstöðu manna, kom út fyrir tveimur árum
síðan og vakti litla sem enga athygli. Það
kemur kannski fáum á óvart enda ekkert sér-
staklega áhugavert efni ef marka má titil inn
og innihaldið kveikir ugglaust heldur ekki í
mörgum. Ekki frekar en heróp Helga Björns-
sonar hefði kveikt í gestum á árshátíð Félags forstöðumanna,
hefði hún verið haldin.
En þrátt fyrir óspennandi titil er að finna í þessari skýrslu
mikilvægar tillögur og ábendingar um allrahanda úr bætur,
bæði sem snúa að forstöðumönnunum sjálfum og ekki
síður að starfsumhverfi þeirra; rekstri opinberra stofnana.
Starfshópurinn sem skilaði umræddum tillögum fékk
tvíþætt hlutverk. Honum var annars vegar falið að fjalla um
„Tillögur starfshóps
um vinnuumhverfi
forstöðumanna
komu út fyrir
tveimur árum og
vöktu litla sem enga
athygli. Það kemur
kannski fáum á
óvart enda ekkert
sérstaklega áhuga-
vert efni ef marka
má titilinn og
innihaldið kveikir
ugglaust heldur
ekki í mörgum.“