Kjarninn - 22.05.2014, Side 88
02/06 fóTbolTi
1. ungVerjalanD – 1954
.UDIWDYHUNL²¯%HUQ
Endur fyrir löngu áttu Ungverjar besta knattspyrnu-
landslið heims. Það kann að koma nokkuð spánskt
fyrir sjónir í ljósi þess að Ungverjar hafa ekki komist
á stórmót síðan 1986. Liðið sem hélt til Sviss árið
1954 var talið það langsigurstranglegasta af öllum.
Stjörnuleikmenn liðsins voru Ferenc Puskás, Sándor
Kocsis, Zoltán Czibor og József Bozsik, allt leikmenn
Budapesti Honved sem var lið ungverska hersins. Þeir
voru kallaðir Gullna liðið eða Hinir miklu Magyarar og
spiluðu áferðarfallega og sveigjanlega knattspyrnu
sem sumir vilja meina að sé undanfari Total Football
Hollendinga 20 árum síðar. Þeir hreinlega úrbeinuðu
öll lið fram að úrslitaleiknum. Í riðlakeppninni unnu
þeir Suður-Kóreu 9-0 og Vestur-Þýskaland 8-3. Þeir
unnu Brasilíu 4-2 í 8 liða úrslitum og heimsmeistara
Úrúgvæ með sama mun í undanúrslitum. Úrslita-
leikurinn gegn Vestur-Þjóðverjum er sennilega einn sá
ótrúlegasti í sögunni og er kallaður Das Wunder von
Bern (kraftaverkið í Bern). Ungverjar komust snemma
í 2-0 en töpuðu 2-3. Þetta var eini tapleikur ungverska
landsliðsins frá 1950 til 1956, þegar liðið leystist upp
eftir byltinguna þar í landi. Ungverjar skoruðu 27
mörk, sem er met, á heimsmeistaramótinu 1954 í að-
eins 5 leikjum og var Sándor Kocsis með 11 mörk, sem
var það langmesta af öllum leikmönnum mótsins.
2. HollanD – 1974
Total Football
Hollensk knattspyrna hefur aldrei verið jafn sterk og
á áttunda áratugnum. Feyenoord varð Evrópumeistari
árið 1970 og Ajax vann sama titil þrisvar í röð þar á
eftir. Velgengnin endurspeglaðist í landsliðinu og
ástæða þessarar velgengni var kerfi sem kallað hefur
verið Total Football. Helsti hvatamaður þessa kerfis
var þjálfarinn Rinus Michels, sem þjálfaði meðal
annars Ajax, Barcelona og hollenska landsliðið árið
1974. Kerfið snerist um sveigjanleika, að útivallar-
leikmenn gætu hlaupið í stöðu hvers annars án
þess að brjóta upp uppstillinguna á vellinum. Kerfið
krafðist mikillar tæknilegrar færni leikmanna og
Hollendingar áttu nóg af færum leikmönnum, má þar
nefna Johnny Rep, Johan Neeskens, Arie Haan, Ruud
Krol og Johan Cruyff sem allir spiluðu eða höfðu
spilað með gullaldarliði Ajax. Hollendingar gersigr-
uðu yfirleitt andstæðinga sína á þessum tíma og
fengu Íslendingar að kynnast því í undankeppninni.
Hollendingar unnu leikina 5-0 og 8-1. Á lokamótinu
unnu þeir bæði undanriðilinn og milliriðilinn léttilega
og ber að nefna 4-0 sigur á Argentínumönnum og 2-0
sigur á heimsmeisturum Brasilíu. Þeir mættu Vestur-
Þjóðverjum í úrslitaleiknum en töpuðu 2-1 eftir að
hafa komist snemma yfir. Hollendingar komust aftur
í úrslit heimsmeistarakeppninnar 1978 í Argentínu
en þá án Cruyff, sem neitaði að spila af pólitískum
ástæðum.