Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.08.1940, Page 13

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.08.1940, Page 13
I> J O Ð I N 67 ráða þar í það rétta og sanna, eft- ir því, sem framast má verða. Má að vísu ráðgera, að mönnum kunni alltaf að sýnást nokkuð sitt Iivað um þá hluti. En svo veigamik- il rök í þessum efnum komu fram í áliti skiiiulagsnefndar atvinnu- mála frá árunum 1934—36, að það skal látið nægja að tilfæra þau ein. Svo sem kunnugt er var skipulags- nefndin skipuð eintómum socialist- um og Framsóknarmönnum, og því engrar linkinndar eða vilhelli i garð útvegsins úr þeirri átt að vænta. Um aðstöðu og afkomu sjáv- arútvegsins á þeim árum segir í á- liti þessarar nefndar: „Auðvitað d þjóðin að gera þá kröfu til sjávarútvegsins, að hann sé rekinn á tímabæran hátt og hafi góða og arðgæfa vörn að bjóða, og því hlýtur líka að vera Ijúft að stgrkja hann til slíks. En sjávarút- vegurinn á jafnframt þá kröfu á þjóðfélagið, að það gæti þess, að le.ggja ekki þær bgrðar á hann með þungum sköttum og óhæfilegri verð- skráningu peninga, að jafnvel vel rekinn sjávarútvegur geti ekki bor- ið sig. Þegar verð útflutningsvöru þjóð- arinnar féll úr 78—80 millj. Icr„ eins og það var 1928 og 1929, ofan í ca. 50 millj. króna, eins og það hefir verið síðan 1931, án þess að telj- andi bregting grði á launum eða kaupgreiðslu, var öll tekjurýrnun þjóðarinnar látin falla á herðar þeirra, er framleiddu vörur til út- flutnings. En útflutningsvaran var og er að- allega sjávarafurðir (allt að 90%) og féll því tekjurýrnun þjóðarinnar aðallega á herðar þeirra, er lifðu af sjávarútvegi. Þetta var í fgrstu í þeirri trú gert — að svo miklu legti, sem menn skgldu það — að sjávarútvegurinn hefði breiðast bak- ið og hjól viðskiptanna mundi snú- ast fljótlega aftur honum í hag. En það hefir ekki enn orðið og getur sjávarútvegurinn ekki þolað það lengur. Ef ekki verður bregting á vöru- verði sjávarútveginum í hag fgrir aðvífandi orsakir, verður að kalla þái bregtingu fram með þjóðfélags- legum aðgerðum, lwort sem menn vilja til þess velja bregtingu (lækk- un) á kaupgjaldi, bregtingu á verð- skráningu peninga, það að fella nið- ur öll opinber gjöld, sem á útgerð- inni hvíla, en veita henni útflutn- ingsverðlaun eða enn önnur ráð. Menna verða að muna, að þrátt fgrir það ástand, sem nú er í út- gerðarmálunum, er sjávarútvegur- inn sú gndirstaða, sem öll fjárhags- leg afkoma þjóðarinnar hvílir að mjög miklu legti á. Og ef sjávarút- vegurinn nýtur fullkomlega fjár- hagslegs jafnréttis við aðra atvinnu- vegi þjóðarinnar, getur hann vissu- lega staðið þeim jafnfætis."*) Alveg sömu meginrök og hér koma fram, vaka fyrir fyrverandi fjármálaráðherra, Eysteini Jónssyni, í umræðum um gengismálið á Al- þingi 1939, þegar því var slegið fram, að gengislækkunin væri stuld- ur af launum landsmanna, og ráð- *) Skipulagsnefnd atvinnumála. Álit og tillögur, bls. 498.

x

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna
https://timarit.is/publication/1014

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.